Fréttablaðið - 21.08.2010, Side 18
18 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
Ríkisstjórn Vinstrihreyfing-arinnar – græns framboðs
og Samfylkingingarinnar tók
við erfiðu verkefni fyrir einu og
hálfu ári í kjölfar hrunsins. Ekki
einungis beið hennar að reisa nýtt
hagkerfi úr rústum þess gamla,
heldur tók hún við í andrúmslofti
mettuðu reiði og tortryggni, ekki
síst í garð stjórnmálanna. Slíkt
ástand var, og er kannski enn,
eðlilegt í ljósi þess að þau stjórn-
málaöfl sem almenningur hafði
treyst og ítrekað veitt umboð
sitt til þess að stjórna landinu
í hartnær tvo áratugi brugðust
fullkomlega. Fjölmenn mótmæli
sýndu fram á mikilvægi samtaka-
máttarins og að breytingar væru
mögulegar en vöktu um leið mikl-
ar væntingar til þeirra sem við
tóku. Verkefni ríkisstjórnarinn-
ar hefur því ekki eingöngu verið
að rétta af hagkerfið heldur ekki
síður að byggja upp traust, eða í
það minnsta reyna að eyða tor-
tryggni og endurheimta glataða
tiltrú.
Auka trúverðugleika
Í tíð núverandi ríkisstjórnar
hefur mikil áherslu verið lögð á
að svara því kalli um endurbætur
og siðbót sem ómaði í samfélag-
inu í kjölfar hrunsins. Það hefur
m.a. verið gert með því að efla og
auka trúverðugleika þeirra eft-
irlitsstofnana sem brugðust, t.d.
með nýrri, faglegri yfirstjórn í
Seðlabankanum og Fjármálaeft-
irlitinu. Embætti sérstaks sak-
sóknara var stóreflt auk þess
sem hin þekkti saksóknari Eva
Joly var ráðin því til ráðgjafar.
Að auki hafa rannsóknir á skatta-
lagabrotum verið efldar og heim-
ildir til þeirra auknar, sem m.a.
gera mögulegt að frysta eignir á
meðan rannsókn stendur yfir.
Meðal fyrstu verka stjórnar-
flokkanna var að afnema með
öllu eftirlaunaforéttindi ráð-
herra og alþingismanna, „eftir-
launaósómann“. Dagpeningar
og risna voru skorin niður auk
þess sem hæstu laun hjá rík-
inu voru lækkuð. Síðastliðið vor
samþykkti síðan Alþingi lög sem
kveða á um faglegar ráðningar í
stöður dómara við Hæstarétt og
héraðsdómstóla en stöðuveiting-
ar í þau embætti hafa verið mjög
umdeildar. Þar með var bundinn
endi á þá hefð að valdhafar skipi
pólitíska vildarvini sína í þau
embætti eins og alltof mörg dæmi
eru um. Lög um almennar siða-
reglur fyrir alla ríkisstarfsmenn
voru samþykkt og er nú unnið að
því að setja ráðherrum og starfs-
mönnum stjórnarráðsins sértæk-
ar siðareglur á grunni þeirra.
Lýðræðisumbætur
Kallinu um aukið lýðræði hefur
verið svarað. Lög um þjóðarat-
kvæðagreiðslur voru samþykkt
og í haust verður kosið til stjórn-
lagaþings sem hefur það hlutverk
að endurskoða stjórnarskránna
frá grunni. Reyndar eru þessar
lýðræðisumbætur einu ári á eftir
áætlun vegna andstöðu Sjálfstæð-
ismanna fyrir alþingiskosningar
2009.
Úrbætur fyrir heimili landsins
Mál heimila sem búa við erf-
iða fjárhags- og skuldastöðu í
kjölfar efnahagshrunsins hafa
verið samfellt til úrvinnslu og
ríkisstjórn og Alþingi grip-
ið til fjölmargra ráðstafana.
Meðal þeirra aðgerða sem rík-
isstjórnin greip strax til var efl-
ing Ráðgjafarstofu um fjármál
heimilanna, frestun á nauðung-
arsölum, setning laga um heim-
ild til útgreiðslu séreignarlífeyr-
issparnaðar, gerð samnings við
fjármálastofnanir um samræmd
greiðsluerfiðleikaúrræði, tíma-
bundin frysting gengistryggðra
lána, hækkun vaxtabóta, setn-
ing laga um greiðsluaðlögun og
lækkun dráttarvaxta. Síðar voru
sett lög um greiðslujöfnun verð-
tryggðra lána, lög um ábyrgðar-
menn og lög um greiðsluaðlögun
hafa verið endurbætt. Ráðgjafa-
stofu um fjármál heimilanna var
breytt í embætti umboðsmanns
skulda sem vinnur með skuldur-
um, úrræði fyrir fólk með tvær
eignir eru í undirbúningi og
fleira. Nú þegar hafa hátt í 100
þúsund einstaklingar nýtt sér
þetta á einn eða annan hátt og
létt á fjárhagsvanda sínum. Auð-
vitað telja margir að gera þurfi
enn betur, en spurningin hér er
ekki um vilja heldur mat á því
hvað sé viðráðanlegt við okkar
þröngu aðstæður og þá ekki síst
fyrir skuldum hlaðinn ríkissjóð.
Þá hefur einnig verið mikið að
gert til þess að taka á fjárhags-
og skuldamálum fyrirtækja, t.d.
með gjalddagaaðlögun og aukn-
um sveigjanleika við uppgjör
skattaskulda.
Örvun atvinnulífsins
Ríkisstjórnin hefur staðið í viða-
miklum verkefnum við uppbygg-
ingu efnahagslífsins og efnahags-
áætlun stjórnvalda er á áætlun,
jafnvel rúmlega það. Víkjum að
því í síðari greinum.
Mikið hefur verið gert til þess
að verjast atvinnuleysi og örva
atvinnulífið. Má þar fyrst nefna að
áhersla hefur verið á að verja störf
hjá ríkinu með því að ná fram jöfn-
uði í ríkisfjármálum með öðrum
leiðum en fjöldauppsögnum. Ríkið
er stærsti atvinnuveitandi landsins
og hefur þessi áhersla skipt sköp-
um við að halda aftur af atvinnu-
leysinu. Framundan eru miklar
framkvæmdir, til dæmis nýbygg-
ingar Landspítalans, Búðarháls-
virkjun, tvöföldun Suðurlands-
vegar o.s.frv. Ríki og borg ákváðu
halda áfram byggingu tónlistar- og
ráðstefnuhússins Hörpu og tryggðu
þannig atvinnu um 400 starfs-
manna og verkefni fyrir fjölmarga
sem að koma. Þá hafa stjórnvöld
stóraukið fjármagn í viðhaldsfram-
kvæmdir við opinberar byggingar.
Samtals verður varið 3,200 milljón-
um til slíkra verkefna á árinu 2010.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts
vegna viðhalds- og endurbótaverk-
efna var hækkuð í 100% og nú hafa
sérstakar skattaívilnanir bæst við
sem viðbótar kvati. Í framhaldi af
þessu hafa stjórnvöld unnið náið
með Samtökum iðnaðarins, Alþýðu-
sambandi Íslands og aðildarfélög-
um, Samtökum atvinnulífsins,
Samtökum verslunar og þjónustu
og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að
verkefninu „Allir vinna.“
Atvinnuskapandi aðgerðir
Í lok síðasta árs voru samþykkt
lög sem bæta stöðu nýsköpunar-
og sprotafyrirtækja með skatta-
ívilnum. Vegna þessa er skatta-
umhverfið á Íslandi fyrir slík
fyrirtæki með því besta sem
þekkist í heiminum og er áhrif-
anna þegar farið að gæta.
Neikvæðum áhrifum eldgoss-
ins í Eyjafjallajökli á ferðaþjón-
ustuna á vormánuðum var mætt
með kraftmiklu sameiginlegu
markaðsátaki. Þúsundir sum-
arstarfa voru sköpuð með sér-
stökum átaksverkefnum, hluta-
atvinnuleysisbætur teknar upp
og gripið til víðtækra aðgerða
til að tryggja virkni þeirra sem
eru í atvinnuleit, því fátt er
meira mannskemmandi en að
sitja heima í aðgerðarleysi. Loks
hefur allt verið reynt sem mögu-
legt er til að gera skólum lands-
ins kleift að taka við sem flestum
sem vilja nýta tímann til náms
meðan núverandi ástand varir.
Framfarir til framtíðar
Ekki má heldur gleyma að fjöl-
mörg framfaramál hafa náð fram
að ganga á því eina og hálfa ári
sem ríkisstjórnin hefur setið þrátt
fyrir erfiðleikana. Það sýnir að
stundum er viljinn allt sem þarf.
Skal þar fyrst nefna nýtt tekju-
skattskerfi sem ver hina tekju-
lægstu fyrir skattahækkunum
og dreifir byrðunum á allt annan
og réttlátari hátt en áður. Land-
ið hefur til mikils hagræðis verið
gert að einu skattaumdæmi. Þá má
nefna ein hjúskaparlög óháð kyn-
hneigð, bann við kaupum á vændi,
lokun nektarstaða, hærri grunn-
framfærslu námslána, skýra og
metnaðarfulla stefnu í loftslags-
málum, ákvörðun um að leggja
niður óþarfa Varnarmálastofnun
og svona mætti lengi telja. Allt
tal um að ríkisstjórnin sé ekkert
að gera er því einfaldlega rangt
og hrein öfugmæli. Ríkisstjórnin
hefur þvert á móti verið sérlega
starfsöm og fengið miklu áorkað
við afar erfiðar aðstæður.
Ekki má heldur gleyma að fjölmörg
framfaramál hafa náð fram að ganga
á því eina og hálfa ári sem ríkisstjórn-
in hefur setið þrátt fyrir erfiðleikana.
Landið tekur að rísa!
Aðgerðir ríkisstjórna og árangur, febrúar 2009 – ágúst 2010 Grein 2
Þjóðmál
Steingrímur J.
Sigfússon
fjármálaráðherra
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT 2 INNIHELDUR
*VILDARÁSKRIFENDUR FÁ
ALLT AÐ 30% AFSLÁTT AF
512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Félagarnir Gummi Ben og Hjörvar Hafliða gera upp leiki helgarinnar kl. 17:00 á sunnudögum.
Mörkin, tilþrifin, skemmtilegustu atvikin og margt fleira í nýjum og fjörugum þætti.
SUNNUDAGUR
Fulham – Man. Utd. kl. 14:45
MÁNUDAGUR
Man. City – Liverpool kl. 18:50
LAUGARDAGUR
Arsenal – Blackpool
Stoke – Tottenham
West Ham – Bolton
Everton – Wolves
Birmingham – Blackburn
Wigan – Chelsea
kl. 13:50
kl. 13:55
kl. 13:55
kl. 13:55
kl. 13:55
kl. 16:00
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fyrir
140
krónur
færð þú:
næstum
1 klst. í
stöðumæli
10 ml af bjór
á barnum
enska boltann
í beinni og margt fleira
í heilan sólarhring
10 mínútur 3/4 lítra
af bensíni
eða eða eða
Stöð 2 Sport 2 kostar aðeins frá 140 krónum á dag. Tryggðu þér áskrift í dag!
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 90 stöðum um land allt.
Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing