Fréttablaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 60
32 7. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
1 NESJAVELLIR
Adrenalíngarðurinn
Í rúmlega hálftíma fjar-
lægð frá Reykjavík, ef ferð-
ast er með bíl, er Adrenalín-
garðurinn sem býður upp á
fjölbreyttar þrautir. Meðal
þess sem þar er að finna er
risarólan, þar sem þátttak-
endur fljúga í gegnum loft-
ið úr tólf metra hárri rólu
og ætti það að tryggja
að adrenalínið flæði um
líkamann, en þó er hægt
að velja hversu hátt upp í
róluna er farið. Staurinn er
einnig vinsæll, en takmark-
ið með honum er að standa
uppréttur efst á staurnum
og stökkva svo af honum út
í loftið. Þá reynir Hálofta-
brautin á andlegan styrk
en minna á líkamlegan, þar
sem þáttakendur eru festir í
öryggisvír á meðan á þraut-
unum stendur. Allar upplýs-
ingar um opnunartíma, verð
og bókanir er að finna á vef-
síðunni adrenalin.is, en þar
má einnig finna upplýsing-
ar um fleira sem fyrirtæk-
ið býður upp á eins og jökla-
göngu og ísklifur, hella- og
hjólaferðir og óvissuferðir
af ýmsu tagi.
2 VESTMANNAEYJAR
Sprangan
Iðkun þjóðaríþróttar Vest-
mannaeyinga, eins og hún
er gjarnan kölluð, fer fram
niðri við höfnina á Heima-
ey. Fólk á öllum aldri ætti
að prófa að spranga, en
óvönum er þó ráðið frá því
að reyna að spranga ofan af
Almenningi, klettasyllu sem
er um þrjá metra frá jörðu.
Til að mynda ættu flest börn
að hafa gaman af því að
spranga af lægstu syll-
unni, og margir heima-
menn jafnt sem gestir
Vestmannaeyja hafa
náð töluverðri færni á
því sviði.
3 DALVÍKURBYGGÐ
Lasertag í Brúarhvammsreit
Við Þorvaldsdalsá er svæði
þar sem boðið er upp á las-
ertag. Leikurinn felst í því
að þátttakendur setja á sig
ennisband sem tengt er
byssum, sem hafa drægni
upp á 150 til 170 metra, og
reyna svo að hitta andstæð-
inginn. Í leiknum reynir oft
talsvert á þol og leikni þátt-
takenda, en leikurinn er
hættulaus og enginn sárs-
Sprangað og spriklað um landið
Mörgum, jafnt ungum sem öldnum, þykir gaman að ærslast og skiptir þá litlu hvort um er að ræða skipulagðar ferðir í þeim til-
gangi eður ei. Á Íslandi finnast margir spennandi staðir sem bjóða upp á fjör og hasar og Fréttablaðið tók saman nokkra slíka.
■ Á Korputorgi í Grafarvogi má bæði finna
Krakkahöllina, þar sem yngstu fjölskyldu-
meðlimirnir geta hossast í hoppukastölum
daglangt fyrir hóflegan aðgangseyri, og
Gokart-braut fyrir þá sem eldri eru.
■ Ekki er úr vegi að leita upplýsinga á
veraldarvefnum um hentugar klettaferðir
fyrir fjölskyldur, en þær bjóða oft og tíðum
upp á mikil ævintýri.
■ Einnig ætti engum að þurfa að leiðast
á baðströndinni í Nauthólsvík, þar sem
gnótt er af fjölskylduvænni afþreyingu.
Einnig má mæla með ströndinni við
Skarðsvík á Snæfellsnesi, sem hefur verið
lýst sem leikvelli af náttúrunnar hendi. Þar
má klifra í klettunum, fara í feluleiki eða
í skoðunarferðir um hraunbreiðuna við
ströndina.
■ Þá verður líklega ekki nokkur maður
svikinn af því að ganga bak við Seljalands-
foss og Gljúfrafoss undir Eyjafjöllum. Þó
er ráðlegast að klæðast góðum skóm eða
stígvélum og regnfötum.
■ Ekki má gleyma hvalaskoðunarferðunum
sem víða er boðið upp á. Slíkar ferðir
bjóða kannski ekki upp á mikla líkamlega
áreynslu, en þeim mun fleiri sjónræn
ævintýri ef vel tekst til.
Nokkrir staðir sem mæla má með fyrir þá sem þyrstir í örlítil ærsl og atgang í sumar:
auki fylgir því að vera „skot-
inn“. Lasertag er því öllum
opið, ungum jafnt sem eldri.
Annars staðar í byggðinni,
að Krossum á Árskógs-
strönd, er boðið upp á paint-
ball, eða litbolta, en í þeim
leik þurfa þátttakendur að
vera orðnir átján ára nema
forráðamenn gefi sérstakt
leyfi þá komast fimmt-
án ára inn. Upp- lýs-
ingar fást á
hittu.net.
4 MÝVATN
Grjótagjá
Ekki þarf nauðsynlega að
fylgja þrautskipulagðri
dagskrá þegar ætlunin er
að ærslast svolítið og hafa
spennu að leiðarljósi í ferða-
lögum. Til að mynda má mæla
með ævintýralegu umhverf-
inu við Grjótagjá, einn þekkt-
asta helli landsins, á milli
Reykjahlíðar og Dimmu-
borgar í Mývatnssveit. Þótt
ekki sé lengur hægt
að baða sig í gjánni
vegna hita er gaman
að ganga niður í gjána
og verða vitni að því dul-
arfulla andrúmslofti sem
þar ríkir. Gæta verður þó
að því að fara varlega með
yngstu börnin, því þarna er
bratt niður að vatninu.
5 SKAGAFJÖRÐUR
Flúðasigling á Vestari-Jök-
ulsá
Fyrir þá sem eiga börn
sem eru tólf ára eða eldri
er margt vitlausara en að
taka sér fjölskylduferð á
hendur í Vestari-Jökulsá í
Skagafirðinum, í gegnum
töfrandi gljúfur og fallegt
landslag. Hvort sem þátt-
takendur kjósa að gæða sér
á kakói með vatni sem sýður
við árbakkann, fleygja sér
af kletti ofan í ána, fara í
vatnsslag eða einfaldlega
njóta þess að fljóta niður
ána er nokkuð víst að um
ævintýralegan dag er að
ræða. Einnig er boðið upp á
flúðasiglingar á Hvítá á Suð-
urlandi og öllu meira krefj-
andi ferðir á Austari-Jökul-
sá, og víðar.
6 STOKKSEYRI
Kajakferðir
„Stokkseyrarbakki“ eins
og Stuðmenn nefndu þorpin
við Suðurstöndina af sinni
alkunnu snilld er rómað
svæði vegna litríks fugla-
lífs og fjölbreytts gróðurs
sem þar þrífst, sérstak-
lega í kringum vatnasvæð-
ið og einnig í fallegri fjör-
unni við Stokkseyri. Þarna
standa til boða ýmsar teg-
undur kajakferða,
allt frá háftímalöngu
svamli upp
í tveggja
klukkustunda
sjóferðir, allt
eftir smekk hvers og eins.
Við Stjörnusteina á Stokks-
eyri er einnig að finna
Töfragarðinn, fjölskyldu-
og skemmtigarð með leik-
tækjum og ýmsum dýrum.
Þar er aðgangseyrir fimm
hundruð krónur og frítt inn
fyrir þriggja ára og yngri.
7 REYKJAVÍK
Skemmtigarðurinn í Graf-
arvogi
Í Skemmtigarðinum í Graf-
arvogi, ekki langt frá Gullin-
brú, er að finna margs konar
skemmtun og ættu flestir
fjölskyldumeðlimir að finna
þar eitthvað við sitt hæfi. Nú
stendur til að opna í garðin-
um tvo átján-holu ævintýra
minigolfvelli og svokall-
aðan frum-
skógarvöll
innanhúss,
en fyrir var
meðal annars
þrauta-
braut,
las-
ertag, klifur-
turn, frisbí golf,
strandblak og
hoppukastalar.
8 SKÁLAFELL
Hjólreiðavangur
Á morgun, sunnudaginn
8. ágúst, verður opnaður á
skíðasvæðinu í Skálafelli
hjólreiðavangur, eða Bike-
Park upp á ensku, fyrir
fjallahjólreiðar og fleira.
Þar verður hægt að nota
stólalyftuna til að komast
upp á fjallstopp og hjóla
niður, en á neðri hluta svæð-
isins verða Dirt-Jump pg
BMX-stökkpallar. Til stend-
ur að hafa svæðið opið um
helgar fram á haust, eða á
meðan veður leyfir. Hjól-
reiðavangurinn ætti að vera
gósenland fyrir áhugamenn
um hjólreiðar, en líklegt er
að svæðið teljist full gróft
fyrir yngstu börnin til að
byrja með.
9 ÚLFLJÓTSVATN
Útilífsmiðstöð skáta
Tjaldsvæðið að Úlfljótsvatni
er opið almenningi allt sum-
arið og er kjörinn vettvang-
ur fyrir fjölskyldur sem
vilja skemmta sér
saman. Þar má fara
í kanóferðir, vatns-
byssuslag og vatna-
safarí, auk þess sem hár
klifurturn er á svæðinu
og möguleiki á að komast í
kassabílarallí. Þá er einn-
ig hægt að leigja báta til
siglinga á sjálfu vatn-
inu.
1
2
3
7
6
8
9
45