Fréttablaðið - 21.08.2010, Page 28

Fréttablaðið - 21.08.2010, Page 28
28 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR „Nú er ég að fara að koma með barnavörulínu, vonandi bara fyrir jólin. Fólk sem er að nota svona vörur vill náttúrulega líka svona vörur fyrir börnin sín.“ segir Sóley Elíasdóttir, leikkona og frumkvöðull, brosandi um leið og hún býður blaðamann velkom- inn á vinnustofu sína í Hafnar- firði. Sóley stofnaði fyrirtækið Sóley Organics haustið 2007 og framleiðir snyrtivörur, smyrsl og sjampó úr jurtum. Sóley byrjaði framleiðslu smyrsla úr íslenskum jurtum í eldhúspottunum heima áður en hún flutti sig um set í vinnustof- una. „Ég flutti fyrirtækið hingað og var með þetta í þessum stóru pottum,“ upplýsir Sóley og bendir með blálökkuðum vísifingrinum á venjulega eldhúspotta sem standa á eldavél í vinnustofunni. „Svo færði ég mig yfir í þennan pott.“ Mun stærri pottur stendur í einu horni vinnustofu Sóleyjar. „Núna er framleiðslan á öðrum stað og þetta er bara orðin skrifstofan.“ Mikill plöntuvirkniáhugi Áður en Sóley stofnaði fyrirtækið var hún leikkona sem lengi hafði haft áhuga á plöntuvirkni. „Í raun og veru hef ég alltaf haft mjög mikinn áhuga á allri lyfjafræði þó ég hafi ekki lært hana. Það var það sem ég ætlaði alltaf að gera en svo bara lenti ég í leiklist. Þegar maður lendir í leiklist þá tekur hún mann og á líf manns.“ Sóley hóf leiklistarferil sinn ung í Kram- húsinu. Hún segir að sér hafi legið mikið á og fór átján ára í leiklist- arnám í London. „Ég kláraði ekki einu sinni stúdentspróf.“ Sóley lék í Borgarleikhúsinu í fimmtán ár. „Ég er ekkert vond leikkona en ég er ekkert sérstök leikkona. Ég sá mig ekki verða gamla í leiklist,“ segir Sóley og heldur áfram: „Lífernið var líka að drepa mig. Líf leikarans að vera að vinna öll kvöld og allar helgar. Það spilaði líka stóran þátt hjá mér að ég er mikil skíðakona og mig var búið að dreyma oft um að fara til útlanda á skíði en ég gat aldrei farið út af leikhúsinu.“ Fullt af hugmyndum Sóley segist lengi hafa velt því fyrir sér hvað hún vildi gera í staðinn fyrir að vera leikkona. „Ég er búin að vera með fullt af hugmyndum um alls konar. Ég er búin að stofna leikhóp í Hafnar- firði sem er Hafnarfjarðarleik- húsið í dag. Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að gera leikhús sem ég held að breyti einhverju hjá fólki, breyti þankagangi,“ útskýrir Sóley og bætir af festu við að hana hafi ekki lengur langað til að leika. „Ekki á sviði, Guð minn góður! Ég á náttúrulega mjög mikið af leik- aravinum og ég finn alveg til með þeim þegar þeir eru að fara út á kvöldin að vinna. Kannski kemur áhuginn svo aftur. Ég er til dæmis að leika í sjónvarpsmynd núna, reyndar bara einhverja tvo þrjá daga.“ Eftir að Sóley ákvað að leggja leiklistina á hilluna fór hún á nám- skeið hjá Iðntæknistofnun sem hét Stofnun og rekstur smáfyrirtækja. Hún var í upphafi með aðra við- skiptahugmynd en þá sem varð að veruleika í kollinum. „Sem var of stór í sniðum svo ég ákvað að gera viðskiptaáætlun út frá græðinum sem ég er búin að vera að gera í mörg ár. Svo bara vatt þetta ein- hvern veginn upp á sig,“ segir Sóley brosandi. „Ég byrjaði með tvær vörur, KISStu mig og GRÆÐIR. Hug- myndin var að það sem þú berð á húðina er fæða fyrir húðina,“ segir Sóley en fyrirtækið býður í dag ýmsar tegundir snyrtivara, sjampó og smyrsl. „Þetta þróað- ist bara í þessa átt. Ég er engin snyrtivörukona en ég hef alltaf hugsað vel um það sem ég set ofan í mig. Ég er ekki snyrtifræðings- týpa þótt ég leggi mikið upp úr því að líta vel út og sé alveg skvísa.“ Skoðaði bækur og leitaði ráða Vörurnar hefur Sóley þróað sjálf og þær eru umhverfisvænar og án aukaefna. „Hugmyndin var upp- haflega að koma jurtunum sem eru í GRÆÐI í sjampó. Þannig byrjaði ég að reyna. Ég var að reyna alls konar leiðir og þetta var langt ferðalag. Ég skoðaði alls konar bækur, leitaði ráða hjá fólki og talaði við efnafræðinga og lyfjafræðinga,“ segir Sóley og bætir við að það séu mjög fáir sem hafa þekkingu á hvernig hægt er að búa til snyrtivörur án rotvarn- arefna. Svo byrjaði blöndunin. „Hvaða olíur eru góðar til að setja á mig. Hvaða olíur myndi ég vilja setja ofan í mig, hvað gera þær fyrir mig. Svo blandaði ég kannski þess- um olíum saman og til þess að búa til krem þarf að blanda vatni við það og bæta vaxefni við í hrærivél. Þannig byrjar þetta,“ segir Sóley en virku efnin í snyrtivörum henn- ar eru íslensku plönturnar. „Plönt- urnar hafa einhverja ákveðna eig- inleika, eins og birki, vallhumall og víðir.“ Seinna bað hún vini og vandamenn um að prófa vörurnar sem tóku því allir vel og hún fann fyrir miklum stuðningi. Fyrsta lífræna vottunin Plönturnar í vörum Sóleyjar eru allar handtíndar. Sóley tínir þær í landi Snorrastaða rétt hjá Laugar- vatni, Vallarnesi og í Borgarfirði. „Ég byrjaði bara hérna upp við Kaldársel en ég er búin að tína úti um allt,“ segir Sóley en fljótlega munu vörur hennar fá fyrstu líf- rænu vottunina. „Ég er að fá vott- un fyrir eyGLÓ andlitskremin, GRÆÐIR og KISStu mig, hrein og nærð,“ segir Sóley og dýfir fingri í eina snyrtivörukrukkuna og ber kremið á hendur sínar. Hún heldur svo frásögninni áfram. „Ég sótti um lífræna vottun fyrir tveimur árum fyrir landið sem ég tíni á. Svo þurfti verksmiðjan að fara í gegnum ferlið. Í rauninni er þetta alveg rosalegt gæðaeftirlit. Það er algjör gæðastimplun á vörur að vera með vottun.“ Sóley stefn- ir á að hafa barnalínu sína einnig lífrænt vottaða. Sóley segir fyrirtækið í stöðugri mótun. Hún er þakklát fyrir að fyrirtækið hafi ekki stækkað allt of hratt í byrjun en hefur þó hún fundið fyrir gríðarlegum áhuga erlendis frá. „Ég var til dæmis komin með mjög flottan dreifing- araðila í Danmörku, þeir hættu við þegar ég var komin hálfa leið inn í Matas. Í rauninni sem betur fer því það getur orðið fyrirtækj- um að falli að stækka allt of hratt. Ég er í ferli bæði í Bretlandi, Dan- mörku og svo er ég að selja í eina búð í Þýskalandi.“ Sóley er líka að opna vefsíðu sem verður sölusíða fyrir útlönd, www.soleyorganics. com. „Týpískur frumkvöðull“ En hvað hefur drifið þig áfram? „Ég er bara með athyglisbrest og smá ofvirk. Einhver sagði að ég væri „týpískur frumkvöðull“, ég fæ hugmyndir og geri eitthvað við þær. Ég er svolítið fljótfær og bara geri hlutina,“ segir Sóley um leið og hún rennir sólgleraugunum fram af enninu niður á nef, lokar svala- hurðinni og kveður blaðamann á þessum nótum: „Ég fer með það sem ég ætla mér alla leið.“ Vildi ekki verða gömul í leiklistinni Barnavörulína og lífræn vottun eru næstar á dag- skrá hjá Sóleyju Elíasdóttur leikkonu og frum- kvöðli. Sóley stofnaði fyrirtækið Sóley Organics árið 2007. Marta María Friðriksdóttir hitti Sóleyju og ræddi við hana um stofnun fyrirtækisins í eld- húsinu í Hafnarfirði, leikhúsið og athyglisbrestinn. FULL AF HUGMYNDUM UM ALLS KONAR „Einhver sagði að ég væri „týpískur frumkvöðull“, ég fæ hugmyndir og geri eitthvað við þær.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON EKKI HVÖTT Á LEIKLISTARBRAUTINA Eygló Hilmarsdóttir er tekin af leiklistinni að sögn Sóleyjar hún er hér með samleikara sínum í Gauragangi, Sigurbjarti Atlasyni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þrjár dætur Sóleyjar og eiginmanns hennar, Hilmars Jónssonar, leikstjóra og leikara, hafa allar stigið sín fyrstu skref á leiklistarbrautinni. Sonurinn er eini fjölskyldumeðlimurinn sem ekki hefur stigið á svið enn þá. „Börnin gera náttúrulega það sem þau vilja gera en við erum ekki neitt sértaklega að hvetja þau til þess að fara í leiklistina. Alls ekki.“ Eygló Hilmarsdóttir, dóttir þeirra hjóna, hefur verið áberandi síðustu mán- uði vegna leiklistarinnar. Hún lék í Herranótt fyrr á árinu í LoveStar, verki Andra Snæs Magnasonar og fer með hlutverk í kvikmyndinni Gauragangur sem unnið hefur verið að í sumar. „Eygló er svolítið tekin af leiklistinni. Ég hugsa að Eygló verði alveg örugglega leikari.“ Elsta dóttirin, Gígja Hilmarsdóttir, hefur minni áhuga en systir hennar á leiklistinni en hefur þó stigið á svið. „Hún er samt mjög skapandi og listræn. Ég trúi að hún gæti orðið leikstjóri eða textahöfundur. Hún er flink að setja saman texta og ljóð. Hún er líka mjög flott á sviði en hefur meiri áhuga á að verða hjúkrunarfræðingur eða sjúkraþjálfari núna. Íþróttirnar tóku yfir hjá Gígju.“ Þórunn, yngsta dóttirin, hefur tekið þátt í tveimur leiksýningum. „Einni í Þjóðleikhúsinu og hinni í Hafnarfjarðarleikhúsinu.“ Leiklistaráhuginn er í fjölskyldunni Einhver sagði að ég væri „týpískur frum- kvöðull“, ég fæ hug- myndir og geri eitt- hvað við þær.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.