Fréttablaðið - 21.08.2010, Page 86

Fréttablaðið - 21.08.2010, Page 86
46 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is MERKISATBURÐIR 1011 Njáll Þorgeirsson og heimilisfólk hans á Berg- þórshvoli í Landeyjum er brennt inni af Flosa Þórð- arsyni og mönnum hans. 1238 Örlygsstaðabardagi er háður í Skagafirði. 1905 Lagning ritsíma til Íslands og símalínu frá Aust- fjörðum til Akureyrar og Reykjavíkur er samþykkt á Alþingi. 1932 Vígð er 170 metra löng brú á Þverá í Rangárvalla- sýslu að viðstöddu fjöl- menni. 1958 Friðrik Ólafsson skák- maður varð stórmeistari, 24 ára gamall. Málverkinu fræga, Monu Lisu, var stolið af listasafninu Louvre í París þennan mánaðardag árið 1913. Málarinn Louis Béroud uppgötvaði stuldinn þegar hann kom að auðum veggnum morguninn eftir. Þegar tvö ár voru liðin frá ráninu komst upp um þjófinn. Hann var starfsmaður Louvre-safnsins, Vincenco Peruggia. Hann var ítalskur þjóðernissinni sem áleit verkið þjóðareign Ítala. Því hafði hann falið sig inni í kústaskáp þar til safninu var lokað og gengið síðan út með verkið undir frakka sínum. Eftir að hafa geymt það í íbúð sinni í tvö ár reyndi hann að selja Uffizi-safninu í Flórens það. Málverkið var sýnt á helstu söfnum Ítalíu en síðan sent aftur til eigenda sinna í Frakklandi. Peruggia var hylltur um alla Ítalíu fyrir verknaðinn og fékk aðeins nokkra mánuði í fangelsi. ÞETTA GERÐIST: 21. ÁGÚST 1913 Monu Lisu var stolið Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, Sigurrósar Margrétar Sigurjónsdóttur Gullsmára 9, Kópavogi. Jónas Gunnar Guðmundsson Sigurbjörn Rúnar Jónasson Reynir Jónasson Hrafnhildur Rós Valdimarsdóttir Daníel Björn Sigurbjörnsson Matthías Sigurbjörnsson Þórunn Sigurrós Sigurbjörnsdóttir Bergdís Heiða Reynisdóttir Friðbjörn Víðir Reynisson erf idr yk kjur G R A N D Hlýlegt og gott viðmót á Grand hótel. Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum. Næg bílastæði og gott aðgengi. Grand Hótel Reykjavík Sigtún 38, 105 Rvk. Sími: 514 8000 www. grand.is erfidrykkjur@grand.is Verið velkomin Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ólafur Halldórsson Hvassaleiti 56, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 11. ágúst s.l. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur vilja koma á framfæri sérstöku þakklæti til starfsfólks og heimilismanna á Sóltúni fyrir einstaka umönnun og samskipti. Fyrir hönd aðstandenda, Hrefna Lárusdóttir. Ástkær faðir okkar Stefán Bjarnason, Sunnuvegi 19 er látinn. Jarðsett verður frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 25. ágúst kl. 13. Fyrir hönd afkomenda, Ragnar Stefánsson, Guðný Snæland, Elsa Vestmann Stefánsdóttir. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vinsemd við andlát og útför elskulegs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Grétars Sigurðssonar Hjaltabakka 14, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Þóra Ingadóttir Rósa Dagný Grétarsdóttir Guðni Þór Arnórsson Laufey Grétarsdóttir Eyþór Harðarson Ingi Grétarsson Svandís Geirsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. „Það er auðvitað lifibrauð okkar að flytja vörurnar sem lengst. Við fögn- um því samt þegar vegleiðir styttast því kúnninn okkar nýtur góðs af því sem og landsbyggðin,“ segir Ragnar Haraldsson, stofnandi fyrirtækisins Ragnar og Ásgeir, en hann hefur rekið vöruflutningafyrirtæki í Grundarfirði í fjörutíu ár með fjölskyldu sinni. Hann er því spurður hverjar hann telji mestu vegabætur á Vesturlandi á síðustu ára- tugum og nefnir fyrst Borgarfjarð- arbrúna. „Svo var gert átak hér úti á Snæfellsnesinu þegar Vatnaleiðin svo- kallaða var gerð og líka brúin yfir Kol- grafarfjörðinn sem var tekin í gagnið í hittiðfyrra. Að ógleymdum Hvalfjarð- argöngunum sem okkur finnst við reyndar borga helvíti mikið í. Göngin eru geipileg samgöngubót en umræð- an um hönnun þeirra á því miður við rök að styðjast. Þau eru stórhættuleg þó við höfum aldrei orðið fyrir óhappi þar, sem betur fer.“ Ragnar kveðst hafa byrjað rekstur- inn á að kaupa notaðan Bedford vöru- flutningabíl, ásamt konu sinni Rósu Björgu Sveinsdóttur sem hafi haldið utan um bókhaldið, ásamt því að ala upp börnin fjögur. „Börnin fóru snemma að hjálpa til við að losa og lesta án þess að fá borgað fyrir og Ásgeir sonur okkar byrjaði að keyra flutningabíl um leið og hann hafði aldur til og kom strax inn í reksturinn með okkur,“ lýsir Ragnar. Nú er fyrirtækið eitt það öflugasta á sínu sviði í eigu einstaklinga, á sautján stóra bíla og nokkra minni sem notað- ir eru til að safna saman vörum á Snæ- fellsnesinu og keyra þær út. Rósa, eig- inkona Ragnars, er látin fyrir þremur árum, Ásgeir er framkvæmdastjóri, systir hans Jóna Björk er skrifstofu- stjóri og Þórey Jónsdóttir, eiginkona Ásgeirs, vinnur líka við bókhaldið. „Svo er sonur Ásgeirs farinn að keyra alveg á fullu og annar er í útkeyrslunni. Áhugi á akstrinum gengur í erfðir,“ lýsir Ragnar og sér fram á að fyrirtækinu verði haldið við, enda sé fjórði ættliður- inn kominn til skjalanna líka. „Þeir eru alltaf að barna þessir ungu menn, kon- urnar þeirra hafa verið að fæða aðra og þriðju hverja viku upp á síðkastið og von er á einni dömu eftir nokkra mán- uði. Hún fær nú kannski stól á skrif- stofunni, ef hún vill ekki keyra,“ segir hann í gamansömum tón. En snúum okkur að afmælishald- inu sem er einmitt í dag. „Þau stjórna þessu nú börnin og tengdabörnin,“ segir Ragnar. „En við ætlum að halda fagnað í húsi félagsins hér í Grundarfirði og þangað er öllum viðskiptavinum og vel- unnurum fyrirtækisins boðið að koma. Hann byrjar klukkan átta í kvöld þegar golfmótið er búið.“ Við eftirgrennslan kemur í ljós að fyrirtækið Ragnar og Ásgeir heldur yfirleitt eitt golfmót á ári og nú er það að sjálfsögðu afmælismót. Skyldi Ragn- ar vera lunkinn í golfi. „Nei, það eru nú aðallega strákarnir. Ég reyndi að byrja í golfi fyrir einhverjum árum en mér fannst holan svo lítil að það væri ómögulegt að eiga við þetta og ég hef ekkert getað fengið því breytt.“ gun@frettabladid.is FLUTNINGAFYRIRTÆKIÐ RAGNAR OG ÁSGEIR: FAGNAR FJÖRUTÍU ÁRA AFMÆLI Áhugi á akstri gengur í erfðir RAGNAR OG ÁSGEIR ER FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI. Jóna Björk Ragnarsdóttir, Ragnar Ingi Haraldsson, Ásgeir Ragnarsson, Þórey Jónsdóttir og Ásgeir Þór Ásgeirsson. MYND/ÚR EINKASAFNI KIM CATTRALL ER FÆDD ÞENN- AN DAG ÁRIÐ 1956 „List snýst um að tjá hver maður er. Hlutverkin sem ég leik eru skúlptúrarnir mínir.“ Kim er bresk leikkona sem meðal annars er þekkt fyrir leik sinn í Police Academy og Sex and the City. AFMÆLI EIRÍKUR JÓNSSON ritstjóri er 58 ára. PÁLMI MATTHÍAS- SON prestur er 59 ára.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.