Fréttablaðið - 07.08.2010, Page 28
28 7. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
É
g tálga bara íslenska
fugla, þessa algeng-
ustu. Hef gert milli
þrjátíu og fjörutíu teg-
undir og þar af eru
svona fimmtán vin-
sælastar. Sumir safna þessum fugl-
um, ferðafólk kaupir þá úr höndun-
um á mér á sumrin og
á veturna pant-
ar fólk þá gegn-
um síma,“ segir
Hafþór sem hefur ekki
gert annað síðustu þrjú ár
en að fjölga fuglum. Jón er
hins vegar bæði á grásleppu
og strandveiðum á Hólmavík
en er smíðakennari og byrj-
aði að tálga í sumar. „Jón er
ekkert að stæla mína fugla né
ég hans,“ tekur Hafþór fram.
„Það hefur verið gott fyrir mig
að hafa hann með mér því ég
hef ekki undan og það er ekki
nógu skemmtilegt að eiga ekk-
ert á verkstæðinu. Hann er að selja
grimmt líka.“
Hafþór kveðst vera úr Reykjavík
en hafa búið á Hólmavík í fimmt-
án ár og kennt þar myndmennt og
smíðar í 12 ár. Hvað kom til að hann
sneri sér alfarið að fuglaframleiðsl-
unni? „Ég var búinn að kenna í þrjá-
tíu ár og langaði að breyta til. Hafði
verið að fikta við að tálga fugla á
sumrin og selja afraksturinn í upp-
lýsingamiðstöðinni hér. Svo
ákvað ég að hella mér
út í þetta og koma
mér upp verk-
stæði á góðum
stað við höfnina, við hliðina
á Galdrasafninu og aðalveit-
ingahúsi bæjarins, í gömlu
húsi sem ég gerði upp.“
Rekaviður af fjörunum og
birki úr reykvískum görðum
er sá efniviður sem Hafþór
kveðst einkum nota í fugl-
ana og lappirnar gerir hann
úr nöglum. En jaðrakan og spói
þurfa langar lappir og þær býr hann
til úr gömlum önglum sem hann fær
hjá beitningamönnum í hinum hluta
verkstæðishússins.
Lóan er langvinsælust fuglanna,
að sögn Jóns. Svo koma hrafninn,
krían, spóinn og rjúpan. Skógar-
þröstur og maríuerla eru mikið
keypt líka og lundinn er vinsæll
hjá útlendingum. „Annars kaupa
útlendingar sömu tegundir og
Íslendingar,“ segir Hafþór. „Þeir
hafa oft einhverja upplifun af krí-
unni, lóunni eða spóanum þegar
þeir koma hingað og kaupa sér tré-
fugl til minja.“
Fuglarnir fljúga
af hnífsblaðinu
Í gömlu timburhúsi við bryggjuna á Hólmavík
sitja tveir menn og tálga fugla. Þetta eru Hafþór
Þórhallsson og Jón Ólafsson og þeir gera meira
en tálga því þeir mála líka fuglana og selja. Stef-
án Karlsson ljósmyndari átti leið um bryggjuna,
heillaðist af iðju þeirra félaga og beindi að þeim
linsunni. Gunnþóra Gunnarsdóttir sló svo á þráð-
inn til þeirra og Hafþór varð fyrir svörum.
MIKIÐ AÐ GERA Hafþór Þórhallsson og Jón Ólafsson hafa varla undan í fuglaframleiðslunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SÝNISHORN Aðallega er
notast við rekavið og birki
í fuglana.
Hafðu samband