Fréttablaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 35
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Helgina hafði Hallfríður ekki
skipulagt út í ystu æsar þegar
blaðamaður heyrði í henni. Þó
bjóst hún við að föstudagskvöld-
inu myndi hún verja í góðra vina
hópi. Í dag stendur hún vaktina í
versluninni Spúútnik á Laugavegi
og selur föt eftir vigt en þar stend-
ur nú yfir kílóamarkaður. „Það
verður örugglega brjálað að gera,“
segir hún og hlakkar til að drekka
í sig stemninguna frá Gleðigöng-
unni sem fer niður götuna í dag.
„Þetta verður massa gleði og við
ætlum að vera í „gay pride“-lit-
unum,“ segir Hallfríður glaðlega.
Hún hefur unnið í Spúútnik um
hríð og þykir frábært að vinna við
Laugaveginn. „Í kaffihléum getur
maður farið út og gert það sem
aðrir gera í fríum sínum.
Í kvöld heldur gleðin áfram en
fyrir liggja tvö partý. „Annars
vegar ætla ég í kveðjupartý og
hins vegar í velkomin heim partý,“
upplýsir hún og hlær. Gleðin má
þó ekki verða allt of mikil enda
er opið í Spúútnik á sunnudögum
og Hallfríður verður þar að venju.
„Nema ég fari í óvænta útilegu,“
segir hún glettin en Hallfríður
hefur verið æði iðin við að ferð-
ast í sumar. „Ég fór út í Flatey um
verslunarmannahelgina og síðan
á Snæfellsnesið,“ segir hún en
auk þess hefur hún í sumar farið
í hjólreiðaferð um Vestmannaeyj-
ar, í óvissuferð til Flúða, sumarbú-
staði og jafnvel til Spánar.
„Ég er mjög iðin manneskja og
slappa sjaldan af,“ upplýsir Hall-
fríður sem mun koma fyrir sjón-
ir almennings þann 3. september
næstkomandi þegar kvikmyndin
Sumarlandið verður frumsýnd.
Leiklistin heillar hinn nýútskrif-
aða Verzlunarskólanema og dreym-
ir hana um frama í þeim geira. „Og
ég geri alltaf það sem mig dreymir
um,“ segir hún ákveðin.
solveig@frettabladid.is
Kveður góðan vin og
býður annan velkominn
Hallfríður Þóra Tryggvadóttir situr sjaldan auðum höndum. Um helgina ætlar hún að tvinna saman leik
og starf með því að selja föt í kílóavís og gleðjast með samkynhneigðum á Laugaveginum.
Hallfríður Þóra ætlar í tvö partý í kvöld. Annað til að kveðja vin og hitt til að bjóða vin velkominn til landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LEYNDARDÓMAR VATNSHELLIS kallast skoðunarferðir
með leiðsögn sem farnar verða í Vatnshelli í þjóðgarðinum Snæ-
fellsjökli til 10. ágúst. Ferðir eru farnar allan daginn frá 10 til 17
og ekki þarf að panta sérstaklega í ferðir þennan tíma.
Lín Design - gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 - Sími 533 2220 - www.lindesign.is
ÚTSALAN Í
FULLUM GANGI
30% afsláttur af öllu í barnadeild
Kíktu á útsöluna í vefverslun www.lindesign.is
Opið í dag 10-16.
Opið: Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 11 - 15
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
Allt að
50%
afsláttur!
Pisa sett: Borð 170x100 m/gráu gleri,
4 stólar m/gráu áklæði verð áður kr. 139.500,-
verð nú kr. 83.700,- m/40% afsl.