Fréttablaðið - 21.08.2010, Qupperneq 46
21. ágúst 4
„Þetta er kver sem ég ætla að gefa
kennurum kost á að nota í 8.-10.
bekkjum grunnskóla á Íslandi og
fyrstu viðbrögð þeirra eru mjög
jákvæð. Þeir vildu meina að hún
væri jafnvel kjörin fyrir áhuga-
saman almenning sem vildi finna
greiða leið að Njálu og um leið
íhuga tengsl hennar við sam-
tímann,“ segir Arthur Björgvin
Bollason um nýja bók sína,
Lífsleikni Njálu – siðfræði-
leg umhugsunarefni
fyrir ungt fólk sem
er væntanleg um
næstu mánaðamót
en það er Skólavöru-
búðin A4 sem gefur
hana út.
„Ég endursegi ein-
staka kafla sögunn-
ar og legg síðan fyrir
nemendur spurn-
ingar um siðferðileg
álitamál í henni. Endr-
um og sinnum tengi ég
þessi verkefni líka við það
sem hefur verið að gerast
á Íslandi á liðnum miss-
erum svo sem banka-
hrun, búsáhaldabylt-
ingu og fleira,“ lýsir hann
og segir bókarskrifin vera tilraun
til að leiða unga skólanema inn í
heim fornsagnanna og siðfræð-
innar á einu bretti.
Ramminn utan um textann er
samtal Arthurs Björgvins við
ungan son sinn og umræðuefnið
er Njálssaga. Hvaða kafli bók-
a r i n na r sk yld i
stráknum þykja
áhugaverðast-
ur? „Honum
þyk i r k a f l -
inn um Njáls-
brennu mest
spennandi
og sér fyrir sér
hasarinn þar.
Hann furðar
sig líka á því
að gaurarnir í
Hollywood
skuli aldrei
h a fa ger t
mynd um þessa
brennu. Í byrjun er hann ekkert
ógurlega spenntur fyrir Njálu-
þvaðri föður síns en fær smám
saman áhuga fyrir efninu þegar
fram í sækir.“
En hvernig tengir faðirinn
nýliðna atburði á Íslandi við þessa
aldagömlu sögu? „Sonurinn áttar
sig fljótlega á því að sumt sem sagt
er frá í Njálu rímar skemmtilega
við hans eigið líf sem skólanema
á 21. öldinni. Njála með öllum
sínum skrautlegu manngerðum
er auðvitað endalaus uppspretta
hugleiðinga um háttalag og hegð-
un fólks,“ svarar Arthur Björgvin
og nefnir dæmi. „Í eftir mála við
þriðja kafla bókarinnar, sem fjall-
ar um það þegar Hallgerður lætur
þrælinn Melkólf ræna og brenna
útibúrið í Kirkjubæ, eru til dæmis
hugleiðingar um glæp, réttlæti og
refsingu. Þar er velt upp spurn-
ingum um hvaða refsing sé réttlát
fyrir einhvern ákveðinn glæp og
hvort eitthvað sé líkt með tveim-
ur gjörólíkum atburðum, matar-
stuldinum og brennunni í Kirkju-
bæ fyrir þúsund árum og árás
æstra borgara á Alþingishúsið í
byrjun ársins 2009.
gun@frettabladid.is
Tilgangurinn er að slá
tvær flugur í einu höggi
Að kynna bókmenntaarfinn fyrir grunnskólanemum á aðgengilegan hátt og kenna þeim að glíma við
siðferðileg vandamál er markmið Arthurs Björgvins Bollasonar með útgáfu nýrrar bókar, Lífsleikni Njálu.
„Njála með öllum sínum skrautlegu manngerðum er auðvitað endalaus uppspretta
um háttalag og hegðun fólks,“ segir Arthur Björgvin. MYND/ÚR EINKASAFNI
MYNDLISTASKÓLINN Í REYKJAVÍK býður upp á skemmtileg
námskeið fyrir börn og ungt fólk í vetur. Til dæmis í leir og skúlptúr, mynda-
sögum og hreyfimyndum, handverki og hönnun og jafnvel arkitektúr.
Námið er fjölbreytt og miðar að því að efla faglega þekkingu.
Námsbrautirnar eru tilvaldar fyrir þá sem vilja styrkja stöðu
sína á vinnumarkaði og auka við menntun sína. Lögð er
áhersla á öflug tengsl við atvinnulífið, hagnýta nálgun með
raunhæfum verkefnum og virkni nemenda.
Opni háskólinn býður upp á skemmtilegt og lifandi umhverfi
til náms í Háskólanum í Reykjavík við Nauthólsvík.
Mannauðsstjórnun
Skipulag og stjórnun – Stefnumiðuð mannauðsstjórnun – Hagnýt
vinnusálfræði – Fræðsla, þróun og starfsþjálfun – Réttindi og
skyldur á vinnumarkaði – Leiðtogafræði.
Verkefnastjórnun (fjarnám)
Áætlanagerð verkefna – Upplýsingatækni – Leiðtogaþjálfun –
Framleiðsla og gæðastjórnun – Aðferðir við ákvarðanatöku.
Náminu lýkur með alþjóðlegri IPMA-vottun.
Markaðssamskipti og almannatengsl
Markaðsfræði – Framkoma í fjölmiðlum – Sálfræði markaðs-
samskipta – Samhæfð markaðssamskipti – Nýmiðlun.
Í samstarfi við ÍMARK, Almannatengslafélag Íslands og SÍA.
Opni háskólinn í HR býður upp á fjölbreytt úrval námsbrauta
samhliða vinnu á haustönn 2010.
ÞÚ!
ÞETTA SNÝST
UM ÞIG OG FRAMTÍÐINA