Fréttablaðið - 21.08.2010, Qupperneq 60
21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR12
LÖGFRÆÐINGUR
Samtök atvinnulífsins leita að lögfræðingi til starfa á skrifstofu samtakanna.
Helstu verkefni:
• Gerð og túlkun kjarasamninga
• Lögfræðileg ráðgjöf og þjónusta við aðildarfyrirtæki SA, einkum á sviði vinnuréttar
• Málflutningur f.h. samtakanna eða aðildarfyrirtækja þeirra
• Gerð umsagna um þingmál
• Þátttaka í undirbúningi stefnumótunar samtakanna í fjöl mörgum mikilvægum málaflokkum
• Aðkoma að alþjóðlegu samstarfi
Á vinnumarkaðssviði samtakanna starfa sex lögmenn. Leitað er að öflugum einstaklingi með
embættis- eða masterspróf í lögfræði, nokkra starfsreynslu úr atvinnulífinu eða viðeigandi
starfsreynslu á öðrum vettvangi og/eða viðbótarnám sem nýtist í starfi. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi þekkingu á vinnu rétti og lögmannsréttindi.
Upplýsingar veita Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA, í síma 821 0019
og Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í síma 821 0020.
Umsóknir berist á skrifstofu SA í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, Reykjavík eða með
tölvupósti til ragnar@sa.is.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk.
Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnu-
lífs og málsvari atvinnurekenda í hags muna málum þeirra.
Innan vébanda samtakanna eru átta aðildarfélög sem starfa
á grunni atvinnu greina. Aðild að SA eiga um 2.000 smá og
stór fyrirtæki þar sem starfa u.þ.b. 55.000 starfsmenn eða
um helmingur launamanna á almennum vinnumarkaði á
Íslandi .
Hjá SA starfa 19 starfsmenn sem búa yfir margvíslegri sér-
fræðiþekkingu og sinna m.a. vinnumarkaðs-, efnahags-,
skatta-, umhverfis-, sam keppnis- og mennta málum auk
samstarfs við stjórnvöld og setu í margvíslegum stjórnum
og nefnd um, m.a. samninga hópum vegna aðildar umsóknar
Íslands að ESB. SA taka þátt í alþjóðlegu samstarfi atvinnu-
rekenda en samtökin reka einnig skrifstofu í Brussel.
Nánari upplýsingar um Samtök atvinnu lífsins er að finna á vef SA: www.sa.is
Vátryggingafélag Íslands hf. | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis.is
VÍS er nútímalegt þjónustufyrirtæki með 42 þjónustuskrifstofur víðsvegar um landið.
Markmið VÍS er að vera alltaf í fremstu röð tryggingafélaga á Íslandi og er ánægja
starfsfólks og viðskiptavina lykilatriði í velgengni félagsins. Hjá VÍS starfar framúrskarandi
hópur einstaklinga sem saman myndar sterka liðsheild. Mikil áhersla er lögð á að skapa
starfsfólki gott starfsumhverfi og aðstöðu til að veita viðskiptavinum góða þjónustu. VÍS
vill fela starfsfólki störf við hæfi, þannig að hæfileikar þess og frumkvæði fái notið sín við
áhugaverð og krefjandi verkefni.
Nánari upplýsingar veita Agla Sigríður Björnsdóttir
(agla.bjornsdottir@capacent.is) og Ragnheiður Dagsdóttir
(ragnheidur.dagsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst nk. og skulu umsækjendur sækja
um á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.
Leitum að öflugum starfsmanni í markaðsdeild
Í deildinni starfar hópur fólks sem leggur metnað sinn í árangursríkt markaðsstarf hjá öflugu þjónustu-
fyrirtæki. Óskað er eftir starfsmanni til að sinna fjölbreyttum verkefnum s.s. textagerð, almannatengslum,
umsjón með auglýsingaefni, greiningu tölfræðiupplýsinga og samskiptum við samstarfsaðila.
Menntun og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af markaðs- og kynningarstörfum er æskileg
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Reynsla af almannatengslum og greiningu tölfræðiupplýsinga er mikill kostur
Skipulagshæfni, frumkvæði og nákvæmni í starfi
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Markaðs- og
kynningarstarf hjá VÍS