Fréttablaðið - 21.08.2010, Side 74
MENNING 10
Auður Ava Ólafsdóttir hefur verið
tilnefnd til bókmenntaverðlaun-
anna Prix Roman du Fnac 2010 í
Frakklandi fyrir þriðju skáldsögu
sína Afleggjarann.
Spurð hvort hún hafi átt von á til-
nefningunni segir Auður Ava: „Ég
býst aldrei við neinu, hvorki góðu
né slæmu. En þetta er voða gaman
enda eru þetta virt verðlaun og
bókin fær góða athygli,“ segir hún.
„Ég er í sjálfu sér aldrei með nein-
ar væntingar heldur er bara að
vinna mína vinnu. Ég er að undir-
búa kennslu í háskólanum þannig
að ég hef alltaf nóg að sýsla við.“
Afleggjarinn hlaut Menningar-
verðlaun DV í bókmenntum og var
tilnefnd til bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 2009. Tilnefning-
arnar til Prix Roman du Fnac eru
þær fyrstu á komandi bókmennta-
vertíð í Frakklandi og verða verð-
launin veitt í lok ágúst. Útgefandi
Afleggjara í Frakklandi er bóka-
forlagið Zulma og heitir skáldsag-
an Rosa Candida í franskri þýðingu
Catherine Eyjólfsson. Bókin kemur
í verslanir í Frakklandi um miðjan
ágúst en fór í dreifingu til gagnrýn-
enda og „bókalesara“ bókabúða sl.
vor. „Þetta er algjör snilldarþýðing
hjá Catherine Eyjólfsson. Hún nær
alveg músíkinni. Hún er svo mikil-
væg í mínum verkum, þessi tónn.
Það er oft erfiðast að ná honum í
þýðingum,“ segir Auður.
Það eru 900 manns úr frönsk-
um bókaiðnaði sem standa að vali
á bókum sem eru tilnefndar árlega
til Prix Roman du Fnac. Forlagið
Zulma hefur þegar fengið afar
jákvæð viðbrögð við Afleggjara
Auðar og hefur ákveðið að láta
prenta annað upplag. Þá hefur
franska forlagið einnig keypt
útgáfuréttinn að skáldsögu Auðar,
Rigning í nóvember.
Tilnefnd til franskra
bókmenntaverðlauna
Samband ungra sviðslistamanna
heldur hátíð á hverju ári og eru
þau nú orðin fimm árin sem art-
Fart-hátíðin hefur glatt áhorf-
endur. Ein þeirra sýninga sem
nú voru settar á svið var eftir
Halldór Armand Ásgeirsson
undir titlinum Vakt. Á föstudags-
kvöldið var fullur salur af fólki
í Norðurpólnum á Seltjarnar-
nesi sem hefði getað setið á gjör-
gæslu Landspítalans því þannig
var umhorfs fyrir utan að maður
í sínu dýpsta ástandi lá með allar
tegundir af slöngum og túðum og
þráðum sem tengd voru við líf-
vana líkamann í rúmi með þar til
gerð mælitæki sér við hlið.
Tveir ungir læknar eða lækna-
nemar eru á vakt þegar komið er
með mann sem ekið hefur á ofsa-
hraða eftir Miklubraut og ligg-
ur nú óþekkjanlegur í dái. Það er
hugsanlegt að meginhluti verks-
ins eigi að gerast á einni nóttu.
Þau Einar Aðalsteinsson og Hera
Hilmarsdóttir fara með hlutverk
læknanna ungu. Þau spjalla um
lífsins gagn og nauðsynjar meðan
þau fylgjast með gangi mála á
mælum hjá hinum slasaða. Þau
vita ekki hver hann er og hann
hefur greinilega engin sérstök
áhrif á þau því þau spjalla um
heima og geima og hinn slasaða
eins og hann sé þar hvergi nærri.
Strax þar gætti ótrúverðugleika
í textanum og þar með leiknum,
því þó það séu kannski durtar og
stundum eiginhagsmunaseggir
sem veljast í læknastétt þá er það
löngu liðin tíð að menn reifi öll
heimsins mál beint inn í eyrun á
manneskju í kóma. Unga konan
sem Hera Hilmarsdóttir léði líf
hafði lent í því að bróðir hennar
Róbert hafði orðið fyrir fólsku-
legri tilefnislausri árás úti á
götu og þar með var líf hans og
um leið fjölskyldu hennar allrar
lagt í rúst.
Læknirinn ungi sem Einar
Aðalsteinsson lék fær af hendi
höfundar, hlutverk hlustanda og
boltaveggjar fremur en eiginleg-
an bakgrunn að moða úr. Hann
er skondinn á stundum og flæk-
ist inn í hennar öfgaviðbrögð þá
er hún kemst að því að maðurinn
í bólinu er enginn annar en sá
sem lagt hafði líf bróður hennar
í rúst.
Með einu agnarlitlu handtaki
gætu þau tekið hann úr sam-
bandi, úr sambandi við þetta líf
sem þau á þessari stundu ráða
yfir. Þessi siðferðislegi kollhnís
sem þau sameiginlega lenda í, er
það sem verkið fjallar um. Hefnd
og hver ræður yfir lífinu og hver
myndi svo sem fatta þó svo að
þau styttu … allar þessar spurn-
ingar og allar þessar hugdettur
á línunni slöku. Þetta var mjög
góð hugmynd og vonandi verður
hún þróuð frekar en sýningin leið
fyrir að nærveru þriðja augans,
leikstjórans, vantaði alveg.
Elísabet Brekkan
Má maður drepa mann?
Einar Aðalsteinsson og Hera Hilmarsdóttir leika í sýningunni Vakt. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Leiklist ★★★
Vakt – leikhópurinn Amma
Leikarar: Einar Aðalsteinsson,
Hera Hilmarsdóttir. Höfundur:
Halldór Armand Ásgeirsson
Niðurstaða: Góð hugmynd og
vonandi verður hún þróuð frekar.
Sýningin leið fyrir að nærveru þriðja
augans, leikstjórans, vantaði.
Auður Ava Ólafsdóttir hefur verið tilnefnd til bókmenntaverðlaunanna Prix Roman
du Fnac 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nokkur sæti laus!
Skrifstofubraut I
Er tveggja anna hagnýt braut þar sem höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og
samskiptagreinar.
Kennslutími: Kl. 8:20 – 13:00. Kennsla hefst 24. ágúst
Brautin er einnig kennd í fjarnámi – sjá mk.is
Skrifstofubraut II - rekstrarfulltrúi
Tveggja anna framhaldsnám á skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi. Mikil
áhersla er lögð á tölvunám, viðskipta- og samskiptagreinar.
Inntökuskilyrði: Krafi st er þekkingar í ensku, bókfærslu og tölvunotkun.
Þeir nemendur sem lokið hafa námi af skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi
ganga fyrir um skólavist.
Kennslutími: Kl. 8:20 – 13:00. Kennsla hefst 24. ágúst.
Offi ce Skills Programme for Foreign Students
Offi ce Skills Programme for students, over the age of 20, not having Icelandic as their
mother tongue. The courses are taught both in basic Icelandic and English.
Time: Mondays, Tuesdays and Wednesdays from 17:30 to 20:30. See mk.is
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
Upplýsingar veitir Inga Karlsdóttir fagstjóri hagnýtra viðskipta- og
fjármálagreina í síma 594 4000/8244114 eða í inga.karlsdottir@mk.is