Fréttablaðið - 21.08.2010, Síða 47
LAUGARDAGUR 21. ágúst 2010 5
Afþreyingarklúbburinn Hrökkva
& stökkva, sem er ætlaður fólki
með fötlun, tók til starfa fyrir ári
og hefur göngu sína á ný á næstu
dögum. Þroskaþjálfinn Rósa Hrönn
Árnadóttir og grunnskólakennarinn
Halldóra Sigtryggsdóttir standa
fyrir klúbbnum. Þær fengu strax
góð viðbrögð og segja eftirspurnina
mikla.
Klúbburinn er ætlaður öllu fötl-
uðu fólki og leitast þær Rósa og
Halldóra við að bjóða því upp á
alls kyns skemmtun í frístundum.
„Fólkið kemur á eigin forsendum og
skiptir tegund fötlunar ekki máli.
Sumir komast ekki frá heimilum
sínum nema í fylgd með starfsfólki
en við útvegum alla þá aðstoð sem
þarf,“ segir Rósa „Í vetur munum
við grilla í Heiðmörk, fara á kaffi-
hús með lifandi tónlist, fá okkur létt-
an „dinner“, taka myndir og halda
myndasýningu, fara í keilu eða á
skauta og gera eitthvað jólalegt
þegar fer að líða að jólum svo dæmi
séu nefnd.“ Rósa segist leitast við
að velja athafnir sem krefjist virkr-
ar þátttöku. „Við takmörkum okkur
ekki bara við bíó og kaffihús eins og
oft vill verða.“
Hingað til hefur klúbburinn aðal-
lega verið sóttur af fólki sem er
átján ára og eldra en þær Rósa og
Halldóra fengu eindregnar óskir um
að þjónusta líka eldri börn og ungl-
inga. Í vetur verður því boðið upp á
unglingahóp.
Rósa og Dóra höfðu lengi leitað
að verkefni til að vinna að saman
áður en þær duttu niður á klúbb-
inn. „Við erum góðar vinkonur og
langaði að gera eitthvað krefjandi
en um leið skemmtilegt saman.
Við þekkjum báðar vel til fötlun-
armála og fannst þetta kjörið tæki-
færi auk þess sem við vissum að
þörfin var til staðar. Okkur finnst
þetta alveg svakalega gaman sem
ég held að skipti höfuðmáli og geri
starfið betra,“ segir Rósa.
Hóparnir á haustönn munu hitt-
ast hálfsmánaðarlega frá sept-
ember og fram til jóla en nánari
upplýsingar er að finna á www.
stokkva.is.
vera@frettabladid.is
Skemmta sér og öðrum
Vinkonurnar Rósa Hrönn Árnadóttir og Halldóra Sigtryggsdóttir stýra afþreyingarklúbbnum Hrökkva &
stökkva og bjóða fötluðu fólki upp á skemmtun í frístundum sínum. Klúbbnum hefur verið tekið fagnandi.
Rósa og Halldóra þekkja báðar vel til fötlunarmála og vissu að þörfin var til staðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Endurmenntun Háskóla Íslands
heldur í samstarfi við Borgar-
leikhúsið námskeið um Enron.
Námskeiðið hefst á tveimur fyrir-
lestrarkvöldum og lýkur með for-
sýningu leikverksins og umræð-
um.
Námskeiðið hefst 14. septemb-
er á fyrirlestri lögmannsins Páls
Ásgeirs Davíðssonar þar sem
kynntar verða helstu kenningar
um tilgang fyrirtækja og fjall-
að verður um áhrif fyrirtækja í
samfélaginu til góðs og ills. Skoð-
að verður hvernig hnattvæðing
ásamt aukinni vitund um áhrif
fyrirtækja hefur gerbreytt nútíma
viðskiptaumhverfi. Þá verður farið
yfir bakgrunn Enron-málsins og
hvernig leikritið tekur á því.
Seinna kvöldið, þann 16. sept-
ember, munu síðan aðstandend-
ur sýningarinnar, Stefán Jónsson,
leikstjóri og leikmyndahönnuður,
og fleiri kynna verkið og bakgrunn
þess.
Á lokakvöldi námskeiðsins
þriðjudagskvöldið 21. september
er frumsýning leikverksins Enron.
Að sýningu lokinni gefst þátttak-
endum tækifæri til að ræða leik-
gerðina við listræna stjórnendur
og leikara.
Skráningarfrestur er til 6. sept-
ember. - mmf
Hnattvæðing breytt
viðskiptaumhverfi
Leikritið Enron verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu 23. september.
Skráðu þig núna á
www.opnihaskolinn.is
eða hafðu samband við okkur í síma 599 6353