Fréttablaðið - 21.08.2010, Qupperneq 42
MENNING 6
verið Evrópusinnar. „Sumarlandið
er þessi heimur að handan sem allir
fara til samkvæmt spíritisma. Við
förum öll til Sumarlandsins sem er
eins og himnaríki þar sem allir lifa
á loftinu, senda hugskeyti á milli sín
og lifa í einhverri sæluvímu.“
Kreppan bjargaði húsinu
Fyrirtækið Blueeys, sem er í eigu
Baltasars Kormáks og Lilju
Pálmadóttur, framleiðir Sum-
arlandið og kostaði myndin yfir
hundrað milljónir króna. Styrk-
ir frá Kvikmyndamiðstöð Íslands
og Norræna kvikmynda- og sjón-
varpssjóðnum komu þar að góðum
notum. Hinn margreyndi Ari
Kristinsson var tökumaður og
Linda Stefánsdóttir annaðist leik-
myndahönnun. „Baltasar var mjög
hrifinn af handritinu út af þess-
ari kómísku nálgun. Það hafa oft
verið skrifuð handrit um þetta
efni á Íslandi en þau hafa alltaf
verið í þessum alvarlega, dramat-
íska tón. Hann var hrifinn af því
að nálgast viðfangsefnið út frá
þessum léttleika.“
Dagskrá Sinfóníuhljómsveitar
Íslands á þessu starfsári verð-
ur glæsileg sem fyrr. Stórbrotin
hljómsveitarverk verða á dag-
skrá, meðal annars eftir Beet-
hoven, Bruckner og Sjostakov-
itsj, auk tveggja sinfónía Gustavs
Mahler en um þessar mundir eru
150 ár liðin frá fæðingu þessa
mikla meistara.
„Við erum að fara af stað með
mjög metnaðarfullt og glæsilegt
prógram fyrir komandi starfs-
ár og mjög fjölbreytt,“ segir Sig-
urður Nordal, framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Rússneski hljómsveitarstjór-
inn og goðsögnin Gennadij Ros-
destvenskíj verður aðalgesta-
stjórnandi árið 2011 og mun
stjórna tvennum tónleikum á
starfsárinu. Staðarlistamað-
ur þessa starfsárs er síðan hinn
heimskunni fiðluleikari Isabelle
Faust og spilar hún á tvennum
tónleikum.
Auk hefðbundinna sinfóníutón-
leika verður margt annað í boði.
Hópur listamanna mun flytja
Porgy & Bess eftir Gershwin,
Stórbrotin hljómsveitarverk á
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/G
VA
Sigurður Nordal,
framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveit-
ar Íslands, segir að
starfsárið verði afar
metnaðarfullt.
Sumarlandið (2010)
Bræðrabylta (2007)
Slavek the Shit (2004)
Síðustu orð Hreggviðs (2004)
Varði Goes Europe (2002)
Varði fer á vertíð (2000)
Ikologos (2000)
Helgarferð til Auschwitz (1996)
Klósettmenning (1995)
Atvinnuleysinginn (1994)
FRAMHALD AF FORSÍÐU
Sumarlandið fjallar um
fjölskyldu sem rekur
álfatengda ferðaþjónustu
í Kópavoginum.
Grímur hlaut Eddu-verðlaunin fyrir
stuttmyndina Bræðrabyltu.
VERK GRÍMS:
Grímur skemmti sér vel við
tökurnar en þær fóru allar fram
í Kópavoginum þar sem hann ólst
upp, eins og reyndar Baltasar og
Ari. „Þetta var tekið upp í gömlu
húsi á Kársnesinu. Þetta er hús
sem átti að rífa og byggja blokk í
staðinn, svona 2007-pælingar. Svo
kom hrunið, verktakarnir fóru á
hausinn það bjargaðist. Við feng-
um ótakmarkað frelsi til að byggja
heljarinnar leikmynd. Það voru
ákveðin forréttindi fyrir mig að
gera þarna mína fyrstu mynd og
að vinna með mjög reyndu fólki
sem hefur verið að gera helling af
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU