Fréttablaðið - 13.08.2010, Page 34
6 föstudagur 13. ágúst
Alls konar Samfestingarnir í Nostalgíu eru af hinum ýmsu gerð-
um - stuttir og síðir, fínir og hversdagslegir, einlitir og skræpóttir.
tíðin
✽ líf í tuskunum
Í gærkvöldi var haldin heljarinnar veisla í Nostalgíu á Laugavegin-
um, til að fagna komu nýrra klæða
og haustsins. Það má gera ráð fyrir
því að þaðan hafi margar stelpur
snúið með eins og einn samfesting
í poka. Dagný Berglind Gísladóttir,
verslunarstjóri í Nostalgíu, segir að
hálfgert samfestingaæði hafi grip-
ið um sig á götum Reykjavíkur-
borgar í sumar, og ekkert bendi til
þess að úr því ætli að draga með
haustinu. „Margar stelpur eru
búnar að átta sig á hvað það er
þægilegt að vera í samfestingi. Svo
eru þeir oftast mjög klæðilegir og
auðvelt að tóna þá upp og niður,“
útskýrir Dagný.
Hún segir allar mögulegar gerð-
ir af samfestingum í gangi, stuttir
og síðir, einfaldir og mjög skraut-
legir. Allt sé leyfilegt. „Í sumar hafa
stuttir samfestingar verið mjög
vinsælir og þeir verða það áfram
í vetur, við þykkar sokkabuxur og
grófa skó. En svo eru síðu sam-
festingarnir líka að koma sterk-
ir inn. Við erum með mikið úrval
núna af öllum týpum - einföldum,
fínum, hversdagslegum, doppótt-
um, og röndóttum ... og hjá okkur
eru engir tveir eins, enda hver flík
sérvalin inn hjá okkur.“
Og Dagný fullyrðir að strákun-
um þyki samfestingarnir líka flott-
ir. „Það er algengt að strákar komi
með kærustunum sínum að máta
og ég hef tekið eftir því að þeim
finnst þeir bara flottir. Enda mótar
vel fyrir vextinum í samfestingi og
þeir eru bara mjög klæðilegir.“
- hhs
Tískuverslunin Nostalgía er full af samfestingum af ýmsum gerðum:
SAMFESTINGAFÁR
Tóna saman Stefanía Eysteinsdóttir og Katrín Bragadóttir taka sig vel út í samfestingi.
SAFNAÐU
ÁHEITUM
hlaupasty
rkur.is
Skemmtileg leið til
að safna áheitum
Ef þú ætlar að hlaupa til góðs í Reykjavíkurmaraþoninu
getur þú búið til skemmtilegt myndband af þér á
hlaupastyrkur.is. Myndbandið getur þú sent til vina
og vandamanna með tölvupósti, á Facebook eða
Twitter og vakið athygli á þinni áheitasöfnun.
Skráðu þig strax til leiks og byrjaðu að safna áheitum.
- Stoltur bakhjarl hlaupsins síðan 1997
SKÓLATASKA Nú er rétti tíminn til að velja sér skóla-
tösku fyrir veturinn. Þessi klassíska leðurtaska fæst í Top-
shop og myndi sóma sér vel utan um splunkunýjar og ilm-
andi skólabækur.