Fréttablaðið - 21.08.2010, Síða 22
22 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
H
vernig kom það til
að þú varst ráðinn í
forstjórastarf Orku-
veitunnar?
„Ég var á fundi
með stjórnarfor-
manni Orkuveitunnar í byrjun vik-
unnar. Við höfum rætt saman um
áætlanagerð varðandi ýmislegt
sem hann er að fást við, en áætl-
anagerð er mitt sérsvið. Þá dembdi
hann þessu á mig, hvort ég væri til-
leiðanlegur til að taka að mér þessa
verkstjórn.
Hann gaf mér tíma til hádegis að
ákveða mig. Ég hugsaði málið og
ráðfærði mig við það fólk í kring-
um mig sem ég ráðfæri mig jafnan
við ef ég þarf að taka stórar ákvarð-
anir. Það hvöttu mig allir til að láta
slag standa og ég sá að þetta var
tækifæri sem var ekki hægt annað
en að grípa. Maður á að grípa tæki-
færi til að eflast og læra eitthvað
nýtt.“
Haraldur Flosi Tryggvason og
Helgi Þór Ingason hafa áður starf-
að saman við kennslu á námskeið-
um hjá Endurmenntunarstofnun
Háskóla Íslands. Helgi Þór segir að
þeir þekkist í gegnum Tryggva Sig-
urbjarnarson raforkuverkfræðing,
föður Haraldar Flosa. „Pabbi hans
er minn mentor og ber ábyrgð á því
að ég fór að fást við verkefnastjórn-
un. Tryggvi er guðfaðir verkefna-
stjórnunar á Íslandi. Í gegnum hann
kynntist ég Haraldi, sem er góður
kennari eins og pabbi hans og við
höfum unnið saman við kennslu.“
Menn þurfa að laga sig að tíðar-
andanum
Stjórn Orkuveitunnar hefur lagt
áherslu á að ráðning Helga Þórs
til Orkuveitunnar sé tímabundin
og bundin því skilyrði að Helgi Þór
verði ekki ráðinn forstjóri til fram-
búðar. Sjálfur segist hann búast við
að starfstíminn mælist í mánuðum
frekar en misserum.
Er verkefni þitt það eitt að bera
ábyrgð á erfiðum og óvinsælum
ákvörðunum um miklar gjaldskrár-
hækkanir gagnvart neytendum og
miklar uppsagnir gagnvart starfs-
fólki Orkuveitunnar?
„Ég mundi ekki orða þetta svona
en það eru mjög stór mál sem þarf
að taka á hérna. Mitt meginmark-
mið er að fá fyrirtækið til að koma
með mér í þær breytingar sem þarf
að gera þannig að allir gangi saman
í takt. Það er þannig í fyrirtækja-
rekstri að stundum eru góðir tímar
og stundum eru erfiðir tímar. Menn
þurfa að laga sig að tíðarandanum
eins og hann er hverju sinni. Þetta
fyrirtæki hefur áður sýnt að það
getur gert það. Hér hafa menn farið
í gegnum breytingar og hafa öflug-
an kúltúr til umbótastarfs. Þess
vegna geng ég glaður til verksins;
af því að ég veit að það eru allar for-
sendur til staðar til að ná árangri.
Ég ætla að vera aflvaki þessara
breytinga og láta gott af mér leiða í
þessu öllu saman. Það er mitt hlut-
verk,“ segir Helgi Þór.
Það er ekki ofsögum sagt að
staða Orkuveitunnar sé gríðar-
lega erfið. Fyrirtækið skuldar 240
milljarða króna, að mestu í erlendri
mynt. Hins vegar hefur það tekjur
að mestu í íslenskum krónum. OR
á ekki fyrir afborgunum af lánum
og fjármagnskostnaði í ár og næstu
ár. Fyrirtækið er hvorki talið gjald-
gengt á fjármagns-
mörkuðum hér á landi
né erlendis.
Þegar viðtalið fer
fram er Helgi að hefja
þriðja dag sinn í starfi.
segist enn vera að
setja sig inn í hlutina,
lesa skýrslur og ræða
við samstarfsmenn
og vill lítið nýtt segja
um fjárhagsstöðu og
einstök viðfangsefni í
rekstrinum.
Spurður um almenn-
ar skoðanir sínar í
orkumálum og auð-
lindastjórnun segir
Helgi Þór: „Ég er
maður hófsamra við-
horfa og þess að setja
ekki öll eggin í sömu
körfu. En ég er ekki
ráðinn til að vinna að
stefnumótun eða hafa
skoðanir á orkumál-
um og auðlindanýt-
ingu, heldur til að vera verkstjóri
í umfangsmiklum aðgerðum sem
þurfa að fara af stað hér næstu
vikur og mánuði.“
Eftir að tilkynnt var um ráðn-
ingu Helga Þórs í forstjórastólinn
var það rifjað upp á Netinu að hann
stýrði fyrir tæpum tíu árum fyrir-
tæki sem hét Magma og var í eigu
Landsbankans, sem þá var ríkis-
banki, og 3P Fjárhúsa, fjárfesting-
arfyrirtækis í eigu Hagkaupsfjöl-
skyldunnar. Þetta fyrirtæki hafði
það hlutverk að leita að fjárfest-
ingartækifærum í orkugeiranum.
Þegar blaðamaður spyr hvort þessi
bakgrunnur þýði ekki að hann sé
meðal reyndustu manna í íslensku
orkuútrásinni vísar Helgi Þór því á
bug að hægt sé að tengja þessi störf
hans orkuútrás.
„Fyrir tíu árum var ég í því verk-
efni að stofna fjárfestingasjóð sem
átti að fjárfesta í fyrirtækjum
sem tengdust orku. Þarna komu
að fræðimenn úr
háskólanum og menn
sem áttu peninga
og Landsbankinn
var þarna. Það voru
stofnuð tvö félög.
Sjóðurinn hét Magma
og svo var stofnað
félag um reksturinn
og það hét Alterna.
Það er auðvitað bráð-
fyndið í dag.“
Ross Beaty og
félagar í Magma
Energy, kanadísku
móðurfélagi HS
Orku, komu þó hvergi
nærri því Magma-
fyrirtæki sem Helgi
Þór starfaði við fyrir
tæpum tíu árum. „Í
þessu starfi vann
ég við að skoða við-
skiptaáætlanir fyrir
alls konar sprotafyr-
irtæki sem þurftu
peninga. Það var búið
að safna töluverðum peningum í
þennan sjóð Magma, en þeir voru
aldrei innkallaðir. Landsbankinn
var stærsti bakhjarlinn og ég held
að hann hafi að lokum leyst þessi
félög til sín.“
Helgi Þór segist hins vegar
fagna því að geta útskýrt málið
því að hann hefur orðið var við tor-
tryggni í umræðu um þetta á Net-
inu og ræðir um að tortryggni ein-
kenni oft þjóðfélagsumræðu hér á
landi, ekki síst um orkumál.
Vil að ímyndin verði betri
„Þetta fyrirtæki sem ég hef verið
fenginn til starfa hjá er mjög öfl-
ugt fyrirtæki sem veitir mikil-
væga þjónustu og er lykilfyrir-
tæki í borginni. Ég hef kennt fólki
hér verkefnastjórnun og haldið
hér fræðilega fyrirlestra og veit
að hér er ofboðslega mikil þekk-
ing og reynsla. Mig langar til að
þjappa þessum hóp saman enn
betur og ég vil að ímyndin verði
betri og að það góða starf og sá góði
hugur sem einkennir starfsemina,
séð héðan innan frá, sjáist betur í
umhverfinu. Liður í því er að eyða
tortryggni og að hafa hlutina fyrir
opnum tjöldum. Það er meðal ann-
ars talað um að hafa ferli við ráðn-
ingu á nýjum forstjóra og ég mun
taka þátt í að móta það ferli. Við
ætlum að hafa þetta allt opið og
slá á þá tortryggni sem maður sér
í fjölmiðlum og á bloggi, þar sem
gert er ráð fyrir að allt sé á versta
veg. Það er ekki þannig.“
Helgi Þór lærði vélaverkfræði
og hlaut doktorsnafnbót fyrir sex-
tán árum. Hann menntaði sig í stór-
iðjufræðum og starfaði meðal ann-
ars hjá Íslenska járnblendifélaginu,
sem nú er hluti af norska stórfyr-
irtækinu Elkem. Hann hefur því
fylgst vel með stóriðju- og orku-
málum Íslendinga undanfarin ár.
„Það hafa orðið ótrúlegar breyt-
ingar á þessum tíma og viðhorf til
þessa rekstrar hafa breyst,“ segir
Helgi Þór.
Hugsum öðruvísi
„Þegar ég kom fyrst að málum var
umræðan öll á þá lund að það þurfti
að virkja og byggja verksmiðj-
ur. Sextán árum síðar eru komin
fram viðhorf sem mér finnst góð
en var ekki mikið talað um á þess-
um tíma.“
„Það er ekki langt síðan lög um
mat á umhverfisáhrifum voru sett
og við fórum að leggja áherslu á
að láta umhverfið njóta vafans.
Umræðunni um sjálfbærni hefur
fylgt mikill kraftur sem hefur
breytt landslaginu í þessum málum.
Við hugsum öðruvísi um þessi mál
en við gerðum. Það er hið besta
mál og veitir mikið aðhald. Ég er
talsmaður hófsamra viðhorfa og
þess að setja ekki öll eggin í sömu
körfu en við ætlum líka að láta hjól
atvinnulífsins snúast og nýta auð-
lindir á ábyrgan hátt.“
Ég ætla að verða aflvaki breytinga
Helgi Þór Ingason er 45 ára, dósent í véla- og iðnaðarverkfræði og forstöðu-
maður meistaranáms í verkefnastjórnum í Háskóla Íslands.
Hann lauk M.Sc.-prófi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands
1991, doktorsprófi í framleiðsluferlum í stóriðju frá tækniháskólanum í
Þrándheimi 1994 og prófi í verkefnastjórnun frá Stanfordháskóla 2009.
Helgi Þór hefur starfað sem verkefnisstjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri
Íslenska járnblendifélagsins og gæðastjóri verkfræðistofunnar Línuhönn-
unar. Hann er annar tveggja frumkvöðla Als álvinnslu hf. og hefur verið
stjórnarformaður félagsins og áður framkvæmdastjóri. Á námsárum sínum
starfaði hann meðal annars sem blaðamaður á Morgunblaðinu.
Helgi Þór býr með átján ára syni sínum, Andra Snæ, í Árbæjarhverfinu í
Reykjavík og er í sambandi með Guðrúnu Kristínu fatahönnuði. Tónlist er
helsta áhugamál hins nýja forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Miðvikudagskvöld
eru heilög og frátekin fyrir æfingar með hljómsveitinni South River Band.
Helgi Þór segist vera píanóleikari að upplagi en spilar á harmóníku í hljóm-
sveitinni sem hefur gefið út plötur og spilað víða um land og hélt síðast
tónleika á fiskideginum mikla á Dalvík í byrjun mánaðarins. Næstu tónleikar
eru fyrirhugaðir á Rosenberg 7. október.
Dósent, einstæður faðir og harmóníkuleikari
Sjóðurinn hét
Magma og svo
var stofnað fé-
lag um rekstur-
inn og það hét
Alterna. Það er
auðvitað bráð-
fyndið í dag.
Helgi Þór Ingason,
dósent í verkfræði við
HÍ, var óvænt ráðinn
forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur í vikunni.
Fyrirtækið rambar á
barmi gjaldþrots og er
skuldar 240 milljarða
króna. Pétur Gunnars-
son ræddi við Helga
Þór sem verður aðeins
í starfi í nokkra mán-
uði en á þeim tíma
verða teknar óvinsælar
ákvarðanir um gjald-
skrárhækkanir og upp-
sagnir starfsfólks.
FORSTJÓRI Helgi Þór Ingason verður
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur um
skamma hríð en á miklum umbreyting-
artímum. Fyrirtækið þarf að skera mikið
niður og hækka gjaldskrár, auk þess
sem það stendur til að skipta því upp
til þess að skilja samkeppnisrekstur og
einkaleyfisrekstur að.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA