Fréttablaðið - 21.08.2010, Side 38
MENNING 2
menning kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Freyr
Bjarnason Hönnun: Kristín Agnarsdóttir Forsíðumynd: Valgarður Gíslason Auglýsingar:
Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is
Ljósmynda-
sýning með
myndum
Ragnars
Axelssonar,
RAX, verð-
ur haldin í
Listasafni
Reykjavík-
ur í dag.
LJÓSMYNDIR
FREYR
BJARNASON
LJÓSMYNDASÝNING MEÐ
umhverfishljóðum
Þrjú stór verk verða frumsýnd hjá Leikfélagi Akur-
eyrar í vetur. Fyrst ber að nefna söngleikinn Rocky
Horror sem fer á fjalirnar í nýja menningarhúsinu
Hofi, 10. september.
„Það hefur alveg rokselst á þá sýningu. Við erum
með fimm hundruð manna sal í nýja menningarhús-
inu og það er verið að gera allt klárt þar. Þarna verð-
ur rosalega fullkomið hljóðkerfi og þetta á eftir að
verða dúndursýning,“ segir María Sigurðardóttir,
leikhússtjóri.
Hin stóru verkin tvö er gamandramað Þjónninn
þögli eftir Harold Pinter sem verður frumsýnt í okt-
óber og Farsæll farsi sem verður sýnt í mars á næsta
ári. „Þögli þjónninn fjallar um tvo leigumorðingja.
Þetta er sígildur gamanleikur og mjög fyndið verk,“
segir María og bætir við að Farsæll farsi sé týpískur
farsi sem eigi eftir að vekja mikla lukku.
Fyrir jólin verður haldin hin árlega aðventusýn-
ing Leikfélags Akureyrar, sem verður með breyttu
sniði í ár. Einnig verða fjölmargar gestasýningar í
boði, eða Harry og Heimir, Algjör Sveppi, Jesús litli,
Af ástum manns og hrærivélar og Villidýr og pólitík.
Aukasýningar á dansverkinu Aftursnúið verða einn-
ig á dagskrá, auk þess sem leiklistarskóli fyrir börn
er áfram starfræktur.
Menningarhúsið Hof verður svo opnað í lok ágúst
á Akureyrarvöku og skömmu síðar fer Rocky Horror
þar á fjalirnar „Þetta er rosalega fínt þegar maður
er með svona stórar sýningar,“ segir María um Hof.
„Að vera með 210 manna sal, sem er stærri salur-
inn okkar, getur ekki borgað sig. Við förum þarna
inn með þær sýningar sem henta. Þetta gefur okkur
líka tækifæri til að koma með gestasýningar sem eru
stærri í sniðum en við höfum boðið upp á áður.“
Þrjú stór verk hjá LA
Leikritið In the Beginning er sýnt
þessa dagana í Listasafni Reykja-
víkur í samstarfi við menningar-
nótt. Um er að ræða lokaverk Inga
Hrafns Hilmarssonar við Rose
Bruford College í London og fjall-
ar það um sköpun mannsins.
„Þetta er fallegt verk og mynd-
rænt. Það er mikið af myndum
í því sem við búum til á sviðinu.
Þetta er án orða og þá túlkar hver
og einn verkið á sinn eigin hátt,“
segir Ingi Hrafn.
Verkið er hálftíma langt og fékk
Ingi fyrstu einkunn fyrir það í
skólanum. „Skólinn sendi mig til
að taka þátt í festivali með verkið
en svo fór ég reyndar ekki á það.
En það var heiður að fá að vera
tilnefndur í það. Ég hef ætlað að
setja þetta verk upp síðan ég kom
heim og ég fékk þann heiður að
setja þetta upp í Listasafninu. Mér
finnst þessi staðsetning henta
mínu leikverki mjög vel.“
Enski leikarinn Kane Hus-
bands, sem var í Rose Bruford
College á sama tíma og Ingi, er
meðhöfundur að In the Beginning
og leikur einnig í verkinu.
Leikritið var frumsýnt síðastlið-
inn fimmtudag. Næstu sýningar
verða á menningarnótt og fimmtu-
daginn 26. ágúst og hefjast þær
báðar klukkan 20.30. Aðgangs-
eyrir er enginn. Miðapantanir á
síðarnefndu sýninguna eru í síma
663 9444.
Ingi Hrafn er einn af stofnend-
um Leikhópsins Vinir sem síðast-
liðin tvö ár hefur ferðast um land-
ið með frumsamin leikverk fyrir
börn. Hann starfar mikið með
börnum í tengslum við leiklist og
leikræna tjáningu. Frá útskrift
hefur Ingi Hrafn tekið að sér ýmis
hlutverk í auglýsingum, mynd-
böndum og kvikmyndum, meðal
annars í samstarfi við Kvik-
myndaskóla Íslands.
Fallegt og myndrænt
Ingi og Husbands sýna leikritið In the Beginning í Listasafni Reykjavíkur.
María Sigurðardóttir er mjög spennt fyrir komandi leikári hjá
Leikfélagi Akureyrar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Ragnar Axelsson, Rax, á norðurslóðum þar sem hann hefur tekið fjölda ljósmynda undanfarin ár.
Á menningarnótt verður sýnd í Listasafni Reykjavíkur ljós-mynda-tónsýning með myndum Ragnars Axelssonar, RAX, frá Grænlandi og Norður-Kanada.
„Þetta er ljósmyndasýning með umhverfis-
hljóðum með sem eykur á tilfinninguna
fyrir myndunum sem er verið að sýna,“
útskýrir Ragnar. Um svokallað „slide-
show“ er að ræða sem tekur um sjö
mínútur í sýningu.
Sýning Ragnars var sérstaklega búin til
fyrir ljósmyndahátíðina Look 3 í Charlotte-
ville í Virginíu í fyrra. Þar var hún sýnd
undir berum himni og vakti mikla lukku.
Ragnar fékk tölvupósta frá fólki sem sagð-
ist hafa grátið og ekki vita hvað það ætti
af sér að gera vegna þess hve myndirnar
væru fallegar og í kjölfarið birti New York
Times myndirnar á ljósmyndabloggi sínu,
sem og fjölmörg virt ljósmyndablogg í
Bandaríkjunum. Myndirnar voru birtar
í Newsweek í Japan og urðu til þess að
kynna væntanlega bók Ragnars, Veiði-
menn norðursins, fyrir mörgum. Hún
kemur út á Íslandi 16. október og er mjög
stórt verk með hátt í 200 ljósmyndum frá
norðurslóðum, flestum þeirra áður óbirt-
um. Hún kemur út um sama leyti í Þýska-
landi og Bretlandi og er væntanleg í fleiri
löndum árið 2011.
Myndirnar hefur Ragnar tekið á undan-
förnum 25 árum og hann hlakkar mikið
til að sjá bókina líta dagsins ljós. „Þetta
er viss léttir og svolítið skrítin tilfinning.
Þetta er búið að vera dálítið erfið fæðing
því þetta er búið að kosta mann mikið því
það er svo dýrt að fara þarna,“ segir hann.
Á sýningunni í Hafnarhúsinu eru tónbrot
frá Grænlandi, vögguvísur og söngl, sem
Ragnar tók upp sjálfur, sem blandað er við
raftónlist. Þessar ljósmyndir Ragnars frá
norðurslóðum hafa um árabil borið hróð-
ur hans víða en hann hefur tekið myndir á
Grænlandi og í Norður-Kanada frá árinu
1987. Með útgáfu Veiðimanna norðursins
og sýningum og umfjöllunum tengdum
henni um allan heim er ljóst að Ragnar er
smám saman að öðlast mikilvægan sess í
ljósmyndun samtímans.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
2:1
í tilefni
Menningarnætur
SJÓ-
STANGVEIÐI
Bjóðum einnig upp á sjóstangveiði,
þú getur grillað um borð eða tekið
veiðina með heim.
ALLA DAGA
kl. 18
Puffin Express / Gömlu höfninni / Reykjavík / 892 0099
2 fyrir 1 alla helgina!
HVALA-
SKOÐUN
3 FERÐIR
DAGLEGA
Kl. 10, 14 og 17