Fréttablaðið - 07.08.2010, Page 56
6 FERÐALÖG
Hægt er að fi nna óvenjulegan og furðulegan ferðamáta víða um heim. Meðal annars er hægt að fara í ferð
með lestinni sem var sögusvið bókar Agöthu Christie Austurlandahraðlestin. Þá er einnig hægt að fara í
ferð á gömlum hestvagni eða fá sér far með fílum og úlföldum. Gaman gæti einnig verið að kíkja niður á
kóralrif á sjávarbotni í kafbáti. - mmf
FURÐULEGUR
FERÐAMÁTI VÍÐA UM HEIM
Um jörð og loft Kameldýr eru notuð sem fararskjótar í Afríku og Asíu. Ferðir á kameldýrum
geta verið skemmtilegar en hafa verður í huga að þær geta einnig verið talsvert erfiðar.
Annar dagur ferðalagsins er oftast erfiðastur og því er mælt með því að ganga nokkrar
vegalengdir. Ferðir í loftbelgjum geta einnig verið skemmtilegar. Þær hafa tíðkast frá átjándu
öld. Þá voru þeir knúnir heitu lofti en í dag er helíum notað. NORDICPHOTOS/AFP
Tuk-tuk Tuk-tuk er
vinsælt farartæki í
Asíu. Þetta er vélknúið
farartæki sem notað
er til einkanota eða
til leigu. Þeir fást
til leigu í Hollandi
og á tímabili var
einnig hægt að leigja
þá í Bretlandi en
fyrirtækið sem gerði
þá út hætti árið 2008.
Nordicphotos/afp
Neðansjávarlíf Spennandi getur verið að fara í ferðir með kafbát
og auðvelt er að skoða dýralífið neðansjávar á þann hátt. Í sumum
ferðum er stoppað á mismunandi dýpi þar sem hægt er að skoða
torfur fiska og jafnvel heilu kóralrifin eða yfirgefin skipsflök.
NORDICPHOTOS/AFP
Upplifun Afríka og Asía eru tilvaldir staðir til þess að fara á fílsbak.
Hátt uppi á allt að sex tonna dýrinu á fjörutíu kílómetra hraða er
upplifun. NORDICPHOTOS/AFP
Ferð með sögu Ferð með Orient Express- lestinni hefur alltaf verið
eitthvað meira en venjuleg lestarferð. Hver vagn lestarinnar á sér
sína sögu en nokkrir vagnanna sem eru á ferðinni núna voru á hinni
upphaflegu leið. Lestin er sögusviðið í sögu Agöthu Christie Austur-
landahraðlestinni. NORDICPHOTOS/AFP
Húsbátaferðir Ferðir í húsbátum eru vinsælar í Kerala-fylki syðst
á Indlandi. Óteljandi lón, vötn, skurðir, árósar og óseyrar í 44 ám
búa til níu hundruð kílómetra langa ferð. Upphaflega voru bátarnir
kallaðir Kettuvallam sem þýðir bátur sem er bundinn saman með
trébitum. NORDICPHOTOS/GETTY
Bórinn vinsæll Um 100 þúsund
manns geta fengið sæti í fjórtán
stórum og fimmtán minni bjórt-
jöldum á októberfest.
NORDICPHOTOS/AFP
MILLJÓNIR LÍTRA
AF BJÓR TEYGAÐAR
Októberfest í München er að öllum líkindum stærsta hátíð heims.
Uppruna hátíðarinnar má rekja til brúðkaups Ludwigs krónprins Bayern
og Theresu prinsessu þann 12. október 1810. Í tilefni brúðkaupsins var
efnt til kappreiða á stóru engi utan borgarmúranna sem eftir það var
nefnt Theresienwiese. Til að kæta borgara Bæjaralands var ákveðið að
endurtaka leikinn að ári og hefur hefðin viðhaldist upp frá því.
Theresienwiese er 42 hektarar að stærð og meðan hátíðahöldin standa
yfir eru þar fjórtán stór bjórtjöld sem taka frá 6.000 upp í 12 þúsund
manns í sæti. Þá eru þar fimmtán smærri tjöld og stórt tívolí. Hátíðin
er bæði vinsæl meðal íbúa München og ferðamanna alls staðar að úr
heiminum, allt frá Kína til Íslands. Talið er að um sex milljónir manna
heimsæki októberfest á hverju ári og teygi sex til sjö milljónir lítra af
bjór á þeim rúmu tveimur vikum sem hátíðin stendur.
Þrátt fyrir nafnið októberfest fer hátíðin mestmegnis fram í september.
Ástæðan er sú að vegna kulda var árið 1872 ákveðið að færa hátíðina
fram. Nú hefst hún fyrsta laugardag eftir 15. september og stendur
fram á fyrsta sunnudag októbermánaðar.
Margar hefðir hafa skapast í kringum október-
fest. Til dæmis fá aðeins hefðbundnu brugghúsin
í borginni leyfi til að selja bjórinn sinn en þau eru:
Spaten-Franziskaner-Bräu, Augustiner, Paulaner,
Hacker-Pschorr, Hofbräu og
Löwenbräu. Ljóst er að
enginn ætti að fara þyrstur
af októberfest enda aðeins
hægt að kaupa eina stærð
af bjór. Stóran.FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF.
Sími 511 1515
Heimasíða: www.ferdir.is
Netfang: outgoing@gjtravel.is
Nýtt á ferdir.is
• Haustferð til Brussel
og Brügge 10.–13.09. 2010
Brussel er heimsborg að fornu og nýju,
sem hefur upp á margt skemmtilegt að
bjóða og Brügge er einstaklega heillandi
og fögur borg.
Verð á mann frá 89.900,-
• Ferð á IAA atvinnubifreiða-
sýinguna í Hannover
26.–29. 09. 2010
Ein stærsta sýning sinnar tegundar, haldin
annað hvert ár.
Verð á mann frá 96.950,-
• Aðventuferð til Heidelberg
03.–06.12. 2010
Á aðventunni er einstök jólastemming í
ýmsum þýzkum borgum og Heidelberg er
þar engin undantekning. Ævintýralegur
jólamarkaður og ljósadýrð undirstrika
fegurð þessarar heillandi borgar.
Verð á mann frá 99.800,-
Öll verð eru miðuð við gengi og forsendur
30.07. 2010
Nánari upplýsingar fást hjá utanlandsdeild
okkar eða heimasíðunni www.ferdir.is