Fréttablaðið - 21.08.2010, Qupperneq 94
54 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Jóhann Jóhannsson heldur tónleika í
Hallgrímskirkju 1. október í samstarfi
við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, RIFF, og 12 Tóna.
Þetta verða fyrstu tónleikar Jóhanns á
Íslandi í fjögur ár en hann hefur verið að
gera það gott á erlendri grundu að und-
anförnu. Jóhann verður ekki einn síns
liðs á tónleikunum því hann mun hafa
fimm manna hljómsveit sér til halds
og trausts. Hana skipa þau Matthías
Hemstock á slagverk, Una Sveinbjarn-
ardóttir og Gréta Guðnadóttir á fiðlur,
Guðmundur Kristmundsson á víólu og
Hrafnkell Egilsson sellóleikari.
Á tónleikunum mun sveitin spila
tónlist af þremur plötum Jóhanns:
Englabörnum, Fordlandia og IBM 1401, a
User´s Manual, í bland við nýtt efni sem
enn hefur ekki komið út.
Þá mun Magnús Helgason jafnframt
sýna kvikmyndir sem hann hefur gert
sérstaklega við tónlistina en Magnús er
yfirleitt með sveitinni þegar hún spilar
erlendis. Kvikmyndir Magnúsar hafa ekki
verið sýndar áður á Íslandi.
Síðasta hljómplata Jóhanns, And in the
endless pause there came the sound of
bees, kom út hjá 12 Tónum og í apríl síð-
astliðnum var hún gefin út um allan heim
á vegum Type-útgáfunnar. Platan inni-
heldur tónlist úr kvikmyndinni Varmints
sem hefur fengið fjölda verðlauna og var
m.a. tilnefnd til BAFTA-verðlaunanna.
Tónlistin sjálf hefur fengið verðlaun á
kvikmyndahátíðum í Bandaríkjunum og
Japan.
Fyrstu tónleikarnir í fjögur ár
Færeyski söngvarinn
Jógvan Hansen er nýbúinn
að gefa út nýtt lag en lítið
hefur heyrst frá söngvar-
anum síðan í Eurovision.
Lagið ber nafnið Save it for
a rainy day og er skrifað af
breska tónlistarmanninum
Chesney Hawks.
„Það má eiginlega segja að lagið
sé afleiðing af Eurovision,“ segir
söngvarinn Jógvan Hansen glað-
ur í bragði þegar Fréttablaðið náði
af honum tali en hann er stoltur af
nýja laginu sínu, Save it for a rainy
day. „Þetta er lag um ástina eins og
flest popplög en ég er mikill popp-
ari í mér,“ segir Jógvan en það er
enginn annar en tónlistarmaðurinn
Chesney Hawks sem samdi lagið
fyrir kappann. „Ég var svo hepp-
in að það voru margir mjög hrifnir
af mér eftir Eurovision og Hawks
var í svona lagasmiðabúðum í Hval-
firði síðasta vor og sá mig í keppn-
inni,“ segir Jógvan en Hawks tók að
senda honum lög frá hinum og þess-
um til að syngja og varð þetta lag
fyrir valinu en það er útsett fyrir
Jógvan af Vigni Snæ Vigfússyni.
Hawks er vinsæll breskur poppari
sem er hvað þekktastur fyrir lagið
The one and only sem var í topp-
sætum bresku vinsældarslistanna
árið 1991.
Jógvan útilokar ekki frekari
þátttöku í Eurovision-keppninni en
hann lenti í öðru sæti í vor. „Ég var
eiginlega of nálægt því að vinna
til að ég geti hætt. Ef rétta lagið
kemur til mín er ég mjög mikið til
í að taka aftur þátt.“
Jógvan er þessa dagana að ein-
beita sér að tónlistinni og hefur
verið að spila úti um allt land í
sumar. „Það tekur mikið á að vera
tónlistamaður í fullu starfi og er
ekki sérstaklega fjölskylduvænt.
Ég er alltaf að vinna þegar allir
hinir eru í fríi en ég elska þetta.
Þetta er draumastarfið.“ Jógvan
kemur fram í Hressingarskálanum
í kvöld milli 20 og 23 og mun nýja
lagið eflaust fá að hljóma þar. - áp
Jógvan og Hawks
vinna saman
EINBEITIR SÉR AÐ TÓNLISTINNI Jógvan Hansen sendir frá sér nýtt lag sem nefnist
Save it for a rainy day. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
JÓHANN JÓHANNSSON
Jóhann heldur tónleika
í Hallgrímskirkju sem
verða hans fyrstu í fjögur
ár á Íslandi.
> MÁL GEGN MADONNU
Höfðað hefur verið mál gegn söng-
konunni Madonnu vegna barnafata-
línu sem hún hannaði með dótt-
ur sinni Lourdes Leon. Línan heitir
Material Girl, eins og samnefnt lag
Madonnu frá árinu 1985. Vanda-
málið er að fyrirtækið LA Tri-
umph segist hafa framleitt föt
undir nafninu Material Girl
síðan 1997 og eigi því einka-
réttinn á nafninu.
Opið: Virka daga kl. 10-18 · Laugardaga kl. 10-17 · Sunnudaga kl. 13-17
FÍGARÓ-línan
komin aftur
20% afsláttur
út ágúst
F
A
B
R
I
K
A
N
Holtagörðum og Kringlunni – www.tekk.is