Fréttablaðið - 21.08.2010, Síða 66
21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR8
Edda Björg Eyjólfsdóttir vonast
til að fá sem flesta í heimsókn á
fatamarkað sem verður í garðin-
um heima hjá henni í dag.
„Ég er búin að taka saman og sitja
á ansi góðu safni af skemmtileg-
um fötum sem að ég vil bara leyfa
öðrum að njóta,“ segir Edda Björg
Eyjólfsdóttir leikkona. Hún og
Ragna Sara Jónsdóttir ætla að
halda fatamarkað og garðsölu í
garði Eddu Bjargar í Miðstræti 5
í dag.
„Maðurinn minn, Stefán Már
Magnússon, ætlar að fara út með
plötuspilarann og spila ljúfa tóna,“
upplýsir Edda Björg og bætir við
það hafi oft komið til tals að það
gæti verið skemmtilegt að halda
markað úti í garði. „Og þá er þetta
einmitt dagurinn til þess.“
Það mun kenna ýmissa grasa á
markaðnum að sögn Eddu Bjarg-
ar. „Föt, skór og glingur, og lítið
barnahjól og pollagalli á krakkana.
Það verður bara hægt að koma og
tylla sér og hlýða á ljúfa tóna á
meðan konan „dressar“ sig upp
og jafnvel að karlinn fái jakka eða
svo.“
Markaðurinn verður opinn frá
ellefu til fjögur.
Máta föt og hlusta
á ljúfa tóna í garði
Edda Björg Eyjólfsdóttir ætlar að halda fatamarkað í garðinum heima hjá sér í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Pétur Gunnarsson rithöfundur
leiðir fróðleiksgöngu um sögu-
slóðir Þórbergs Þórðarsonar í
Vesturbæ Reykjavíkur annað
kvöld. Gangan er meðal annars
farin í tilefni af útkomu bókarinn-
ar Meistarar og lærisveinar sem
hefur að geyma áður óbirt ævi-
sagnahandrit Þórbergs.
Þórbergur fluttist ungur til
Reykjavíkur og ól þar síðan
manninn til æviloka árið 1974. Í
göngunni verða heimsótt nokk-
ur örlagarík kennileiti á lífsgöngu
meistarans þar sem þau er
að finna á afmörkuðu svæði í
Vesturbæ Reykjavíkur með Unu-
hús í miðpunkti.
Lagt verður upp frá húsakynn-
um Forlagsins að Bræðraborg-
arstíg 7 klukkan átta og endað
á sama stað rúmri klukkustund
síðar.
Í fótspor Þórbergs
GENGIÐ VERÐUR UM SÖGUSLÓÐ-
IR ÞÓRBERGS ÞÓRÐARSONAR Í
VESTURBÆ REYKJAVÍKUR ANNAÐ
KVÖLD OG STANSAÐ VIÐ ÁHUGA-
VERÐA STAÐI.
Unuhús er miðdepill í lífssögu
Þórbergs.
K
R
A
F
T
A
V
E
R
K
S k ó l a v ö r ð u s t í g 7 • 1 0 1 R e y k j a v í k • S í m i 5 5 1 5 8 1 4 • www.th . i s
Kjóll
7.990,-
stærðir s-l
Kjóll
7.590,-
stærðir s-xl
Kjóll
8.990,-
stærðir s-xl
Opið frá 11–18 í Smáralind.
Kjóll
5.990,-
stærðir s-l
Nýjar haustvörur