Fréttablaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 2
2 26. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR DÝRALÍF Heilbrigðiseftirlit Reykja- víkur íhugar nú hvort ástæða sé til að skera upp herör gegn kanín- um sem hreiðrað hafa um sig í Ell- iðaárdalnum. Kanínum þar hefur fjölgað gríðarlega síðustu ár og nú er svo komið að íbúar í dalnum, sem og útivistarfólk sem á þar leið um, hafa fengið nóg. Kanínurnar éti gróður, bæði á einkalóðum sem og í borgarlandinu, þær hafi áhrif á fuglalíf auk þess sem af þeim stafi slysahætta. Árný Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftir- lits Reykjavíkur, segir að eftirlit- inu hafi borist nokkrar ábendingar vegna kanínanna. Málið sé í skoðun hjá eftirlit- inu ekki síst vegna slysahættunn- ar sem þeim fylgi. „Þær eiga það til að hlaupa út á Breiðholtsbraut- ina og geta valdið slysum þar. Eins éta þær gróður hjá íbúum í daln- um sem og í borgarlandinu,“ segir Árný. Kanínurnar í Elliðaárdal sækja margar hverjar í heimili Jóns Þor- geirs Ragnarssonar og Halls Heið- ars Hallssonar sem búa á Skálará við Vatnsveituveg en þeir fóðra kanínurnar daglega. Ekki eru allir sáttir við það og telja sumir að þeir stuðli að fjölgun nagdýranna. Jón Þorgeir segir þá ekki halda kanínur enda hafi þeir aldrei keypt eina einustu kanínu. „En þær eru hérna í kring og við gefum þeim að borða,“ segir hann. „Þegar ég er spurður hvort við eigum kanín- urnar segi ég alltaf nei. Þær eiga sig sjálfar.“ Lausaganga kanína er með öllu óheimil samkvæmt samþykkt Reykjavíkurborgar um gæludýra- hald. Halda verður kanínum innan girðingar eða lóðamarka og bannað er að fóðra þær utan þeirra. Framkvæmdastjóri heilbrigðis- eftirlitsins segir það ekki ganga að verið sé að fóðra kanínurnar. „Við verðum að tala við þá, því þetta á ekki að líðast. Ef þeir velja að halda kanínur þá verða þeir að gera það inni á sinni lóð,” segir Árný. Jón Þorgeir segir að hann og sambýlismaður hans séu ekki þeir einu sem gefi kanínunum að borða. „Hingað kemur fólk frá veitinga- stöðum, sjúkrahúsum og öðrum stöðum til að gefa þeim.“ Hann telur að um sjötíu til átta- tíu kanínur séu í Elliðaárdalnum. Aðrir sem Fréttablaðið hefur rætt við telja að þær séu á annað hundr- að talsins. Jón Þorgeir segir að kanínurn- ar veki athygli þar sem þær séu mjög spakar. Fólk komi í dalinn til að skoða þær. Hann segir þó sumt fólk, ketti og máva drepa kanín- urnar. „Mér finnst það forréttindi að fá að umgangast dýrin frjáls en við eigum þær ekki,“ segir hann „Mér finnst yndislegt að fá að umgangast dýrin í sínu náttúrulega umhverfi en þau koma aldrei hingað inn. Við erum meira að segja hættir að klappa þeim því ef þær eru gæfar eru þær dauðar,“ segir Jón Þorgeir. kristjan@frettabladid.is Fóðra kanínur í trássi við reglur borgarinnar Kanínum hefur fjölgað gríðarlega í Elliðaárdalnum. Slysahætta er af nagdýr- unum. Íbúar í dalnum fóðra kanínurnar þótt reglugerð borgarinnar banni það. Útivistarfólki er nóg boðið. Heilbrigðiseftirlit borgarinnar íhugar aðgerðir. KANÍNA Í ELLIÐAÁRDAL Jón Þorgeir Ragnarsson, íbúi í Elliðaárdalnum, segir að kan- ínur hafi verið þar um langt skeið. „Ég held að fyrsta kanínan hafi komið úr hverfinu hér fyrir ofan. Svo eru einhverjir sem hafa komið og skilið kanínur hér eftir. En þegar fólk spyr hvort við eigum þær segi ég nei. Þær hljóta að eiga sig sjálfar,“ segir Jón Þorgeir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Karl, komu áhorfendurnir þá að vörmu Spori? „Já, á meðan við tókum sporið.“ Danshópurinn Sporið steig dansspor á götum úti í Rúmeníu á dögunum. Dans- ararnir klæddust þjóðbúningi, sem var í hlýjasta lagi, enda upp undir 40 stiga hiti í landinu. Karl Stefánsson er annar harmónikuleikara hópsins. LANDIÐ „Maður finnur að bæjar- búar kunna vel að meta þessa andlitslyftingu og þessi nýja ásýnd bæjarins hefur smitað út frá sér því Siglfirðingar eru margir farnir að flikka upp á hús sín,“ segir Finnur Yngvi Kristins- son, verkefnastjóri Rauðku sem hefur veg og vanda af endurgerð gömlu fiskvinnsluhúsanna við smábátahöfnina á Siglufirði. Að baki Rauðku standa örfáir einstaklingar sem vilja ekki láta nafn síns getið, en fyrir dyrum stendur enn frekari uppbygging í bænum. - þlg / sjá Veljum íslenskt Leynifélagið Rauðka stórtækt: Veitir Siglufirði andlitslyftingu BÆJARPRÝÐI Gömlu fiskvinnsluhúsin við smábátahöfnina hafa gengið í endurnýj- un lífdaga. LÖGREGLUMÁL „Það er óbreyttt staða,“ sagði Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn, spurður síðdegis í gær um stöðu rannsóknar á manndrápsmálinu í Hafnarfirði. Yfirheyrslum var haldið áfram í gærdag. Friðrik Smári kvaðst ekki hafa tölu á hve margir hefðu verið yfirheyrðir vegna rann- sóknar málsins frá því að hún hófst. Í einhverjum tilvikum hefðu einstaklingar verið yfir- heyrðir oftar en einu sinni. Spurður um hvenær væri að vænta niðurstöðu rannsóknar á lífsýnum sem send voru út til Svíþjóðar sagði Friðrik Smári að gera mætti ráð fyrir þeim eftir um það bil þrjár vikur. Það færi þó eftir því hversu mikinn for- gang sýnin fengju. - jss Rannsókn á manndrápi: Óbreytt staða VIÐSKIPTI Ákveðið var á fundi skiptastjóra þrotabús BGE eignar- haldsfélags í gær að innheimta lán sem félagið veitti fyrrum starfs- mönnum Baugs. Skuldin nemur um einum milljarði króna. Meginþungi skuldarinnar fellur á helstu fyrrverandi stjórnendur Baugs, Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformann Baugs, Gunnar Sigurðsson, fyrr- verandi forstjóra, og Stefán H. Hilmarsson, fyrrum aðstoðarfor- stjóra. Hann er nú fjármálastjóri 365 miðla. Þremenningarnir áttu samtals 76 prósenta hlut í félaginu en starfsmenn Baugs afganginn. BGE var stofnað árið 2003 utan um hlutafjáreign starfsmanna Baugs í Baugi. Kaupþing Búnað- arbanki lánaði BGE fé sem það lánaði áfram til starfsmanna til hlutabréfakaupanna. Skuldin ligg- ur nú í bókum skilanefndar Kaup- þings. Í ársreikningum BGE má sjá að BGE greiddi upp lánið við bank- ann og var skuldlaust við hann í lok árs 2007. Á sama tíma hækkaði skuld BGE gagnvart Baugi. Í árs- lok 2008 námu heildarskuldir BGE rúmum 2,9 milljörðum króna. Eina eign félagsins voru verðlaus hluta- bréf í Baugi. Bj a r n i S . Ásgeirsson, skiptastjóri BGE eignarhaldsfé- lags, segir líklegt að einhverjir fyrrum starfsmenn Baugs semji um uppgjör skuldarinnar. Ekki megi útiloka að stærstu skulda- málin fari fyrir dómstóla. - jab Skiptastjóri þrotabús BGE eignarhaldsfélags vill að fyrrverandi starfsfólk Baugs um einn milljarð króna: Þrír skulda um átta hundruð milljónir STEFÁN H. HILMARSSON GUNNAR SIGURÐSSON JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON VIÐSKIPTI Einkaþotuleigan IceJet er að mestu hætt að leigja vél- arnar út í forstjóraflug. Endur- skipulagning á rekstrinum stend- ur yfir, að því er fram kemur á netmiðlinum FlightGlobal. IceJet, sem rekur fjórar Dornier 328-einkaþotur, heyrði undir fjárfestingarfélagið Nord- ic Partners. Skilanefnd Lands- bankans leysti eignir félagsins til sín í lok mars og seldi megn- ið af starfseminni í Eystrasalts- ríkjunum. Til stendur að selja þoturnar þegar betur árar á einkaþotumarkaði, samkvæmt upplýsingum frá skilanefnd Landsbankans. - jab IceJet dregur saman seglin: Skilanefnd vill selja vélarnar ÍRAK, AP Fimmtíu og fimm Írakar féllu í tugum sprengjuárása víðs vegar í Írak í gær. Svo virðist sem árásirnar hafi verið samhæfðar, en daginn áður hafði bandarískum hermönnum í Írak í fyrsta sinn frá upphafi stríðsins fækkað niður undir 50 þúsund manns. Uppreisnarmenn hafa hert árásir sínar undanfarna mánuði, samhliða því sem fækkað hefur í liðsafla Bandaríkjanna. Að minnsta kosti helmingur þeirra sem létust í gær voru íraskir lög- reglumenn eða hermenn. - gb Tugir sprengjuárása: Blóði drifinn dagur í Írak RÚSTIR BIFREIÐAR Vettvangur sprengju- árásar í bænum Ramadi. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms frá í júlí að tíu evrópskir bank- ar geti ekki lagt fram kröfu í reikning þrota- bús Samsonar eignarhaldsfélags. Ástæðan fyrir úrskurðinum er að krafan í búið var ekki rétt reif- uð, að mati Hæstaréttar. Krafa bankanna hljóðaði upp á rúma 2,1 milljón evra, jafnvirði 330 millj- óna króna. Í úrskurði héraðsdóms kom fram að upphafleg kröfulýsing bankanna hafi verið með þeim hætti að hún næði ekki til veðréttar í innstæðunum. Bankarnir erlendu eru þýsku bankarnir Comm- erzbank, HSH Nordbank, Bayerische Landesbank, Bayerische Hypo- und Vereinsbank, Raiffeisen Zentralbank Österreich; frönsku bankarnir Soci- été Générale og Natrixis; asíski bankinn United Overseas, færeyski Eik Bank auk ítalska bankans UBI Banca International. Samson, sem var í eigu Björgólfsfeðga, átti rúman fjörutíu prósenta hlut í Landsbankanum. Bankarnir lánuðu félaginu fé með veði í hluta- bréfum í Landsbankanum. Við fall bankanna haustið 2008 urðu hlutabréf Landsbankans einsk- is virði. Bankarnir felldu þá lánin á gjalddaga og gerðu kröfu í bú Samsonar, sem fór í greiðslu- stöðvun um svipað leyti og bankarnir féllu. - jab Erlendir bankar fá ekki veðrétt í innstæðum á reikningum þrotabús Samsonar: Urðu af hundruðum milljóna BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON Trygging fyrir lánum Samsonar voru hlutabréf í Landsbankanum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.