Fréttablaðið - 07.08.2010, Qupperneq 32
ferðalög kemur út mánaðarlega
með helgarblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Nordicphotos Getty Images
Pennar Marta María Friðriksdóttir og Sólveig Gísladóttir.
Ljósmyndir Fréttablaðið
Auglýsingar Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
ÁGÚST 2010
M atarferðir njóta nú vaxandi vinsælda og ekki aðeins meðal þeirra sem vilja
brydda upp á nýjungum heldur
gera fríið enn eftirminnilegra.
Víða er til dæmis hægt að slá
tvær flugur í einu höggi og bóka
sig í matar- og menningarferð-
ir með leiðsögn. Í New York er
boðið upp á slíka rúnta í nokkur
helstu og fjölbreyttustu hverfi
borgarinnar. Undirritaður fór í
einn slíkan um Greenwich Vill age
fyrir nokkru þar sem þátttakend-
um gafst færi á að kynnast sögu
þessa litríka bóhemahverfis, sjá
hvar Hollywood-stjörnur hafa
hreiðrað um sig og bragða í leið-
inni á öllu því besta sem er í boði,
bæði á veitingastöðum og í sæl-
keraverslunum. Svo skemmtilega
vildi til að í nokkrum þeirra feng-
ust íslenskar vörur og þar á meðal
skyr sem vakti mikla lukku meðal
viðstaddra.
Ferðir af þessu tagi eru kjörið
tækifæri til að öðlast betri inn-
sýn í menningu og sögu viðkom-
andi staða, hvort sem lagt er af
stað í tapas-leiðangur um Madr-
id eða ferðinni heitið í ostabúðir,
vínverslanir eða rómaða veitinga-
staði í París.
Sannkölluð sælkeraveisla
París er sjálfsagt sú evrópska
borg sem státar af flestum mat-
armörkuðum, þar sem úir og
grúir af hvers kyns kræsingum.
Allir eru þeir opnir um helgar og
sumir á virkum dögum að auki.
Marché couvert des Enfants rou-
ges er kjörið að heimsækja en
hann er elsti matarmarkaðurinn
í París. Annar gamall er Bour-
ough Market í Southwark í Lund-
únum, sem á rætur að rekja aftur
til daga Rómverja. Ráðlagt er að
fólk verji að minnsta kosti hálfum
degi þar, enda margt skemmtilegt
að skoða og upplifa. Sömu sögu
má segja um Mercat de la Boqu-
eria í Barcelona, en sú staðreynd
að helstu matreiðslumenn borgar-
innar safnast þar saman snemma
á laugardagsmorgnum til að gera
innkaup fyrir veitingastaðina er
vitnisburður um gæði hráefnisins,
auk þess sem þar eru ýmsir litlir
og góðir matsölustaðir sem vert
er að borða á.
Lært að elda þjóðlega rétti
Þeim sem hafa hug á að heimsækja
Mercat de la Boqueria gæti jafn-
framt þótt gaman að vita að sér-
stakur matreiðsluskóli er rekinn á
vegum markaðarins, þar sem þátt-
takendur læra eitt og annað sem
lýtur að spænskri matargerð. Mat-
reiðsluskólar eru vitanlega kjörn-
ir fyrir ferðalanga sem vilja ekki
aðeins hafa með sér heim minn-
ingar um góðan mat í fríinu, held-
ur geta beinlínis notið hans þegar
löngunin læðist að. Matreiðsluskól-
ar eru reknir víða um heim og við
DEKRAÐ VIÐ BRAGÐLAUKANA
FRAMHALD Á SÍÐU 4
Ferðalög geta snúist
um margt fl eira heldur
en heimsóknir á gömul
söfn eða letilegan dag á
ströndinni. Skipulagðar
matarferðir eða mat-
reiðslunámskeið undir
stjórn heimsþekktra
kokka í útlöndum geta
verið skemmtileg til-
breyting og jafnvel orðið
að spennandi ævintýri
sem skilur eftir sig bæði
ljúfar og ljúff engar minn-
ingar.
Til fundar við drauma
bernskunnar Ljósmynd-
arinn Emilie Fjóla Sandy opnar
innan skamms sýninguna Þegar
ég er stór í Lundúnum.
SÍÐA 2
Kafbátar
og kameldýr
Öðruvísi ferðamáti
víða um heim.
SÍÐA 6
2 FERÐALÖG
UPPÁHALDSHVERFIÐ: Amager, þar
sem ég bý. Maður getur ekki annað
en kunnað vel við sig þarna, meðal
annars þar sem besta ströndin er
skammt undan og með tilkomu
metro-kerfisins er stutt í allt.
FLOTTASTA VERSLUNIN: Gjafa-
vöruverslunin Inblik á Kristjánshöfn,
sem selur allt frá kertastjökum til
sólgleraugna. Svo er gaman að kíkja
í antíkverslanirnar á Nørrebro.
UPPÁHALDSVEITINGASTAÐUR:
Restaurant Schønnemann, sem er
besti smurbrauðsstaðurinn í borg-
inni. Maturinn er vel framreiddur,
þjónustan framúrskarandi góð og
andrúmsloftið þægilega afslappað.
UPPSKRIFT AÐ GÓÐU KVÖLDI:
Borgin býður upp á endalausa
möguleika. Ég færi út að borða á
Restaurant Fiat sem býður upp á
frábæran ítalskan mat og eftir það
í Konunglega leikhúsið, sem er
listaverk út af fyrir sig. Að svo búnu
kæmi til greina að kíkja á næturlífið
í Kødbyen, gamalt kjötvinnslusvæði
sem er verið að taka í gegn og
breyta í huggulegt kaffihúsa- og
næturklúbbahverfi. Þarna rekur Dóra
Takefusa til dæmis barinn Jolene.
HVAÐ KEMUR MEST Á ÓVART:
Hvað Kaupmannahöfn er endalaus
uppspretta menningar. Það er hrein-
lega alltaf eitthvað um að vera.
HEIMAMAÐURINN
Kaupmannahöfn
V
opnaleitin á flugstöðum fer í taugarnar
á mörgum. Að þurfa að afklæðast í upp-
hafi sumarfrísins í sal fullum af fólki með
flugstress í æðum er ekki það sem flest-
ir myndu kalla gott start. Auk þess hefur mörg-
um sárnað að þurfa að láta frá sér uppáhalds
nagla skærin sem bitu svo vel, rándýra ilmvatnið
og kókflöskuna sem átti að endast flugið á enda.
Langflestir gera sér svo sem grein fyrir því að
fyllsta öryggis þurfi að gæta og eru þakklátir fyrir
að öryggisverðir á flugvöllum vinni starf sitt vel.
En líklega er það sú staðreynd að margar af örygg-
iskröfunum hljóma eins og lélegur brandari, sem
fer hvað mest í taugarnar fólki.
Vissulega á fólk ekki að fá að ferðast með vopn,
sprengiefni, eldfima vökva, tærandi efni, eitur
og geislavirk efni. En þegar skilgreiningin á egg-
vopnum er farin að ná yfir plokkara er skilningur
margra á enda. Hvernig menn sjá fyrir sér að fólk
ætli að ræna flugvélum með plokkarann einan að
vopni hef ég aldrei skilið.
Þá er það hin yndislega regla um vökvann. Jú,
þú mátt taka með þér vökva, en ekki meira en 100
ml og skulu umbúðirnar samviskusamlega pakkað-
ar í plastpoka. Og hvað er með þennan plastpoka?
Hversu mikla vörn veitir hann? Ef ég væri bíræf-
inn hryðjuverkamaður með ætandi efni í 100 ml
brúsa í plastpoka ... hversu mikið mál væri það
fyrir mig að OPNA plastpokann í vélinni?
Sumir hafa reyndar þá samsæriskenningu að
reglan um vökvann hafi verið samin í samstarfi
við veitingasala á flugvöllum. Til að snúa á kerfið
hafa hagsýnar húsmæður tekið upp á því að taka
með sér tómar flöskur í gegnum öryggiseftirlitið
og fylla síðan á þær inná baði í fríhöfninni.
Kannski eru það þessar skrítnu reglur sem gera
það að verkum að margir fá töluvert út úr því
þegar öryggisvörðunum yfirsjást hlutir. Ég hef
heyrt ófáar sögur sagðar í glaðhlakkalegum tón
um hvernig fólk hafi óvart sloppið með hina ótrú-
legustu hluti í gegnum gegnumlýsingu. Menn hafi
þá verið of uppteknir við að þefa upp úr illa lykt-
andi skópörum meðan vasahnífar, naglaklippur og
annar stórhættulegur varningur rann óáreittur í
gegn.
Besta leiðin til að njóta upphafs ferðalagsins er
þó að líta á öryggishliðið eins og þreytandi verk á
borð við uppvask. Það er leiðinlegt ... en þarf að
klárast.
Sólveig Gísladóttir skrifar
ÖRYGGI Í PLASTPOKA
Þ
eim tókst að finna kjól sem er
líkur þeim sem Vigdís Finn-
bogadóttir var í á frægri mynd
frá níunda áratugnum. Ég sé
núna að það hæfir mér vel að vera for-
seti.“ Þetta eru ummæli höfð eftir söng-
konunni Hafdísi Huld, en mynd af henni í
hlutverki forseta Íslands verður til sýnis
á ljósmyndasýningunni Þegar ég er stór
sem verður opnuð í Lundúnum á fimmtu-
daginn.
Ljósmyndarinn Emilie Fjóla Sandy
sem er hálf íslensk og vinkona hennar,
grafíski hönnuðurinn Kamilla Weinhardt
standa að baki sýningunni sem verður
opnuð í Material galleríinu í Carnaby
Street í miðborg Lundúna. „Við spurðum
einstaklinga í skapandi greinum hvað
þeir vildu verða þegar þeir voru litlir.
Hugmyndin var að heimsækja þá í þeirra
umhverfi, annað hvort á vinnustofur
þeirra eða heimili, og taka myndir af
þeim klæddum í föt sem einkennir störf-
in,“ segir Emilie. „Ég hef tekið myndir af
Hafdísi Huld áður og hélt sambandi við
hana. Mig minnir að ég hafi upphaflega
hitt hana í tengslum við myndatöku hjá
Vikunni fyrir nokkrum árum.“
Á sýningunni eru myndir af tuttugu
og fimm einstaklingum. Auk Hafdís-
ar Huldar er fólk á borð við Mary Jane
Baxter, fréttamann á BBC, í hlutverk
Maríu úr Söngvaseið og Nicolas Roope
stjórnanda umboðsskrifstofunnar Poke
London sem bónda. „Þetta var gaman og
fólk naut þess að upplifa drauma bernsk-
unnar,“ segir Emilie.
Kamilla tekur við og útskýrir vinnu-
fyrirkomulagið. „Emilie tekur myndirn-
ar og ég er listrænn stjórnandi og stíl-
isti,“ segir hún og bætir við að vinna við
sýninguna hafi hafist í febrúar árið 2009.
„Ég býst við að við munum svo halda
áfram með þetta verkefni.“
En vildu einhverjir vera það sama?
„Það vildi svo heppilega til að fæstir
vildu vera það sama. Tveir menn vildu
verða prestar svo við klæddum þá upp á
mismunandi vegu. Þegar við byrjuðum
sagði fólk raunhæfa hluti eins og þjón-
ustustúlka eða flugfreyja. Svo varð þetta
skemmtilegra og einn vildi verða Tinni
og okkur Kamillu fannst sú hugmynd
skemmtileg.“
Sýningin verður opnuð 13. ágúst og
stendur til 27. ágúst. Nánari upplýsingar
má finna á www.wheniambig.com. - mmf
HAFDÍS HULD
SEM FORSETI ÍSLANDS
Mynd af íslensku söngkonunni Hafdísi Huld í hlutverki forseta Íslands prýðir meðal annars
veggi ljósmyndasýningarinnar Þegar ég er stór sem verður opnuð í miðborg Lundúna í næstu
viku. Hin hálfíslenska Emilie Fjóla Sandy og Kamilla Weinhardt standa að baki henni.
Hugmynd að heimsókn Kamilla Weinhardt og Emilie Fjóla Sandy höfðu samband við fólk í skapandi greinum og spurðu hvað það hefði viljað verða þegar það var
lítið. Til vinstri sést söngkonan Hafdís Huld bregða sér í hlutverk forseta Íslands. MYND/ÚR EINKASAFNI
STEFANÍA KRISTÍN
BJARNADÓTTIR
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is