Fréttablaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 16
16 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
M
enntaráð Reykjavíkur samþykkti fyrr í mánuðin-
um tillögu Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur borg-
arfulltrúa um að unnið skuli markvisst að því að
efla námsárangur drengja í grunnskólum.
Þetta var tímabær samþykkt, því að í meira en
áratug hafa legið fyrir gögn og rannsóknaniðurstöður sem sýna
fram á að drengjum bæði gengur verr og líður verr í grunn-
skólanum en stúlkum. Eitt leiðir af öðru og margt bendir til að
strákar séu líklegri til að hverfa frá framhaldsnámi en stelpur.
Þeir eru sömuleiðis orðnir í minnihluta í háskólanámi. Í sam-
félagi, þar sem allir eiga að hafa sömu tækifæri, hlýtur þetta
að vera áhyggjuefni. Þótt enn halli á konur í jafnréttismálum
þegar á heildina er litið, geta
það ekki verið rök fyrir því að
gera ekkert í versnandi stöðu
karla á tilteknum sviðum.
Fulltrúi Vinstri grænna í
menntaráði greiddi þó atkvæði
gegn samþykktinni. Sóley Tóm-
asdóttir, borgarfulltrúi flokks-
ins, sagði hér í blaðinu að með
henni væri verið að falla í pytt
gamallar orðræðu. Mikilvægara væri að „vinna með og uppræta
staðlaðar kynjaímyndir í grunnskólum og stuðla að markvissri
kynjafræðslu fyrir bæði kynin“. Sóley bendir á að sömu rann-
sóknir og hafi sýnt fram á minni áhuga drengja á náminu hafi
borið vitni um lakari sjálfsmynd stúlkna.
Það má velta því fyrir sér hvort Sóley Tómasdóttir hefði lagzt
gegn tillögu sem hefði gengið út á að styrkja stöðu stelpna, jafn-
vel þótt ekkert hefði verið minnzt á strákana. Varla útilokar það
að stöðu stúlkna verði gaumur gefinn þótt tekið verði á slökum
árangri piltanna, eða hvað? En auðvitað er það rétt, að hyggja
þarf að hvoru tveggja.
Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefnunnar, hvatti
til þess hér í blaðinu að samþykktinni yrði fylgt eftir með því að
skoða einnig stöðu stúlkna í grunnskólum. Margrét Pála hefur
árum saman bent á að kynin séu ólík og ekki dugi að beita sama
„meðaltalsuppeldinu“ á stráka og stelpur. Þá verður niðurstaðan
sú, hefur hún sagt, að strákarnir fái 80% af athyglinni af því
að þeir séu fyrirferðarmeiri. Slíkt komi niður á báðum kynjum;
strákarnir venjist því fljótt að taka meira en þeim ber, á kostn-
að stúlknanna. Þannig fái bæði kyn röng skilaboð snemma á
lífsleiðinni.
Margrét Pála hefur farið þá leið að kenna strákum og stelpum
að hluta til sitt í hvoru lagi og leggja áherzlu á að leyfa sterkari
hliðum beggja kynja að njóta sín í skólanum en vinna líka með
veiku hliðarnar, til dæmis félagsfærni, samskipti og tillitssemi
hjá strákunum og frumkvæði, áræðni og sjálfstraust hjá stelp-
unum.
Nú er ekki þar með sagt að Hjallastefnan sé endilega það eina
rétta fyrir alla grunnskóla. Hins vegar ber að fagna því að hjá
Reykjavíkurborg ríkir vaxandi skilningur á því að meðaltals-
uppeldið er ekki rétta leiðin í skólastarfi.
Gylfi Magnússon efnahags-ráðherra var sakaður um að hafa leynt Alþingi vitneskju um að gengis-
trygging lána væri ólögmæt. Svo
vill til að Alþingi setti lög um bann
við slíkri tryggingu árið 2001. Síðan
þá hefur það verið opinber stað-
reynd og birt með lögmætum hætti
öllum borgurum þessa lands til eft-
irbreytni.
Alþingi hefur hins vegar aldrei
bannað erlend lán. Einstakir lána-
gerningar geta verið þannig úr
garði gerðir að ágreiningur kann
að vera um hvort um er að ræða
lán í erlendri mynt eða íslensk-
um krónum með
gengistryggingu.
Hæstiréttur
hefur skorið úr
vafa þar um í
einu tilviki.
Lögfræðiálit
sem unnin voru
í Seðlabanka og
viðskiptaráðu-
neytinu höfðu
að geyma túlkun
á efni laganna. Þau fjölluðu á hinn
bóginn ekki um hvort einstakir lána-
gerningar banka og fjármálafyrir-
tækja væru í samræmi við lögin. Á
þessu er grundvallarmunur.
Hvorki Seðlabankinn né við-
skiptaráðuneytið gátu unnið álit
um hvort einstakir lánagerning-
ar samræmdust lögunum með því
að þeir voru ekki í höndum þess-
ara stofnana. Þegar ráðherra svar-
aði fyrirspurnum um þessi efni á
Alþingi fyrir ári hafði hann fengið
lögfræðilega kynningu á efni lag-
anna en ekki um lánagerningana.
Án dóms Hæstaréttar gátu svör
ráðherrans ekki verið á annan veg.
Með engu móti verður því á það
fallist að hann hafi blekkt Alþingi
eða sagt því ósatt. Nær lagi er að
fjölmiðlar hafi villt um fyrir þjóð-
inni.
SPOTTIÐ
ÞORSTEINN
PÁLSSON
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Skalli
Því hefur verið haldið fram að ráðherrann hefði átt að upplýsa skuldara þessara vafasömu lána um laga-
lega stöðu þeirra fyrir ári. Jafn-
framt hefði hann átt að gera ríkis-
sjóði viðvart svo að hann gæti gætt
hagsmuna sinna.
Við þetta er ýmislegt að athuga. Í
fyrsta lagi hafði ráðherra ekki upp-
lýsingar um lagalega stöðu lána-
gerninganna. Í annan stað fara
hagsmunir ríkissjóðs og skuld-
ara ekki sjálfkrafa saman í þessu
máli.
Ríkissjóður sat uppi með ábyrgð á
endurfjármögnun bankanna. Hefði
ríkissjóður metið þessi lán minna
virði hefðu skattborgararnir hugs-
anlega þurft að leggja bönkunum
til meira eigið fé. Hvaða vit var í
því fyrir ráðherra efnahagsmála að
hvetja til þess? Nóg var nú samt.
Hefði ráðherrann ætlað að þvinga
bankana til að fara með þessi lán í
samræmi við óuppkveðinn dóm
Hæstaréttar hefði hann verið að
fara út fyrir valdsvið sitt. Þá hefði
framkvæmdarvaldið tekið sér
dómsvald. Það er andstætt stjórn-
arskránni.
Álitamál er hvort það er broslegt
eða kjánalegt að hlusta á frétta-
menn og stjórnmálamenn sem dag
hvern klifa á nauðsyn skarpra skila
milli hinna þriggja þátta stjórnkerf-
isins þegar þeir krefjast afsagnar
ráðherra fyrir þá sök að hafa ekki
látið sér til hugar koma að misbeita
valdi sínu.
Vitaskuld hefði það verið betra
fyrir skuldara að fá fyrir ári þá
niðurstöðu sem varð í Hæstarétti
á dögunum. Um það er ekki deilt.
Það var hins vegar ekki á valdi ráð-
herrans að flýta henni. Þeir sem
krafist hafa afsagnar ráðherrans
af þessum sökum hafa ekki sýnt
fram á hvernig þeir hefðu sjálfir
komið því í kring í hans sporum.
Svo er hitt: Sumir þeirra gáfu-
manna sem helst hafa gagnrýnt
efnahagsráðherrann fyrir að hafa
ekki staðið vörð um hagsmuni
skuldara eru í hópi þeirra sem
telja að sá sveigjanleiki krónunn-
ar sem varð skuldurum að fóta-
kefli sé mesta efnahagsgæfa þjóð-
arinnar. Enginn fréttamaður spyr
út í það.
Uppskafning
Hefur efnahagsráðherrann þá ekkert til sakar unnið? Ráðherrar geta brotið af sér eða gert mistök með
tvennum hætti. Annars vegar með
því að brjóta lög, reglur og stjórn-
sýsluhefðir. Hins vegar með því að
fylgja vitlausri pólitík eða engri.
Efnahagsráðherrann hefur ekki
brotið stjórnsýslureglur. Hitt er jafn
ljóst að hann ber formlega ábyrgð
á framkvæmd efnahagsstefnunn-
ar. Í reynd er staða hans þó þannig
að hann er fremur embættismaður
eða blaðafulltrúi sem fær að mæta á
fundi ríkisstjórnar og Alþingis.
Það er ljóður á ráði efnahagsráð-
herrans að hann hefur ekki gert til-
raun til að hafa áhrif í krafti stöðu
sinnar. Eftir nýbreyttum stjórnar-
ráðslögum hvílir pólitísk forysta
í efnahagsmálum á efnahagsráð-
herranum. Þar hefur hann algjör-
lega brugðist.
Það sýnir ráðleysið eftir dóm
Hæstaréttar í gengislánamálinu og
geðleysið varðandi sjávarútvegs-
málin og orkunýtingarmálin. Alvar-
legast er þó að stjórnarflokkarnir
hafa hvor sína stefnu í peningamál-
um og efnahagsráðherrann er sam-
viskusamur blaðafulltrúi beggja. Að
þessu virtu er hann betur kominn í
Háskólanum en ríkisstjórn. En það
er annar handleggur og kemur svör-
um á Alþingi ekki við. Ögmundur
Jónasson bíður eftir að koma í hans
stað. Vandséð er að það muni bæta
málefnastöðuna í þessum efnum.
Um þetta er ekki fjallað. Umræð-
an hefur því borið öll sömu frá-
sagnareinkenni og Þórbergur sá í
Hornstrendingabók. Þar er að finna:
Skalla, uppskafningu, lágkúru og
ruglandi.
Ruglandi
Reykjavíkurborg ætlar að gefa
stöðu stráka í skólum meiri gaum.
Meðaltalsuppeldið
H O LTA G Ö R Ð U M
Dreymir þig um að reka kaffihús?
Við leitum að sjarmerandi aðila til að reka
lítið, huggulegt kaffihús/súpustað
í verslun okkar í Holtagörðum.
Lítill startkostnaður.
Nánari upplýsingar veita
Telma í gsm 862 5789, netfang: telma@tekk.is
Eyþór í gsm 861 5781, netfang: eythor@tekk.is
Hlökkum til að heyra frá þér!