Fréttablaðið - 21.08.2010, Page 2
2 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
Öryggi í samskiptum –
námskeið við félagsfælni
Kvíðameðferðarstöðin stendur nú fyrir 10 vikna námskeiði við
félagsfælni þar sem aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar eru
kenndar til að vinna bug á kvíða í samskiptum.
Námskeiðið hefst 24. ágúst 2010.
Kvíðameðferðarstöðin mun einnig standa fyrir fjölda annarra
námskeiða í haust, svo sem námskeið við ræðukvíða, prófkvíða,
hundafælni, lofthræðslu, ofsakvíða og í kvíðastjórnun.
Nánari upplýsingar um námskeið
Kvíðameðferðarstöðvarinnar má
fi nna á www.kms.is.
Skráning fer fram í símum
534 0110/822 0043 eða með
tölvupósti á kms@kms.is.
UMHVERFISMÁL Vatnsborð Bláa
lónsins er orðið allt of hátt og
grípa þarf til varanlegra aðgerða
til að losna við umframvökva. HS
Orka og Grindavíkurbær vinna
nú að lausn málsins.
Ástæðan fyrir því að yfirborð
lónsins fer hækkandi er að hraun-
glufur í og við lónið eru stíflað-
ar. Þetta gerist vegna svifagna
í vökvanum sem aukast þegar
hann kólnar. Niðurrennslishol-
ur hafa verið boraðar á tveim-
ur stöðum til þess að koma lón-
vökvanum niður í sjó, en þær
eru einnig nánast stíflaðar. „Við
höfum fengið ráðgjöf um hvern-
ig sé best að haga þessu,“ segir
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í
Grindavík, en bæði bærinn og HS
Orka hafa fengið slíka ráðgjöf.
Júlíus Jónsson, forstjóri HS
Orku, sendi bænum bréf í byrj-
un júlí um málið. Þar kemur fram
að verið sé að bora nýjar holur en
líklegt þyki að þær muni einnig
stíflast „á tiltölulega skömmum
tíma“. Því sé þörf á varanlegri
lausn og fer hann þess á leit við
bæinn að hafin verði samvinna
og samráð um að leysa málið. Það
er nú í vinnslu og segir Róbert
að fundað verði í næstu viku og
vonandi tekin ákvörðun um fram-
haldið. „Það þarf annars vegar að
finna bráðabirgðalausn og hins
vegar lausn til framtíðar. Fram-
tíðarlausnin er það kostnaðar-
söm að það tekur einhvern tíma
að finna út úr því.“
Eina varanlega leiðin er að
veita lónvökvanum til sjávar.
HS Orka fékk verkfræðiþjónust-
una Verkís til að gera minnisblað
með tillögum um framkvæmd á
því. Sú fyrri gerir ráð fyrir því
að núverandi niðurrennslissvæði
verði notað og þrýstilögn verði
lögð frá því meðfram Grinda-
víkurbraut. Stofnkostnaður við
slíka framkvæmd yrði 105 millj-
ónir króna auk þess sem árleg-
ur rekstrarkostnaður yrði fimm
milljónir króna.
Í seinni tillögunni er lagt til að
lagt verði í göngustíginn sem er
frá bílastæði að inngangi Bláa
lónsins. Þaðan yrði lögnin í gegn-
um bílastæðið að Grindavíkur-
braut og áfram að niðurfallshol-
um. Kostnaður við þessa tillögu
yrði 78 milljónir í stofnkostnað
auk tveggja milljóna í árlegan
rekstrarkostnað. Þá kemur fram
að óháð tillögunum þurfi að gera
niðurrennslisholur og fleira, sem
kostar 60 milljónir króna.
Verkís mælir með seinni tillög-
unni og segir hana mun auðveld-
ari í rekstri og ódýrari, þótt hún
kalli á mikla jarðvinnu og rask
um tíma. thorunn@frettabladid.is
Yfirborð Bláa lóns-
ins orðið alltof hátt
Hraunglufur og önnur frárennsli í og við Bláa lónið eru stífluð vegna svifagna í
vökvanum sem veldur því að vatnsborð lónsins er of hátt. HS Orka og Grindavík-
urbær vinna nú að lausnum á því hvernig best sé að koma vökvanum til sjávar.
„Sigríður, verða menn þá ekki
við hestaheilsu á næstunni?“
„Jú, jú, það bendir ekkert til annars.“
Sigríður Björnsdóttir er dýralæknir hrossa-
sjúkdóma hjá Matvælastofnun. Verið er
að kanna hvort hestapestin, sem herjað
hefur á hesta hér á landi undanfarið, geti
smitast í menn en Sigríður segir ástæðu-
laust að hafa miklar áhyggjur.
BLÁA LÓNIÐ Tvær tillögur hafa komið fram frá Verkís um hvernig hægt sé að veita
umframvökva úr Bláa lóninu út í sjó. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ELDSVOÐI Óljóst er hversu mikið
tjón varð af völdum eldsvoðans í
álverinu í Straumsvík í fyrrakvöld.
Að sögn Ólafs Teits Guðnasonar,
framkvæmdastjóra samskipta-
sviðs Alcan á Íslandi, verður ekki
eðlileg framleiðsla í steypuskála
álversins í bili. Ómögulegt sé hins
vegar að segja til um hversu mikið
og hversu lengi eldsvoðinn muni
trufla starfsemi álversins.
Eldur kviknaði í kjallara steypu-
skálans á tíunda tímanum í fyrra-
kvöld. Talið er hugsanlegt að
bráðið ál hafi lekið í kjallarann og
kveikt þar í rafmagnsköplum. Svo
virðist sem það hafi einkum verið
þeir sem brunnu. Eldurinn var
minni háttar en mikill reykur. - sbt
Eldur í álverinu í Straumsvík:
Dregur úr
álframleiðslu
ELDUR Í ÁLVERI Ekki hefur verið lagt mat
á tjón af völdum eldsvoðans í álverinu í
Straumsvík. MYND/STÖÐ 2
milljóna stofn-
kostnaður er við
ódýrari tillögu
Verkíss um veitu til sjávar.
78
FERÐAMENNSKA „Það er stolið úr
tjöldum hjá okkur einu sinni til
tvisvar á ári. Það er alltaf ömurlegt
að lenda í þessu, bæði fyrir okkur
og ekki síst fyrir þá sem verða
fyrir þjófnaðinum,“ segir Markús
Einarsson, framkvæmdastjóri Far-
fugla, sem reka tjaldsvæðið í Laug-
ardal. Hann segir erfitt að verjast
þessu. Þótt tjaldsvæðið sé afmark-
að með girðingu eigi utanaðkom-
andi greiðan aðgang að því.
Fréttablaðið sagði í gær frá Ulf
Hoffmann, þýskum höfundi ferða-
bóka fyrir reiðhjólafólk, sem varð
fyrir því að steini var hent í tjald
hans og verðmætum stolið úr því í
Laugardalnum í sumar. Starfsfólk
tjaldstæðisins fann nokkuð af þýf-
inu í nærliggjandi runnum. Þrátt
fyrir það gagnrýndi hann ráðaleysi
starfsfólksins.
Markús segir ekki rétt að starfs-
fólk tjaldsvæðisins hafi ekki haft
upplýsingar um Hoffmann. Hann
hafi afhent sér nafnspjald með
heimilisfangi og símanúmerum og
Markús talið það nægja fyndust
þeir hlutir sem þýski ferðamaður-
inn saknaði. Þá sé ætíð haft sam-
band við lögreglu verði þjófnaðar
vart.
„Við reynum að liðsinna fólki
eins vel og við mögulega getum,“
segir Markús. - jab
Framkvæmdastjóri tjaldsvæðis í Laugardal segir þjófnað úr tjöldum afar fátíðan:
Rænt úr tjöldum tvisvar á ári
MARKÚS Afar fátítt er að stolið sé úr
tjöldum í Laugardal. Hvert atvik er
lögreglumál, segir framkvæmdastjórinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNING Samtökin Attac á
Íslandi sem barist hafa fyrir
því að bönd verði sett á fjár-
málastarfsemi taka þátt í dag-
skrá menningarnætur.
Samtökin hafa tekið hönd-
um saman við aðstandend-
ur undir skriftasöfnunarinnar
orkuaudlindir.is. Meðal lista-
manna sem koma fram á vegum
samtakanna eru KK og Ómar
Ragnarsson.
Skúli Gautason, fulltrúi við-
burða hjá Höfuðborgarstofu,
telur ekki orka tvímælis að pól-
itísk samtök taki þátt í menn-
ingarnótt. Hann segir alla mega
taka þátt, án tillits til stjórn-
málaskoðana, svo lengi sem
settir væru upp menningarvið-
burðir. - mþl
Dagskrá menningarnætur:
Attac taka þátt í
menningarnótt
UTANRÍKISMÁL Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra segir að
aðild að evrusvæðinu myndi
spara íslensku
þjóðinni á
annað hundr-
að milljarða á
ári. Þetta kom
fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
Össur sagðist
jafnframt telja
að sá samning-
ur sem gerð-
ur verði muni
vera töluvert
betri en fólk
haldi fram núna. Þá komi í ljós að
ýmsar bábiljur sem andstæðing-
ar aðildar hafi haldið fram séu
vit leysa. Því er hann sannfærður
um að Íslendingar muni að lokum
samþykkja aðildarsamninginn.
- þeb
Össur um evrusvæðið:
Segir hundruð
milljarða sparast
með ESB-aðild
DÓMSMÁL Yfirheyrslum yfir Sigurði Einarssyni, fyrr-
verandi stjórnarformanni Kaupþings, er lokið. Yfir-
heyrslurnar stóðu í sjö tíma á fimmtudag og fimm í
gær.
Sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, gat
lítið sagt um efni yfirheyrslnanna en sagði ágæt-
an gang hafa verið á þeim. Spurður hvort hann hefði
fengið svar við öllum sínum spurningum svaraði Ólaf-
ur: „Við getum allavega sagt að Sigurður hafi verið til
í að tjá sig.“ Hann útilokar ekki að Sigurður eða aðrir
verði aftur boðaðir til skýrslutöku.
Ólafur segir óvíst hvenær tíðinda sé að vænta í
rannsókninni á Kaupþingi. „Það er mjög erfitt að
nefna eitthvað tímamark í því. Við erum einfaldlega
ekki komin nægilega langt á veg til þess. Við erum
líka svolítið háð öðrum í þeim efnum til dæmis hvað
varðar gögn í útlöndum.“
Sigurður var upphaflega kvaddur til skýrslutöku
í maí en þegar hann varð ekki við þeirri kvaðningu
var gefin út handtökuskipun en Sigurður hefur verið
í London undanfarna mánuði. Þegar það varð ljóst
að von væri á Sigurði til landsins var skipunin felld
niður. Nú þegar yfirheyrslum er lokið er Sigurð-
ur frjáls ferða sinna og getur allt eins farið aftur til
London.
Þegar Sigurður mætti til skýrslutökunnar á
fimmtudagsmorgun kvaðst hann alltaf hafa verið til-
búinn til að koma heim, það væri rangt að hann hefði
ekki sinnt kvaðningunni. Enn fremur sagðist Sigurður
ekki búast við því að verða ákærður - mþl
Sigurður Einarsson var yfirheyrður í samtals tólf tíma af sérstökum saksóknara:
Skýrslutökum yfir Sigurði lokið
SIGURÐUR EINARSSON Fjölmiðlamenn umkringdu Sigurð
þegar hann mætti til skýrslutöku á fimmtudagsmorgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNSÝSLA Rekstrarafgangur
Landspítalans fyrstu sex mán-
uði ársins nam rúmum 35 millj-
ónum króna. Þetta kemur fram í
hálfs ársuppgjöri sem Ríkisendur-
skoðun hefur staðfest.
Í byrjun árs var spítalanum
gert að lækka rekstrarkostnað um
rúm 9 prósent eða 3.400 milljónir
króna. Með umfangsmiklum hag-
ræðingaraðgerðum sem gripið var
til á öllum sviðum spítalans hefur
tekist að ná þessu markmiði, segir
í fréttatilkynningu spítalans.
Björn Zoëga, forstjóri Landspít-
alans, segir sparnaði náð án þess
að ógnað sé öryggi sjúklinga. - mþl
Hagræðingu náð fram:
Afgangur hjá
Landspítala
ÖSSUR SKARPHÉÐ-
INSSON
LÝÐRÆÐI Samband íslenskra sveit-
arfélaga heldur námskeið til að
þjálfa starfsmenn sveitarfélaga
í að vinna að lýðræðisverkefn-
um. Sveitarfélögin eiga við þetta
að verða betur í stakk búin til að
starfa markvisst með íbúum.
Danskir leiðbeinendur verða á
námskeiðinu „en þar hefur lýðræði
í sveitarfélögum verið í brenni-
depli eftir veigamiklar stjórnkerf-
isbreytingar,“ segir á vef sam-
bands sveitarfélaga.
Námskeiðið fer fram 6. septemb-
er, ef næg þátttaka fæst. -pg
Sveitarfélög halda námskeið:
Starfsfólki
kennt lýðræði
SPURNING DAGSINS