Fréttablaðið - 07.08.2010, Page 78
50 7. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Pepsi-deild kvenna
Valur-Þór/KA 3-0
1-0 Rakel Logadóttir (30.), 2-0 Helga Sjöfn
Jóhannesdóttir (45.), 3-0 Hallbera Guðný
Gísladóttir (72.)
Grindavík-Afturelding 4-1
0-1 Victoria Charnley (9.), 1-1 Rachel Furness
(46.), 2-1 Shaneka Gordon (65.), 3-1 Sara Hrund
Helgadóttir (74.), 4-1 Anna Þórunn Guðmunds
dóttir (88.)
Fylkir-FH 0-0
Haukar-Stjarnan 2-2
1-0 Megan Snell, 1-1 Katie McCoy, 1-2 Laura King,
2-2 Megan Snell.
Stig efstu liða: Valur 32, Breiðablik 26, Þór/KA
25, Fylkir 23, Stjarnan 21, KR 21, Grindavík 14.
1. deild karla
ÍA-Leiknir R. 0-1
0-1 Kjartan Andri Baldvinsson (52.)
ÍR-HK x-x
1-0 Björn Viðar Ásbjörnsson (29.), 2-0 Elías Ingi
Árnason (83.), 2-1 Samúel Arnar Kjartansson
(90.).
Upplýsingar um markaskorara eru fengar frá
netsíðunni fótbolti.net.
ÚRSLIT Í GÆR
> Magni fer ekki í Snæfell
Magni Hafsteinsson var orðaður við Íslandsmeistaralið
Snæfells í sumar en nú er ljóst að hann
mun ekki spila með Snæfelli eins og
hann gerði á árunum 2004 til 2009.
Magni vinnur sem lögreglumaður á Sel-
fossi í sumar og er að leita sér að vinnu í
vetur. Magni spilaði með nýliðum Fjölnis
síðasta vetur og það eru mestar líkur á
að hann spili áfram með Grafarvogsliðinu
en hann er þó ekki búinn að ganga frá neinu.
Magni var með 11,6 stig og 6,6 fráköst með
Fjölni síðasta vetur og fór þá fyrir ungu liði sem
var nálægt því að komast í úrslitakeppnina.
Logi Gunnarsson gekk í fyrrakvöld frá tveggja ára samningi við Solna
Vikings en fyrir í sænsku deildinni eru Hlynur Bæringsson og Jakob
Örn Sigurðarson sem spila með Sundsvall Dragons og Helgi
Már Magnússon gæti verið áfram í herbúðum Solna-liðsins
eins og á síðasta tímabili.
„Þetta er óvenju snemmt hjá mér að vera búinn að
ganga frá mínum málum,“ segir Logi sem fagnar
því nú þar sem hann er kominn með fjölskyldu
en Logi á tvö lítil börn, 2 ára og 10 mánaða. „Það
var kannski öðruvísi fyrir nokkrum árum þegar við
vorum bara tvö ein. Við erum mjög sátt og sérstak-
lega þar sem þetta er tveggja ára samningur. Það gefur
ákveðið öryggi að vera með vinnu næstu tvö árin,“ segir
Logi. „Gamli þjálfarinn minn hjá TOPO í Finnlandi gerði
þá að meisturum og ég fékk aðeins innsýn inn í klúbbinn
í gegnum hann. Hann talaði mjög vel um liðið og
sagði mér að þeir stefndu alltaf hátt,“ segir Logi og
hann telur að sænski boltinn henti sér vel. „Ég held að sænski bolt-
inn svipi til finnska boltans. Ég er búinn að vera í Finnlandi og líkaði
mjög vel þar,“ segir Logi.
„Ég held að fyrsti leikurinn minn sé þegar Jakob og Hlynur koma
í heimsókn til okkar með Sundsvall. Það verður gaman og ég hef
aldrei á þessum níu árum sem atvinnumaður verið með Íslend-
ing í deildinni minni,“ segir Logi en hann átti möguleika
á því að fá samning í öðrum löndum líka en það gerði
útslagið að Svíarnir buðu honum tveggja ára samning.
„Þeir sýndu mér mjög mikinn áhuga og ég fann vel fyrir því.
Ég ræddi líka við bæði Jakob og Helga og þeir töluðu vel um
þetta allt saman,“ segir Logi en það eru spilaðir margir leikir í
Svíþjóð.
„Ég kynntist því í Finnlandi og mér fannst það mjög gaman. Það
er stundum lýjandi að vera að spila níu til tíu mánuði í þessum
Evrópulöndum og vera alltaf að bíða alla vikuna eftir leik. Það er
fínt að æfa minna og spila meira,“ sagði Logi að lokum.
LOGI GUNNARSSON: GERÐI TVEGGJA ÁRA SAMNING VIÐ SÆNSKA STÓRLIÐIÐ SOLNA VIKINGS
Í fyrsta sinn í deild með öðrum Íslendingum
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Bílar:
RS – rally sport
OS – ofur sport
TS – true street, drag radial
TD – true street, DOT
HS – heavy street
DS – door slammer
OF – opinn flokkur
Bracket
Hjól:
Standard-flokkur
Modified
Opinn flokkur
Aðgangseyrir 1.000 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri
í fylgd með fullorðnum
Svæðið opnað kl. 11 - Keppni hefst kl. 14
REYKJANESBRAUT
K
VA
R
TM
ÍLU
B
R
A
U
T
B
ÍLA
-
STÆ
Ð
I
ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK
K
R
Ý
S
U
V
ÍK
U
R
V
E
G
U
R
ÁLFHELLA
R
A
U
Ð
H
E
L
L
A
IP
A
IP
A
PI
PA
PI
PA
PI
P
P
RRR
\\\\
BW
A
W
A
W
A
A
TB
W
A
AA
TB
W
A
W
A
W
A
W
A
BWTB
W
TBTTT
••
ÍA
S
ÍA
S
ÍAASÍ
AÍ
S
ÍAAAS S
••••
5555
18
5
18
5
01
8
10
18
10
11
11
7777777
Skeljungur og Kvartmíluklúbburinn kynna:
UMFERÐ
KVARTMÍLU
ÍSLANDSMÓTSINS Í
Sunnudaginn 8. ágúst
FÓTBOLTI „Þvílíkt kvöld! Þetta er
frábært,“ sagði Freyr Alexanders-
son, þjálfari Vals, eftir að hans lið
vann öruggan sigur á Þór/KA í topp-
slag Pepsi-deildar kvenna 3-0. Gleði
Freys var tvöföld en strax eftir leik
fékk hann þær fréttir að félagar
hans í Leikni hefðu landað þrem-
ur stigum í toppbaráttu 1. deildar
karla.
Sigur Valskvenna í gær var ansi
öruggur og eftir að þær komust yfir
var í raun aldrei spurning hvern-
ig leikurinn færi. Gestirnir fengu
reyndar tvö dauðafæri til að kom-
ast inn í leikinn í stöðunni 2-0 en
í bæði skiptin varði María Björg
Ágústsdóttir frábærlega gegn Mat-
eju Sver.
„Við erum með markvörð til að
verja og hún er best á landinu í
einn á einn stöðu, sennilega í Norð-
ur-Evrópu líka. Við þökkum fyrir
hennar framlag, hún var frábær,“
sagði Freyr en allt annað var að sjá
til Valsliðsins frá síðasta leik gegn
Fylki. „Við vorum miklu betri aðil-
inn í dag og svöruðum fyrir skit una
á Árbæjarvelli.“ Valsliðið er komið í
ansi sterka stöðu eftir þessi úrslit og
þarf að misstíga sig ansi illa til að
missa af Íslandsmeistaratitlinum.
Freyr heldur sér samt alveg á jörð-
inni. „Þetta skref var eitt af átján,
svo er það bara næsti leikur.“
Valur mætir Stjörnunni í næstu
tveimur leikjum en sá síðari er
bikarúrslitaleikur. „Það verður
skemmtilegt. Það er ný upplifun
að lenda í þessum leikjum á þess-
um tíma og það verður bara spenn-
andi verkefni. Ef liðið er svona gírað
erum við til í hvað sem er.“
Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Þórs/
KA, var ekki sammála undirrituðum
í því að hennar lið hafi verið algjör-
lega undir í leiknum. „Ég er hunds-
vekkt eftir þennan leik. Við feng-
um alveg færi til að skora í þessum
leik og áttum að nýta þau. Það hefur
verið okkar vandamál í sumar að
klára færin,“ sagði Rakel.
„Leikirnir gegn toppliðunum eru
þeir mikilvægustu en við töpuðum
báðum leikjunum gegn Val.“
elvargeir@frettabladid.is
Valskonur eru komnar með sex stiga forskot á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir 3-0 sigur á Þór/KA:
Svöruðum fyrir skituna í Árbænum
FYRSTA MARKINU FAGNAÐ Rakel Logadóttir kom Val í 1-0 en hún missti af Fylkis-
leiknum vegna meiðsla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI