Fréttablaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 92
52 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
OKKUR
LANGAR Í
…
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
SARA MCMAHON
Ég er mikill aðdáandi brúðkaupa enda fallegar og
rómantískar athafnir þar sem fólk kemur saman
og fagnar brúðhjónunum og ástinni. Ég hef farið í
nokkur brúðkaup um ævina og þegar kemur að því
að velja klæðnað sem sæmir slíkum viðburði stend
ég alltaf svolítið á gati. Ég veit að svart þykir ekki
góður litur þegar koma á saman og fagna ástinni,
enda oftast talinn sorgarlitur. Þess í stað ætti
maður að velja skemmtilega mynstraða flík og
glaðlega liti.
Um daginn komst ég svo að því að konur eiga
líka að forðast það að klæðast hvítu í brúðkaup-
um því brúðurin á að skera sig úr hópnum á þess-
um merkisdegi. Þetta hafði ég ekki vitað áður og
prísaði mig sæla yfir að hafa aldrei átt hvítan
sparikjól því annars hefði ég eflaust gerst svo
ósvífin að stela athyglinni frá hverri brúðinni
á fætur annarri ár eftir ár. Það hefði auðvitað
verið algjörlega óásættanleg hegðun af minni
hálfu.
En batnandi fólki er best að lifa og nú
veit ég að það þykir hvorki við hæfi að
klæðast hvítu né svörtu þegar maður
sækir brúðkaupsveislur. Litríkt og glað-
legt skal það vera og þannig mun ég
reyna að klæða mig fyrir næsta brúð-
kaup. Reyndar tel ég að brúðkaupstísk-
an sé orðin mun frjálslegri en áður og fer
fatavalið gjarnan eftir því um hvernig
brúðkaup er að ræða, er það lítið frjáls-
legt sveitabrúðkaup eða stórt og hefð-
bundið kirkjubrúðkaup? En, góðu gest-
ir, hafið í huga að í báðum tilvikum
skal hvorki syrgja né stela athyglinni.
Bannað að stela athyglinni
> TÍSKA TIL GÓÐS
Hin hálfíslenska Indía Salvör hefur tekið
að sér að klæðast sama kjólnum
daglega í heilan mánuð vegna
góðgerðarstarfsemi. Indía bloggar
um verkefnið daglega og segir frá
hverju hún klæðist við kjólinn
hvern dag.
Hægt er að fylgjast með
verkefninu á vefsíðunni www.
theuniformproject.com.
Fallegan köflóttan kjól sem
dregur fram kvenlegu
línurnar. Fæst í versluninni
Einstökum ostakökum.
Haustið er handan við hornið og því ágætt að
huga að hlýrri og notalegri hausttískunni. Á sýn-
ingarpöllunum í ár var mikið um loðfeldi, bæði
alvöru og gervi, ásamt hlýlegum kuldaskóm og
feldklæddum pilsföldum og hálskrögum.
LOÐFELDIR KOMA STERKIR INN Í HAUST:
Loðnir kragar
og pilsfaldar
Hrikalega flottan varalit
úr nýju Digi Pops-lín-
unni frá Mac, mikið
glimmer og fjör.
Tösku frá Aron Bullion
sem búin er til úr tweed-
efni og leðri.
FENDI FYRIR
ALLA Hlýleg-
ur loðkragi
gerir mikið
fyrir heildar-
svipinn hér.
DÝRSLEGUR JAKKI
Fyrirsæta klæðist kápu
úr haustlínu Gucci.
Kvenlegt og flott.
CHANEL Fallegt pils frá
Chanel sem ætti
ekki að fara
fyrir brjóstið á
neinum því
þetta er
ekki ekta
loðfeldur.
TIGN-
ARLEG
Falleg
dragt
frá
Chanel
sem
minnir
einna
helst á
klæðnað
rússneskrar
hefðarkonu.
FALLEG KÁPA
Skemmtileg
og öðruvísi
mokkakápa
úr haustlínu
Fendi.
Ný námskeið að hefjast
Jóga stúdíó hefur opnað á nýjum stað að Seljavegi 2
Byrjendanámskeið hefst mánudaginn 23. ágúst
Hot jóganámskeið hefst þriðjudaginn 24. ágúst
Krakkajóga 2-4 ára hefst mánudaginn 23. ágúst
Krakkajóga 5-7 ára hefst miðvikudaginn 25. ágúst
Krakkajóga 8-12 ára hefst fi mtudaginn 26. ágúst
Nánari upplýsingar á jogastudio.is