Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.08.2010, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 07.08.2010, Qupperneq 70
42 7. ágúst 2010 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is Boxarinn óhugnanlegi, Mike Tyson á nú yfir höfði sér kæru frá fyrrver- andi boxara sem vill meina að Tyson hafi stolið gælunafni „Iron Mike“ af honum fyrir 25 árum síðan. Boxarinn gamli, Mike Landrum, hefur farið fram á 115 milljón doll- ara lögsókn gegn Tyson, þar sem hann heldur því fram að hann hafi búið gælunafnið til handa sjálfum sér árið 1983. En Tyson hóf feril sinn ekki fyrr en árið 1985. Landrum heldur því fram að hann eigi vörumerki Járnmannsins, og vill meina að „hann hafi ekki feng- ið tækifæri á almennilegum bar- dögum eða styrkjum út af nafna- ruglinu.“ Fréttafulltrúi Tyson segist ekki hafa neinar áhyggjur af lögsókninni og sagði í viðtali að „lögfræðingar Tysons hafi ekki enn séð gögnin, en þeir eru sannfærðir um að málið eigi sér góða skýringu.“ Segir Tyson hafa stolið gælunafninu ÓHUGNANLEGUR BOXARI Gamall box- ari heldur því fram að Tyson hafi stolið gælunafni sínu fyrir 30 árum síðan. Hljómsveitin Miri heldur útgáfu- tónleika í félagsheimilinu Herðu- breið á Seyðisfirði í kvöld í tilefni af plötu sinni Okkar sem kom út í júní. Ásamt Miri koma hljóm- sveitirnar Sudden Weather Change og hin seyðfirska Broken Sound fram á tónleikunum. Unnsteinn úr Retro Stefson þeytir skífum að þeim loknum. Platan Okkar var unnin í samstarfi við upptöku- stjórann Curver Thoroddsen og er hún prýdd ýmsum gestaleikurum. Aðrir útgáfutónleikar verða haldn- ir í Reykjavík 28. ágúst. Miri fagnar nýrri plötu MIRI Hljómsveitin Miri heldur útgáfutón- leika í kvöld. Lundaskoðunarbáturinn Skúlaskeið er líklega litrík- asti báturinn við Reykjavík- urhöfn um þessar mundir, en hann var málaður í öllum regnbogans litum í tilefni Hinsegin daga. „Ég hef gaman af því að mála og það lá beinast við að skreyta bát- inn aðeins fyrir helgina. Þetta tók enga stund og báturinn hefur vakið nokkra athygli meðal manna,“ segir skipstjórinn Sævar Jens Haf- berg. Hann málaði lundaskoðunar- bátinn Skúlaskeið í öllum regnbog- ans litum í tilefni Hinsegin daga sem fara fram um þessar mundir. Skúlaskeið er einn elsti farþega- bátur landsins og siglir með ferða- menn út í Akurey og Lundey þar sem hægt er að skoða fjölmenna lundabyggð. Áður var báturinn notaður til að ferja fólk til og frá Viðey og dregur hann nafn sitt af Skúla fógeta í Viðey. Svævar segist hafa fengið góð viðbrögð frá þeim ferðamönnum sem hafa siglt með honum en segir hina sjómennina við höfnina ekki jafn hrifna af uppátækinu. „Þeir hafa gert svolítið grín að mér, en ég svara þeim bara á móti og segi þá augljóslega ekki nógu örugga með sjálfa sig og þá hætta þeir,“ segir Sævar hlæjandi og viður- kennir að Skúlaskeið sé samkyn- hneigðasti báturinn við bryggjuna þessa dagana. „Farþegarnir eru flestir erlend- ir ferðamenn og það eru ekki allir sem þekkja regnbogafánann en finnst þó báturinn fallegur svona marglitur, ég bendi þeim þá á að þetta sé gert í tilefni Hinsengin daga.“ Spurður hvort liturinn fái að halda sér eftir helgina segir Sævar það enn óákveðið. „Ég hef ekkert spáð í það en ég reikna nú með því að hann verði málað- ur hvítur aftur einhvern tímann eftir helgi.“ Inntur eftir því hvort hann ætli að taka þátt í gleðigöng- unni í dag segist Sævar þurfa að vinna. „Kannski nær maður að taka einn hring um bæinn, annars kemur skrúðgangan svo neðarlega og sumir koma alla leið niður að bryggju,“ segir hinn litaglaði skip- stjóri að lokum. sara@frettabladid.is Skúlaskeið hommalegasti báturinn við bryggjuna Stuttmyndin Knowledgy eftir Hrefnu Hagalín og Kristínu Báru Haralds- dóttur verður frumsýnd á Alþjóð- legri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, í haust. Leo Fitzpatrick úr kvikmynd- inni Kids og sjónvarpsþáttunum The Wire leikur aðalhlutverk- ið ásamt Ingvari E. Sigurðssyni og Nínu Dögg Filippusdóttur. Myndin er byggð á handriti Hug- leiks Dagssonar og með tónlist Krumma Björgvinssonar. Um er að ræða metnaðarfullt lokaverkefni úr Kvikmyndaskóla Íslands en Hrefna og Kristín útskrif- uðust þaðan í vor. Þær fengu hverja stjörnuna á fætur annarri til liðs við sig við gerð myndarinnar. Þar ber helstan að nefna bandaríska leikar- ann Leo Fitzpatrick sem fer með aðal- hlutverkið. Margir muna eflaust eftir honum úr hinni umdeildu kvikmynd Kids, þar sem hann fór með hlutverk aðalsöguhetjunnar Telly. Þá hefur hann einnig leikið í sjónvarpsþáttunum The Wire, sem mikið hefur verið rætt um hér á landi að undanförnu. Knowledgy er kolsvört kómedía sem fjallar um skiptinemann Michael frá Nýfundnalandi sem stundar nám í kvik- myndaskóla og leigir herbergi hjá pari í Reykjavík. Í þeim tilgangi að ganga í bandarískan sértrúarsöfnuð kallar íslenska parið til hjón frá Los Angeles. Michael fær leyfi til að gera heimildar- mynd um vígsluna inn í sértrúarsöfnuð- inn en flækist í kjölfarið í afar undar- lega atburðarrás. Myndin hlaut tvenn verðlaun við útskrift frá Kvikmynda- skólanum nú í vor, sem besta myndin og fyrir bestu leikstjórn/framleiðslu. Íslensk stuttmynd á RIFF>EKKI BARBÍ LENGUR Leik- og söngkonan Jessica Simpson er hætt að reyna að líta út eins og hin full- komna Barbí-týpa. „Við erum allar með það á heilanum að líta út eins og hin fullkomna Barbí en það þarf ekki alltaf að vera fal- legt. Aðalmálið er að vera sáttur við sjálfan sig,“ sagði Simpson. LITAGLAÐUR Skipstjór- inn Sævar Jens Hafberg málaði lundaskoðun- arbátinn Skúlaskeið í öllum regnbogans litum í tilefni Hinsegin daga. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N KNOWLEDGY Nína Dögg Filippusdóttir leikur í stuttmyndinni Knowledgy. NÝJAR HAUSTVÖRUR FRÁ OLSEN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.