Fréttablaðið - 21.08.2010, Page 20
20 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
AF NETINU
Orðspor auðkýfings
Það er einfaldlega viðtekin skoðun í íslensku viðskiptalífi að það borgi sig
ekki að tjá sig um aðra leikendur viðskiptalífsins í fjölmiðlum. Hvað á að
kalla þetta andrúmsloft? Stundum er talað um þöggun í íslensku samfélagi.
En verst er þöggunin í viðskiptalífinu og var orðin að þjóðarmeini fyrir hrun.
Það var orðið þannig að peningar voru taldir jafngilda þöggunarvaldi um
hvaðeina. Jafnvel nauðaómerkilega hluti.
andres.eyjan.is/
Andrés Jónsson
Klerkar í klípu
Skriftir eru ekki sakramenti í lútersk evangelískri kirkju. Það er ekki á færi
prestanna að veita fyrirgefningu synda. Það er sjálfsagt að prestar haldi
trúnað við sóknarbörn sín og séu ekki að blaðra um leyndarmál þeirra út
um allar koppagrundir. Prestarnir stunda sína sálgæslu en að þeir eigi að
þegja um glæpi er fráleitt – jafnvel þótt sumir klerkar vilji setja sig á háan
hest hvað þetta varðar.
silfuregils.eyjan.is
Egill Helgason
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja
lesendur til að senda línu og
leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar
og bréf skulu vera stutt og
gagnorð. Tekið er á móti
efni á netfanginu greinar@
frettabladid.is eða á vefsíðu
Vísis, þar sem finna má
nánari leiðbeiningar. Ritstjórn
ákveður hvort efni birtist í
Fréttablaðinu eða Vísi eða í
báðum miðlunum að hluta
eða í heild. Áskilinn er réttur
til leiðréttinga og til að stytta
efni.
Andstæðingar aðildarviðræðna við ESB hafa að undanförnu
farið mikinn í fjölmiðlum, ekki síst
í dagblöðum og á vefsíðum. Þar er
víða haldið uppi hræðsluáróðri, ekki
síst því, að einu gildi. um hvað verði
samið við ESB, ekkert af því muni
standa nema tímabundið. Talað er
um, að samningar við ESB yrðu
nánast einskis virði.
Við, sem teljum að reyna eigi
samninga, höfum hins vegar full-
yrt, að það, sem kemst inn í aðild-
arsamning, haldi. Því sé óhætt að
treysta.
Ég rak nýlega augun í skýrslu
Evrópunefndar, sem Davíð Odds-
son forsætisráðherra, skipaði 8. júlí
2004 og skilaði greinargerð sinni í
mars 2007. Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra var skipaður formað-
ur nefndarinnar, en auk hans voru
þar Einar K. Guðfinnsson, Hjálmar
Árnason, Jónína Bjartmarz, Össur
Skarphéðinsson, Bryndís Hlöð-
versdóttir, Ragnar Arnalds, Katrín
Jakobsdóttir og Brynjar Sindri Sig-
urðsson markaðsfræðingur. Brynd-
ís Hlöðversdóttir hætti í nefndinni í
desember 2006 og tók Ágúst Ólafur
Ágústsson sæti hennar.
Þetta er mikið mannval og ég
vek sérstaka athygli á þeim Birni
Bjarnasyni, Einari K. Guðfinns-
syni og Ragnari Arnalds sökum
málflutnings þeirra að undan-
förnu. Greinargerð nefndarinn-
ar heitir „Tengsl Íslands og Evr-
ópusambandsins“ Nefndin virðist
hafa unnið ágætt verk og kallað til
ráðuneytis marga hina færustu sér-
fræðinga. Þar er tvennt, sem mér
finnst mikilvægt að benda á ein-
mitt nú.
Á blaðsíðu 77 í skýrslunni stend-
ur:
„Mikilvægt er að hafa í huga
að aðildarsamningar að ESB hafa
sömu stöðu og stofnsáttmálar ESB
172 og því er ekki hægt að breyta
ákvæðum þeirra, þar á meðal und-
anþágum eða sérákvæðum sem þar
er kveðið á um, nema með samþykki
allra aðildarríkja.“
Neðst á blaðsíðu 79 í sömu skýrslu
stendur einnig:
„Lagaleg staða undanþágu eða
sérlausnar sem er í aðildarsamn-
ingi er sterk því aðildarsamningur
hefur sama lagalega gildi og stofn-
sáttmálar ESB. Hið sama gildir um
bókanir, en þær eru hluti af aðildar-
samningum og hafa því sama laga-
lega gildi og þeir.“
Við þetta má svo bæta, að þeim,
sem gerst þekkja til, er ekki kunn-
ugt um neina varanlega lausn, sem
hafi verið dæmd ógild eða vötnuð
út af EB-dómstólnum. T.d. stendur
tæplega fertug undanþága Dana um
takmarkanir á fjárfestingum í sum-
arhúsum óhögguð enn í dag.
Þetta er samhljóma við skrif
okkar, sem viljum reyna samninga
við ESB. Við ætlum ekki að semja
auðlindir Íslands af okkur. Við vilj-
um reyna að koma góðum ákvæð-
um um yfirráð okkar yfir þeim inn
í aðildarsamning. Þá teljum við
öllu óhætt. Andstæðingarnir reyna
sem þeir geta að gera lítið úr orðum
okkar. Ég sé þó ekki betur en þeirra
eigin orð vitni gegn þeim í þessari
merku skýrslu, sem hér var til vitn-
að.
Ögmundur Jónasson birti svo
nýlega grein í Mbl. „Virkisturn í
norðri“ heitir hún. Hann vænir
ESB um ýmislegt í eftirfarandi
málsgrein: „ En ekki mun standa
á styrkveitingum – svona rétt á
meðan verið er að tala okkur til.
Hið sama gæti hent okkur og indí-
ána Norður-Ameríku. Þeir töpuðu
landinu en sátu uppi með glerperlur
og eldvatn.“ Getur Ögmundur bent
mér á einhver dæmi um, að slíkt
hafi gerst í samskiptum ESB við
aðildarlöndin? Ég þekki þau ekki,
og geti hann ekki komið með dæmi,
þá er þetta ekkert annað en ómál-
efnalegur hræðsluáróður.
Haraldur Benediktsson, for-
maður Bændasamtakanna, hefur
verið að gera sig gildandi á „Evr-
ópuvaktinni“. Hann lætur mikið af
þekkingu sinni á reynslu Finna í
landbúnaðarmálum eftir inngöngu
þeirra í ESB. Hann segir þar m.a.:
„Athyglisvert er að kynnast því við-
horfi, sem vitnar um reynslu þeirra
af ýmsum „samningum“ sem þeir
töldu sig hafa gert við aðild. Fjöl-
mörg sérákvæði, sem samið var um,
hafa ekki reynst pappírsins virði.
Þrátt fyrir undirskriftir og hand-
söl hafa stofnanir ESB fellt slíkt
úr gildi vegna kröfunnar um jafn-
ræði innan ESB.“ Undir allt þetta
er tekið í leiðara Mbl. 3. ágúst sl. og
það lofað sem mikið fagnaðarerindi
fyrir andstæðinga ESB. En miðað
við skýrslu Björns Bjarnasonar
og nefndar hans, vaknar sá grun-
ur, að þarna sé eitthvað frjálslega
með farið. Þess vegna bið ég í allri
hógværð um bitastæð og skjalfest
dæmi frá Haraldi. Eins og ég hef
áður sagt, þá á ég ekki sannleikann,
en mig langar til að sannleikurinn
eigi mig, einnig í þessu máli.
Ég hygg, að fleirum en mér
ofbjóði sá málflutningur, sem
mest ber á um þessar mundir. Full-
yrt er, að ekki þýði að semja, og
verði samið, þá verði það einskis
virði. ESB er í raun lýst eins og
skrímsli, marghöfða óvætti, sem
muni hremma okkar ágætu þjóð
og matreiða hana eins og því þykir
best. Samt eru þetta samtök, sem
voru stofnuð til að efla frið, frjáls
samskipti á sem flestum sviðum og
efnahagslegan stöðugleika. Eng-
inn hefur vænst fullkomleika í
neinu af þessu, en staðreynd er, að
frændum okkar Dönum og Svíum
líður yfirleitt vel í þessu samfélagi
og eru engu að tapa í sjálfsforræði
sínu. Hví skyldum við ekki láta á
það reyna, hvernig samningum við
gætum náð?
Sú andstaða, sem nú er uppi höfð,
af hendi þeirra, er sömdu það,
sem til var vitnað í skýrslunni til-
greindu, stangast á við þeirra eigin
orð.
Þeirra eigin orð
Evrópumál
Þórir
Stephensen
fyrrverandi
dómkirkjuprestur
www.tskoli.is
Lýsingarfræði í
Tækniskólanum
Námið er 30 einingar (jafngildir 60 ECTS)
og tekur eitt ár.
Námsgreinar haustannar eru:
Námskipulag lýsingarfræði tekur mið af nám-
skipulagi samtakanna PLDA (Professional Lighting
Design Association).
Innritun er til 25. ágúst. Nánari upplýsingar á
tskoli.is og hjá ave@tskoli.is eða í síma 514 9601.
• Saga lýsingarhönnunar
• Áhrif lýsingar á manninn
• Sjónskynjun
• Ljós og litir
• Ljósgjafar
• Lampabúnaður
• Lýsingarútreikningar