Fréttablaðið - 21.08.2010, Side 26
26 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
T
vö ótvíræð morðmál
tuttugustu aldarinnar
á Íslandi teljast form-
lega óupplýst.
Í fyrra tilvikinu var
um að ræða morð á
Kristjáni Guðjónssyni prentara,
sem fannst örendur í bragga við
höfnina í Reykjavík á öðrum degi
jóla árið 1945. Talið er að Kristj-
áni hafi verið veitt mörg þung
hnefahögg með þeim afleiðingum
að hann rotaðist, en hinn óþekkti
árásarmaður hafi þá haldið
áfram að berja Kristján með bar-
efli. Höfuðáverkarnir hafi dregið
hann til dauða.
Greinilegt var að morðinginn
hafði leitað í vösum á jakka og
frakka Kristjáns, en ekki talið
líklegt að hann hafi haft mikið
upp úr krafsinu. Lögreglunni
tókst aldrei að komast til botns
í málinu. (Heimild: Ísland í ald-
anna rás 1900-1950: Saga lands
og þjóðar ár frá ári e. Illuga Jök-
ulsson o. fl.)
Morðið við Laugalæk
Síðara óupplýsta morðmálið á
tuttugustu öldinni vakti mikinn
óhug, hafði gríðarleg áhrif á sam-
félagið og þótti bera því vitni að
Íslendingar væru ekki lengur
óhultir fyrir grimmdarverkum
af því tagi sem helst heyrðist af
erlendis.
Snemma morguns þann 18. jan-
úar 1968 fannst 42 ára gamall
leigubílstjóri hjá Hreyfli, Gunnar
S. Tryggvason, myrtur í leigubíl
sínum sem lagt var við Laugalæk
í Reykjavík. Gunnar hafði verið
skotinn af stuttu færi úr aftur-
sæti bílsins með byssu sem síðar
kom í ljós að var í eigu þekkts
hótelhaldara í borginni, en byss-
an hafði raunar horfið úr hirslum
hans nokkru fyrir morðið.
Allt útlit var fyrir að um rán-
morð væri að ræða, og í kjölfar-
ið fylgdi viðamesta rannsókn á
glæpamáli sem íslenska lögregl-
an hafði fengist við fram að því.
Rúmlega ári eftir morðið var
annar leigubílstjóri handtekinn,
grunaður um verknaðinn, en þá
var umrætt morðvopn fundið. Sá
sat í gæsluvarðhaldi í tæpt ár og
viðurkenndi að hafa haft byss-
una undir höndum en svo tapað
henni og fundið aftur. Þrátt fyrir
útskýringarnar, sem dómurum í
málinu þóttu bæði tortryggilegar
og fjarstæðukenndar, var maður-
inn sýknaður af ákæru um morð-
ið á Gunnari S. Tryggvasyni.
Í bók sinni Morðið á Laugalæk,
sem gefin var út árið 2007, rekur
höfundurinn, Þorsteinn B. Einars-
son, sem starfaði á Alþýðublaðinu
á þeim tíma sem þessir atburðir
áttu sér stað, rannsókn málsins
og bendir á ýmis atriði sem betur
hefðu mátt fara.
Í lok bókarinnar bendir Gunn-
ar á það að lögreglumenn sem
tóku þátt í rannsókninni hafi ekki
verið ánægðir með sýknudóm
sakadóms á sínum tíma og séu
það heldur ekki í dag. Lögreglan
hafi verið sannfærð um að rétt-
ur maður hafi verið ákærður og
sú staðreynd að ekkert hafi verið
gert til að rannsaka málið frekar
segi sína sögu. Morðið á Gunnari
sé eitt af þessum „upplýstu óupp-
lýstu“ sakamálum.
Á Íslandi er í raun óalgengt að rannsókn morðmála drag-
ist á langinn, því í flestum tilfellum er gerandinn hand-
tekinn á morðstaðnum eða mjög skömmu eftir ódæðið.
En sú er þó ekki raunin í öllum tilfellum, og komið hefur
fyrir að dágóður tími líði áður en botn fæst í málið, eins
og í eftirtöldum dæmum.
Hryllilegt morð á bensínstöð
Árið 1991 voru Guðmundur Helgi Svavarsson, 28 ára, og
Snorri Snorrason, 34 ára, dæmdir í sextán og sautján ára
fangelsi í Hæstarétti fyrir morð á Þorsteini Guðnasyni,
starfsmanni bensínstöðvar við Stóragerði í Reykjavík.
Starfsmanninum hafði verið misþyrmt grimmilega,
meðal annars með melspíru, og komust misyndismenn-
irnir undan með um 200.000 krónur í reiðufé. Sá eldri
af morðingjunum hafði raunar unnið á bensínstöðinni
um hríð og þekkti vel til fórnarlambsins, en báðir voru
mennirnir djúpt sokknir í óreglu þegar atburðurinn átti
sér stað.
Lögreglan hafði rannsakað morðið í nokkra daga áður
en ábending úr undirheimum borgarinnar leiddi hana á
slóð hinna dæmdu.
Morðinginn tók þátt í leitinni
Árið 2001 var Atli Helgason dæmdur í sextán ára fangelsi
fyrir að hafa banað Einari Erni Birgissyni, viðskiptafélaga
sínum, með hamri í Öskjuhlíð í nóvember árið áður.
Mennirnir tveir ráku saman verslunina Gap á Laugavegin-
um. Þeir höfðu báðir getið sér gott orð sem knattspyrnu-
menn áður en harmleikurinn átti sér stað. Á þeirri tæpu
viku sem leið frá morðinu og þar til Atli Helgason var
handtekinn fór meðal annars fram víðtæk leit að Einari
Erni sem vinir og aðstandendur skipulögðu og Atli tók
þátt í, en síðar kom í ljós að hann hafði komið líkinu fyrir
í hraunsprungu vestan við Grindavíkurveg eftir verknað-
inn.
Þegar DV ræddi við Atla tveimur dögum eftir morðið,
þegar leit að Einari stóð enn yfir, sagði hann hvarfið
vera óskiljanlegt. „Ég stend á gati og hugsa í hringi,“ var
haft eftir Atla í blaðinu. Fyrir dómi bar Atli að deilur um
fjárreiður fyrirtækisins hefðu orðið kveikjan að árásinni í
Öskjuhlíð.
Reyndist lögreglunni erfiður
Hákon Eydal var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 2005
fyrir að hafa myrt sambýliskonu sína og barnsmóður, Sri
Rhamawati, í byrjun júlí árið 2004. Var Hákon fundinn
sekur um að hafa veist að Sri, slegið hana í höfuðið með
kúbeini, vafið taubelti um háls hennar og kyrkt hana. Í
rannsókn lögreglunnar bárust böndin strax að Hákoni.
Að nokkrum dögum liðnum var hann handtekinn og sat
hann í stífum yfirheyrslum í tæplega þrjár vikur áður en
hann játaði að hafa orðið Sri að bana.
Eftir játninguna reyndist Hákon þó lögreglu erfiður
við rannsóknina og afvegaleiddi hana með því að halda
því fram að hann hefði hent líkinu í sjóinn við Kjalarnes.
Eftir vikulanga leit björgunarsveita og fleiri benti Hákon
loks á staðinn þar sem hann hafði komið líkinu fyrir,
í hraun sprungu í nágrenni Hafnarfjarðar, mánuði eftir
morðið. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að atlaga
Hákons að Sri hefði verið heiftarleg og meðferð hans á
líkinu smánarleg.
Torleyst og óupplýst morðmál
Hér á landi er algengast að morðmál leysist nær strax. Sum eru þó torleyst og önnur leysast jafnvel aldrei. Hólmfríður Helga
Sigurðardóttir og Kjartan Guðmundsson rifjuðu upp nokkur dæmi og ræddu við Helga Gunnlaugsson afbrotafræðing.
Eftir því sem fleiri dagar líða frá
morðinu á Hannesi Helgasyni verð-
ur málið óvenjulegra fyrir íslenskar
aðstæður, þar sem flest morðmál
leysast nær strax hér á landi. Þetta
segir Helgi Gunnlaugsson, afbrota-
fræðingur og prófessor við Háskóla
Íslands, sem tekur fram að hann
hafi ekki kynnt sér rannsókn þess
máls sérstaklega. Hann segir að
yfirleitt leysist morðmál á mjög
skömmum tíma hér á landi og
þá séu fá óleyst manndrápsmál á
Íslandi.
Helgi segir það helst einkenna
morð á Íslandi að oftar en ekki séu
tengsl milli þolenda og gerenda. Oft
á tíðum sé um ástríðuglæp að ræða
eða þá að áfengi eða fíkniefni komi
við sögu. Ekki sé heldur óalgengt að
morðinginn gefi sig sjálfur fram.
Hann segir marga óttast að
morðum, þar sem gerandinn er
ókunnugur fórnarlambinu, fari fjölg-
andi, svo og morð tengd skipulagðri
glæpastarfsemi. Hins vegar bendi
fátt til þess, né heldur hafi algeng-
ustu ástæður morða, eða aðferð-
irnar sem beitt er, breyst á áberandi
hátt. „Ef það er mikið um óleyst
morð í samfélagi er það merki um
skipulagða glæpastarfsemi.
Hjá okkur er mjög lítið um
slík morð, af því að þau
eru yfirleitt tengslabundin.
En um leið og tengslin
færu að fjarlægjast, og
morðin upplýsast ekki,
gæti það verið merki um
að skipulögð glæpastarfsemi
væri að festa sig í sessi.“
Þar sem Ísland sé
fámennt samfé-
lag geti komið
ár sem skekki
myndina
verulega. Til
að mynda hafi
fimm morð eitt árið híft okkur upp
í meðaltal annarra Vesturlanda. „En
þetta er merkingarlaust. Við verðum
að horfa yfir lengri tímabil, tíu
eða tuttugu ár. Þegar við skoðum
síðustu tuttugu ár sjáum við engar
reginbreytingar. Fyrir árið 1980 voru
morð fátíðari en segja má að eftir
það höfum við færst inn í nútímann
og ekki svo margt hafi breyst síðan.“
Helgi var staddur á afbrotaþingi í
Kaupmannahöfn þegar blaðamaður
Fréttablaðsins hafði samband, þar
sem meðal annars var verið að bera
saman morðtíðni hér og í öðrum
Evrópulöndum. Í þeim samanburði
kemur Ísland vel út. „Ísland er
með 0,6 til 0,7 morð á hverja 100
þúsund íbúa á ári hverju. Það er
með því minnsta sem sést í Vestur-
Evrópu. Hin Norðurlöndin eru með
tíðni á bilinu 0,9 til 1,1, en Finnar
eru með 2,2 morð á hverja 100
þúsund íbúa.“
Hann segir kollega sína frá öðrum
löndum hafa rekið upp stór augu
er þeir skoðuðu íslenska tölfræði
og sjá að enn koma ár þar sem
engin morð eru framin. „Þetta finnst
mönnum ótrúlegt, að það skuli vera
til svoleiðis samfélög í dag. Það er
auðvitað mjög áhugaverð stað-
reynd, en aftur er nauðsynlegt
að hafa smæð samfélagsins
í huga þegar þessar tölur eru
skoðaðar.“
Verður óvenjulegra eftir því sem dagarnir líðaTorleyst morðmál á Íslandi
HELGI GUNNLAUGSSON
AFBROTAFRÆÐINGUR Segir fátt
benda til þess að
tegundir morða,
eða aðferðirnar
sem beitt er,
hafi breyst á
undanförn-
um árum.
NÓVEMBER 2000 Atli Helgason leiddur fyrir dómara hjá
Héraðsdómi Reykjaness. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
ÁGÚST 2004 Fundarstaður líksins af Sri Rahmawati í nágrenni
Hafnarfjarðar. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
JANÚAR 1968 Gunnar Tryggvason fannst myrtur í leigubíl sínum sem lagt var við Laugalæk. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR