Fréttablaðið - 17.08.2010, Síða 36
24 17. ágúst 2010 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Mér finnst að við
ættum að færa
okkur um set.
Þetta er yndis-
legur staður að
heimsækja en
ég myndi ekki
fyrir mitt litla líf
vilja búa þarna.
Sástu nýja skjá-
varann sem ég
fann handa þér?
Dingdong
Úúú....
Komdu, skræfa, þetta
er frábært.
Rosalega
er þetta
flott peysa.
Örugglega
á milli
eyrnanna
á þér!
Ætli þetta
sé bómull?
HA!!!! Ertu brjálaður??Nýtt hús? Nýtt hverfi? Ekki fræðilegur möguleiki?
Þú getur gleymt því!
Ég var nú bara
meina að færa
okkur úr sófanum
Nú? Ok...
þú getur
gleymt
því líka.
Allt sem þú þarft...
Auglýsing í
Fréttablaðinu
nær til yfir
95%
lesenda
blaðanna
Yfirburðir
Fréttablaðsins
staðfestir!
Lesa bæði
Fréttablaðið og
Morgunblaðið
Lesa bara
Morgunblaðið
Lesa bara
Fréttablaðið
67% 5%
27%
Skörun blaðalesturs að meðaltali á dag, mán.-lau., höfuðborgarsvæðið 18-49 ára.
Heimild: Blaðakannanir Capacent maí - júlí 2010.
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað
landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila
sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup
sýnir ótvírætt.
BAKÞANKAR
Mörtu Maríu
Friðriksdóttur
Árásargjarnir geitungar
Eftir að heimsmálin og fréttir vik-unnar höfðu verið krufin í ítarlegum
umræðum við matarborðið á föstudag
var tilvalið að slíta sig frá hversdagsleik-
anum og hvunndeginum og skella sér í
berjamó. Reyndar ber að taka það fram
að áður en haldið var af stað fengum við
vinkonurnar að heyra að ferð í berjamó
væri bara fyrir börn og gamalmenni. Við
létum þessar athugasemdir ekki á okkur
fá og hoppuðum með bros á vör upp í
bíl og keyrðum sem leið lá inn í Heið-
mörk.
ÁÐUR en við héldum af stað hafði ég
mínar efasemdir um staðarvalið. Ég
trúði því einfaldlega ekki að í Heið-
mörk, sem í mínum huga er inni
í höfuðborginni, væri hægt að
finna einhver ber og jafnvel þótt
þau fyndust væru þau óæt vegna
mengunar. Heiðmörkin átti þó
eftir að koma mér verulega á
óvart því þar voru ljúffeng blá-
ber og stökk krækiber.
BERIN voru tínd í um tvo
tíma sem verður að teljast
góður árangur á minn mæli-
kvarða því alla tíð hefur mér
þótt ferðir í berjamó tíma-
eyðsla. Ég er of óþolinmóð til
að dunda mér lengi við berjatínslu en þó
var tínt og tínt. Nokkur berjanna lentu
reyndar ekki í fatinu heldur uppi í munni
þar sem japlað var græðgislega á þeim.
TÍNSLUPÁSA var tekin. Þegar vinkonan
ætlaði að hefjast handa að nýju rekur
hún upp skelfingaróp. Geitungur hafði
stungið hana. Ég tók hana reyndar ekki
trúanlega fyrr en ég sé geitunginn
rangla um í blóðvímu við stunguna og þá
var komið að mér að æpa upp fyrir mig
af meðaumkun. Svo var hann sleginn í
burtu.
GEITUNGAR eiga víst að vera árásar-
gjarnastir í ágúst og september. Ég er
fullviss um að svo sé því þessi stunga var
sú önnur í röðinni á rétt um viku sem ég
verð vitni að. Við vinkonan könnuðum
þetta eftir að heim var komið og búið var
að dæla í hana ofnæmistöflum og bera
á sárið deifandi krem. Þá komumst við
einnig að því að býflugur eru ekki til
villtar á Íslandi heldur einungis hunangs-
flugur, en þetta var nú útúrdúr.
ÞEGAR leið á kvöldið minnkaði verk-
urinn og sú tilfinning að sex geitungar
væru að róta í sárinu og daginn eftir var
aftur komið að því að ræða þjóðmálin og
fréttir vikunnar, í þetta sinn á kaffihúsi.