Fréttablaðið - 21.08.2010, Side 100
60 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Úrslitaleikurinn sem
landsliðsþjálfarinn óskaði sér fer
fram í dag. Margir mánuðir eru
síðan Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son talaði um að hann vildi búa til
úrslitaleik gegn Frökkum á menn-
ingarnótt og sú er raunin.
Leikurinn á Laugardalsvelli
klukkan 16.00 í dag sker úr um
það hvort liðið verður í efsta sæti
riðilsins. Ísland þarf að vinna 3-0
í dag og vinna svo Eista á miðviku-
dag til að hirða efsta sætið og kom-
ast þannig beint á HM.
„Frakkar eru með gríðarlega
sterkt lið og það eru alltaf hörku-
leikir á milli þjóðanna. Í fyrri
leiknum voru þær miklu betri og
unnu verðskuldað en hinir hafa
verið jafnir og spennandi,“ sagði
Sigurður en Ísland vann einmitt
Frakka á Laugardalsvelli, 1-0 16.
júní árið 2007.
„Við höfum það bak við eyrað að
við þurfum að vinna 3-0. Það eru
kannski ekki raunhæf úrslit en 1-
0 gæti dugað til að koma okkur í
efsta styrkleikaflokk fyrir næstu
undankeppni. Við þurfum að eiga
okkar besta leik bara til að vinna,“
segir þjálfarinn.
Hann segir að þessir leikir, stór-
ir leikir þar sem mikið er í húfi,
séu eitthvað sem henti liðinu. „Við
vildum fá þennan leik en núna
kemur í ljós úr hverju stelpurnar
eru gerðar. Það kemur í ljós hverj-
ar eru tilbúnar til að spila á þessu
stigi,“ sagði Sigurður sem hefur
verið ánægður með undirbúning
liðsins í vikunni.
„Við þurfum að sjá hvernig leik-
urinn þróast en þær hafa flinkari
leikmenn en við. Þær eru betri í
að halda boltanum en það lið sem
gerir það vinnur ekki alltaf. Það
væri frábært að ná marki snemma
til að leggja grunninn,“ sagði Sig-
urður Ragnar en liðið æfði í Sand-
gerði í gær og gisti í Keflavík í
nótt.
„Við viljum detta í sömu rútínu
og alltaf, með sömu göngutúrun-
um og öllu þar fram eftir götun-
um. Það hefur virkað vel. Ég býst
við gríðarlega erfiðum leik en við
höfum allar trú á verkefninu,“
segir Sara Björk Gunnarsdóttir.
„Við byrjum bara á því að skora
eitt mark í einu, við skorum ekki
þrjú í einni sókn. Það yrði slæmt
að fá á sig mark og það má bara
ekki gerast,“ segir Sara Björk og
hvetur um leið fólk til að mæta á
völlinn í dag.
hjalti@frettabladid.is
Ekki raunhæft
að vinna 3-0
Íslenska landsliðið mætir ógnarsterkum Frökkum á
Laugardalsvelli í dag. Stelpurnar hafa trú á verkefn-
inu en 3-0 sigur þarf til að komast beint á HM.
LÍNURNAR LAGÐAR Sigurður Ragnar ræðir við stelpurnar sínar á landsliðsæfingu.
Hann segir að liðið þurfi að eiga toppleik í alla staði til þess að vinna Frakka. 3-0
sigur sé varla raunhæf úrslit. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Margrét Lára Viðarsdóttir viðurkennir að hún eigi eitt-
hvað í land með að sigrast á erfiðum meiðslum sem
hafa hrjáð hana í tvö ár. „Ég er ekki sami leikmaður og
ég var vegna meiðslanna,“ segir markadrottningin frá
Vestmannaeyjum.
Margrét segir að sér líði ágætlega en hún spilaði sinn
fyrsta heila leik í langan tíma um síðustu helgi. „Ég er
ánægð með að vera byrjuð aftur að spila eftir langa fjar-
veru en það er mikill dagamunur á mér,“ segir Margrét.
„Þetta hefur verið mjög erfiður tími og langt ferli. Ég er
örugglega búin að hitta þúsund lækna og sjúkraþjálfara
og alls konar teymi. Sumir hafa hjálpað mér mikið en
ég hef aldrei náð þessu almennilega úr mér. Nú er ég
komin aftur í endurhæfingarferli þar sem ég þarf að
byggja mig upp líkamlega og andlega,“ segir Margrét
sem er einmitt að hefja nám í sálfræði við Háskólann á
Akureyri. Það mun hún stunda í fjarnámi.
Eitt af því sem Margrét íhugar að gera til að ná sér er að taka sér
frí frá knattspyrnu eftir landsleiki Íslands gegn Frökkum og Eistum.
Kristianstad á sjö leiki eftir í sænsku úrvalsdeildinni.
„Þetta er stór spurning sem ég hef verið að velta mikið fyrir
mér. Það væri kannski best að taka sér tíma í þetta og koma
sterkari inn á næsta ári. Ég veit að ég eyðilegg ekkert í mér
með að spila en ég er ekki sami leikmaður og áður.
Ég geri ákveðnar kröfur til mín eins og fjölmiðlar og
liðsfélagar mínir. Ég vil standa undir þessum kröfum,“
segir hún.
„Ég er hungruð í að komast í mitt gamla form og
að taka mér frí gæti verið leiðin til þess. Við erum um
miðja deild í Svíþjóð og þrátt fyrir að við höfum ákveðin
markmið þar verð ég kannski að hugsa um sjálfa mig.
Ég hef ekki gert það undanfarin tvö ár heldur oft tekið
ákvarðanir út frá liðunum mínum. Ég vil alltaf spila en ég
þarf líka að sýna skynsemi,“ segir Margrét.
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR: ÍHUGAR AÐ TAKA SÉR FRÍ ÚT TÍMABILIÐ TIL AÐ NÁ SÉR GÓÐRI AF MEIÐSLUM
Hef örugglega hitt þúsund lækna og sjúkraþjálfara
> Biðstaða hjá Alfreð
Breiðablik og pólska félagið Lechi Gdansk höfðu ekki
komist að samkomulagi um kaupverð á framherjanum
Alfreð Finnbogasyni í gær. Einar Kristján
Jónsson, formaður knattspyrnudeildar
Breiðabliks, sagðist í gær vera að bíða
eftir viðbrögðum frá pólska liðinu.
Fleiri tilboð í leikmanninn gætu síðan
komið í næstu viku en samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er von á
nokkrum njósnurum á leik Blika og
Hauka á mánudag en þeir koma
gagngert til þess að skoða Alfreð.
Þjálfararnir í sumar:
Ólafur Örn Bjarnason
Á bekknum: Fimm leikir, fjórir sigrar og
eitt jafntefli. Markatala 13-6.
Ekki á bekknum: Sex leikir, fjögur töp
og tvö jafntefli. Markatala 5-9.
Lúkas Kostic
Árangur í sumar: Fjórir leikir - fjögur
töp. Markatala 1-9. Rekinn 26. maí
FÓTBOLTI Gengi Grindvíkinga hefur
heldur betur umturnast í sumar
með komu Ólafs Arnar Bjarna-
sonar til félagsins. Varnarmaður-
inn hefur náð frábærum árangri
með liðið, einna helst þegar hann
er sjálfur á leikjunum.
Grindvíkingar byrjuðu sumar-
ið ömurlega undir stjórn Lúkasar
Kostic. Liðið skoraði aðeins eitt
mark í fjórum fyrstu leikjunum
og tapaði þeim öllum. Lúkas var
rekinn í lok maí.
Grindavík leitaði til Ólafs Arnar
sem var samningsbundinn Brann
í Noregi. Hann tók að sér þjálf-
un liðsins en sinnti henni reyndar
með fjarþjálfun fyrst um sinn.
Hann þurfti að klára samning
sinn við Brann og því kom hann
ekki til landsins alkominn fyrr en
í lok júlí.
Eftir að hann tók við hafa Grind-
víkingar byrjað að hala inn stig en
liðið tapaði þó fyrstu tveimur leikj-
unum eftir að hann tók við. Fyrsti
sigurinn kom ekki fyrr en 14. júní
gegn Blikum, en þá stýrði Ólafur
Örn liðinu einmitt af bekknum í
fyrsta sinn. - hþh
Ólafur Örn Bjarnason er góður með Grindavík:
Ósigraður á bekknum
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
51
17
0
08
/1
0
Skór
Fatnaður
Töskur
Mikið úrval