Fréttablaðið - 07.08.2010, Page 43

Fréttablaðið - 07.08.2010, Page 43
LAUGARDAGUR 7. ágúst 2010 5 Hársnyrtir óskast! Stólaleiga eða verktakavinna. Upplýsingar veitir Særún Haukdal hársnyrtimeistari. Sparta • Laugarásvegi 1 • s. 553 1755 / 896 3963 Ertu góður forritari? Sérhæft fyrirtæki á sviði viðskiptalausna óskar eftir góðum forritara til starfa sem fyrst. Meginstarfssvið er hönnun og nýsmíði hugbúnaðar. Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu er nauðsynlegt. Reynsla af og áhugi á viðskiptakerfum er kostur. Um framtíðarstarf er að ræða. Vinsamlega sendið umsókn og ferilsskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur á thorsteinn@sjonarrond.is Hárgreiðslusveinn/meistari óskast! Hárgreiðslustofa Hrafnhildar Hraunbæ 119 sími 567 1544 / 862 8443 • hh12@internet.is Erum við að leita að þér? Nánari upplýsingar veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is. Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 15. ágúst nk. Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Actavis hf. er eitt af dótturfyrirtækjum samstæðunnar og er framleiðslueining fyrirtækisins hér á Íslandi. Fyrirtækið er staðsett í Hafnarfirði og hjá okkur starfa um 300 starfsmenn, flestir á framleiðslu- og gæðasviðum. Störf í pökkunardeild Í pökkunardeild fer fram vélakeyrsla í kartona- og þynnupökkun, uppgjör eftir vinnslu og skjalfesting. Einnig tæknileg umsjón/aðstoð við uppsetningu auk breytinga og stillinga á pökkunarlínum. Unnið er á þrískiptum vöktum. Störf í töfludeild Í töfludeild fer fram lyfjablöndun sem felur í sér vigtun, blöndun og frumvinnslu hráefna. Einnig sér töfludeild um framleiðslu á töflum og hylkjum. Í starfinu felst samsetning á vélum, skýrslugerð og skjalfesting. Unnið er á þrískiptum vöktum. Ef þú ert... hress og jákvæð/ur stundvís samviskusöm/samur og getur tileinkað þér nákvæm vinnubrögð verklagin/n með grunnþekkingu í ensku góð/ur í að vinna í hópi Starfsmaður í sýnatökuhóp Sýnatökuhópur gæðatryggingardeildar hefur það megin hlutverk að sjá um framkvæmd sýnatöku og umsýslu sýna af öllum aðföngum sem notuð eru við framleiðsluna. Helstu verkefni: sýnataka af hráefnum, pökkunarefnum, millivöru og vatni útprentun rannsóknarskráa rannsókn á pökkunarefnum skoðun á millivöru skráning og varsla sýna samantekt gagna á fullbúnar vörur Starfsmaður í tæknideild Tæknideild er hluti af starfsemi Actavis hf. og sér um viðhald og eftirlit með tækjabúnaði í verksmiðju og rannsóknarstofu fyrirtækisins, sem staðsett er í Hafnarfirði. Unnið er eftir skriflegum leiðbeiningum og öll viðhaldsvinna er skráð í þjónustuskýrslur/viðhaldsforrit. Um er að ræða vaktavinnu á tvískiptum vöktum, auk bakvakta. Helstu verkefni: fyrirbyggjandi viðhald, viðgerðir, eftirlit og breytingar á tækjabúnaði framleiðslu- og rannsóknarsviðs skiptingar á milli vörutegunda og uppstart á pökkunarlínum þátttaka í uppsetningu á fyrirbyggjandi viðhaldi og nýjum tækjabúnaði þátttaka í gildingarvinnu og kvörðunum á tækjabúnaði Actavis ...þá bjóðum við snyrtilegan og öruggan vinnustað fjölskylduvænt starfsumhverfi góðan starfsanda gott mötuneyti fræðslu og þjálfun iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga og lækni sem sinna heilsuvernd starfsmanna árlegan styrk til íþróttaiðkunar auk fræðslustyrks öflugt starfsmannafélag Hæfnis- og menntunarkröfur: stúdentspróf eða nám í lyfjatækni þekking á starfsemi lyfjaiðnaðar er kostur góð þjónustulund og skipulagshæfni góð ensku-, íslensku- og tölvukunnátta Hæfnis- og menntunarkröfur: vélfræðimenntun eða sambærileg menntun reynsla af viðgerðum á vélbúnaði, stýringum og rafbúnaði er nauðsynleg nákvæmni, snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum góð ensku- og tölvukunnátta

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.