Fréttablaðið - 21.08.2010, Qupperneq 80
40 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
1. HEIÐMÖRK
Hrútaber
Mörgum þykir nauðsyn-
legt að ná sér í hrútaber á
haustin og gera úr þeim
hrútaberjahlaup, sem allir
matgæðingar vita að er
bráðnauðsynlegt með jóla-
rjúpunum og annarri villi-
bráð. Hrútaberjahlaup pass-
ar ekki síður vel með með
ostunum og rauðvíninu
á nöprum vetrardögum.
Berin leynast undir og
í kringum birkitré. Fyrir
óvana getur verið erfitt að
koma augu á þau, þar sem
blöð lyngsins eru stór og
hylja þau oft. Göngufólk í
Heiðmörk, með glöggt auga
fyrir lyngi hrútaberjanna,
hefur hins vegar tekið eftir
því að þar er nú krökkt af
þeim. Því er óhætt að mæla
með hrútaberjaferð í Heið-
mörkina.
2. GRÁBRÓKAR-
HRAUN
Burnirót
Burnirótin er kölluð gins-
eng norðursins. Hún er seld
í heilsubúðum um allan
heim undir nafninu Arctic
Root og þykir búa yfir stór-
kostlegum eiginleikum til að
fríska upp sálina. Burnirót-
in vex um allt land, en mjög
mikið hefur sést af henni í
Borgarfirðinum og er Grá-
brókarhraunið þá sérstak-
lega nefnt sem tilvalinn
tínslustaður. Til marks um
hversu full burnirótin er af
heilnæmum efnum er að ef
sauðfé kemst í hana étur það
hana eins og sælgæti upp til
agna. Um þessar mundir er
jurtin fallin og rétti tíminn
til að taka hana, því jarð-
stöngull hennar er einungis
nýttur. Burnirótin er talin
gefa skarpa hugsun og gera
fólk jákvæðara. Þá er hún
talin góð fyrir taugakerfið.
3. BREIÐAFJÖRÐUR
Kræklingur
Þó að enn séu nokkrar vikur í
að kominn sé besti tíminn til
kræklingatínslu er vel hægt
að mæla með krækl i ngaferð
í Breiðafjörðinn, ef fólk
er á annað borð komið
í þann gírinn
að sækja sér
ókeypis kræs-
i nga r t i l
náttúr-
unnar.
Á und-
anförn-
um árum
hefur verið
eftirlit með vexti eitraðra
þörunga og eitrun í skelfiski
af þeirra völdum á vegum
Matvælastofnunar í sam-
vinnu við Hafrannsókna-
stofnun, skelfiskveiðimenn
og krækl ingaræktendur.
Samkvæmt síðustu sýna-
töku í Stykkishólmi, þann 16.
ágúst, er nú ekki varað við
neyslu skelfisks úr Breiða-
firðinum.
4. STRANDIR
Bláber
Samkvæmt fréttum af
Ströndum er berjasprett-
an þar afbragð í sumar. Það
er því óhætt að mæla með
berjaferð á Strandir, þótt
bláberin finnist víða um
land og fleiri landshlutar en
Vestfirðirnir geri tilkall til
þess að eiga bestu berjalönd
landsins, ef ekki heimsins.
Til að mynda eru firðirnir
fyrir austan margir hverjir
miklar berjakistur. Blá-
ber eru svo meinholl
og stútfull af C-vít-
amínum og and-
oxunarefnum
að Íslend-
ingar ættu
að taka
tínsluna
alvar-
lega og
fylla kistur sínar af þeim,
til að bæta upp fyrir niða-
myrkrið sem fram undan er
í vetur.
5. SVARFAÐARDAL-
UR
Aðalber
Aðalbláberin vaxa víða
um land. Mikið er af þeim
á Vestfjörðum en einnig á
Norðurlandi. Aðalbláber
geta bæði verið blá og svört.
Þau svörtu eru kölluð aðal-
ber af Norðlendingum, sem
raunar vilja sumir hverj-
ir meina að aðalbláber og
aðalber séu hreint ekki sami
hluturinn. Svarfaðardalur-
inn er frægur fyrir þau, en
þar finnast nær eingöngu
hin svörtu aðalber.
6. BÖGGVISSTAÐA-
FJALL
Beitilyng
Böggvisstaðafjall við Dalvík
er ekki bara skemmtilegt
skíðasvæði á veturna held-
ur líka gjöfult berjaland á
sumrin.
Þar, sem
víða ann-
ars stað-
ar á land-
inu þar sem
berjaland er,
finnst beit i -
lyng. Það finnst
þó ekki um allt land, til að
mynda ekki á Vestfjörðum.
Beitilyngið, sem blómgast
í ágúst, er talin öflug jurt,
sem hefur meðal annars
reynst vel á ýmiss konar
gigt. Þá mun lyngið hafa
róandi áhrif og því gott að
þurrka það og búa svo til úr
því te til að drekka á kvöldin
fyrir svefninn.
7. HALLORMSSTAÐA-
SKÓGUR
Lerkisveppir
Þar sem lerki hefur verið
plantað finnst lerkisvepp-
urinn oft á tíðum í stórum
breiðum. Það er því mikið
af honum í lerkiskóginum
í Hallormsstaðaskógi og
margir sem leggja árvisst
leið sína
þangað eftir
honum. Hann
er talinn mjög
góður matsveppur en
bestur þykir hann
ungur, stinnur
og nýsprottinn.
Þegar sveppir
eru tíndir er
gott að hafa
í huga að
nota körfu,
en ekki lokuð
ílát eða plastpoka,
því sveppirnir skemm-
ast fljótt ef ekki leikur loft
um þá.
8. HAUKAFELL
Krækiber
Í land Skógræktarfélags-
ins í Haukafelli hópast
allir Hornfirðingar í berja-
mó. Svæðið er sérstaklega
ríkt af krækiberjum, þó
þar séu einnig aðrar berja-
tegundir, svo ekki sé talað
um sveppina. Haukafellið
er mjög gróið og því ekki
síður skemmtilegt útivist-
arsvæði.
9. TUMASTAÐIR
Furusveppur
Furusveppurinn er talinn
meðal bestu matsveppanna
sem finnast hér á landi.
Myndarleg skógrækt er að
Tumastöðum í Fljótshlíð-
1
2
3
7
6
8
9
4
5
Það er kominn tími til að tína
Tími matarmikilla sveppa, safaríkra berja, kynngimagnaðra jurta og annarra gjafa náttúrunnar er runninn upp. Fréttablaðið
vísar veginn að nokkrum vel völdum stöðum þar sem borgar sig að staldra við, beygja sig niður og hefjast handa við að tína.
inni. Þangað er
tilvalið að fara
með fjölskyld-
una í skógarferð
og í sveppamó. Marg-
ar trjátegundir er að
finna á Tumastöðum, þar á
meðal töluvert af furutrjám.
Furusveppurinn lifir í sam-
býli við furuna og er nefnd-
ur eftir honum. Algengast er
að finna þá við smærri trén.
Best er að tína nýsprottna
sveppi þegar þeir eru enn
þá dökkfjólubrúnir og með
hvelfdum og stinnum hatti.
10. KRÝSUVÍK
Einir
Einir finnst í Krýsuvík í
stórum breiðum, en hann
vex líka víða um land í
kjarri, hrauni og móum.
Bæði er gott að tína ein-
inn sjálfan og berin sem
á honum vaxa. Einiberin
eru bæði notuð sem krydd
og til að búa til vín. Í bók-
inni Íslenskar lækninga- og
drykkjarjurtir, eftir Björn
L. Jónsson, sem kom út árið
1973, segir að bæði lauf og
ber einisins örvi svita og
þvag og eru vindeyðandi. Þá
sé einirinn góður við bjúgi,
hósta, hálsbólgu, liðverkjum,
þvagstemmu, tíðateppu, and-
arteppu og máttleysi, hvorki
meira né minna.
Heimildir: Samtöl við
berjamanninn Svein Rúnar
Hauksson, sveppakonuna
Ásu Margréti Ásgeirsdótt-
ur og jurtakonuna Sóleyju
Elíasdóttur og aðra nátt-
úruunnendur, heimasíð-
an www.berjavinir.com,
bókin Matsveppir í náttúru
Íslands.
… klippa rauðu berin af reynitrjánum sem
eru gullfalleg á þessum árstíma, skella þeim
í frystinn, taka þau út í desember og nota í
heimatilbúnu jólaskreytinguna sem þú ætlaðir
alltaf að gera.
… huga að því hvað á að gefa fiðruðu vinum
sínum að borða þegar kólna fer í veðri. Sumir
smíða fuglabúr, setja upp ker og dunda sér við
að búa til kornkransa handa þeim. Margir vilja
lokka til sín þresti og þá er gott að hafa í huga
að þeir eru vitlausir í epli og fúlsa eflaust ekki
við þeim núna, þó enn sé hlýtt í lofti.
… tína berin af rifsberjarunnanum úti í garði og
skella í rifsberjahlaup og jafnvel rifsberjalíkjör
sem mörgum þykir gott að smakka.
… horfa niður fyrir sig í göngutúrunum og
tína upp falleg lauf sem falla af trjánum þegar
hausta tekur, þurrka þau og pressa. Krökkum
þykir sérstaklega skemmtilegt að búa til ýmiss
konar listaverk úr laufblöðunum.
10
Nú, eða á allra næstu vikum, er líka góður tími til að …