Fréttablaðið - 21.08.2010, Page 37
menning
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
ágúst 2010
K
vikmyndin Sumarlandið
verður frumsýnd 3. sept-
ember. Hún er fyrsta
mynd leikstjórans Gríms
Hákonarsonar í fullri
lengd en hann hefur áður getið sér
gott orð fyrir stuttmyndir á borð við
Bræðrabyltu og Slavek the Shit.
Sumarlandið er gamanmynd sem
fjallar um fjölskyldu sem rekur
álfatengda ferðaþjónustu og býður
upp á miðilsfundi. Hús hennar er
byggt í kringum frægan álfastein,
sem er heilagur í augum aðalpers-
ónunnar Láru sem hefur yfir-
skilvitlega hæfileika. Þegar fjöl-
skyldan fær freistandi kauptilboð
í steininn frá þýskum kaupsýslu-
manni vill eiginmaðurinn Óskar
ólmur selja hann og það á eftir að
setja allt úr skorðum.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikur
Láru og Kjartan Guðjónsson leik-
ur Óskar. Með smærri hlutverk
fara Snorri Engilbertsson, Hall-
fríður Tryggvadóttir og Nökkvi
Helgason.
Geimverur og Jónas frá Hriflu
Grímur Hákonarson er að vonum
spenntur fyrir frumsýningunni.
„Það er dálítið spenningur yfir
því hvernig viðtökurnar verða. En
ég hef fengið ágætis viðbrögð frá
fólki sem hefur séð hana, þannig
að maður er aðeins rólegri,“ segir
Grímur. „Ég er líka spenntur að sjá
hvernig útlendingarnir taka henni,
þó svo að hún sé fyrst og fremst
hugsuð fyrir íslenskan markað.“
Grímur hefur lengi haft áhuga
á öllu batteríinu í kringum spírit-
ismann hér á landi og ákvað að gera
svolítið grín að því í nýju myndinni.
„Ég gerði áður stuttmynd sem hét
Síðustu orð Hreggviðs sem fjall-
ar um mann sem gengur aftur til
að geta birt grein í Mogganum.
Svo sá ég Six Feet Under-þættina
sem fjalla um fjölskyldu sem rekur
útfaraþjónustu þar sem þemað
er líf og dauði. Mér datt í hug að
íslenska útgáfan af þessu yrði að
sjálfsögðu sálarrannsóknarfélag-
ið og miðilsfundir því þar er verið
að díla mikið við dautt fólk,“ segir
Grímur og heldur áfram: „Þetta er
mjög skemmtilegur bransi. Geim-
verurnar, álfarnir og allur pakkinn.
Þetta er skemmtilegur efniviður og
fullkominn í gamanmynd.“
Til að undirbúa sig fyrir mynd-
ina fór Grímur á transmiðilsfundi
hjá Magnúsi Skarphéðinssyni, for-
manni Sálarrannsóknarfélags
Reykjavíkur, en þar talar dáið fólk
í gegnum miðilinn. „Þá komu upp
gamlir stjórnmálamenn, Jónas frá
Hriflu og Ólafur Thors, og voru eitt-
hvað að tala um ESB og evruna. Það
var gaman að því,“ segir Grímur
og hlær og tekur fram að þeir hafi
ALLIR LIFA Í
sæluvímu
Í SUMARLANDINU
Fyrsta kvikmynd Gríms Hákonarsonar í fullri lengd,
Sumarlandið, verður frumsýnd 3. september. Freyr
Bjarnason ræddi við hann um myndina og ferilinn,
sem spannar yfi r fi mmtán ár.
KVIKMYNDIR FREYR BJARNASON
FRAMHALD Á SÍÐU 6
Auður Ava
tilnefnd
Auður Ava Ólafs-
dóttir er tilnefnd til
bókmenntaverð-
launa í Frakklandi
fyrir skáldsöguna
Afleggjarinn.
SÍÐA 10
Ljósmyndasýning
með undirspili
Ljósmyndarinn
Ragnar Axelsson
heldur ljós-
mynda-tónsýn-
ingu í Listasafni
Reykjavíkur.
SÍÐA 2
Hágæða þvottavélar
Hljóðlátar og byggðar til að endast
KYNNINGAR
TILBOÐ