Fréttablaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 26. ágúst 2010 3
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Haustið nálgast hratt og það er hálf dap-urlegt að tala um vetrartískuna áður
en sumri lýkur og ekki síður að
sjá vetrartískuna síðan í júní
í verslunum hér í borg eins og
víðar hvort sem er í fínum eða
ófínum verslunum.
Það væri lygi að segja að
tískan sé frumleg og byltingar-
kennd þennan veturinn en það
eru nú svo sem engin tíðindi frá
því að kreppan skall á. Þannig
er stíllinn víða mjög klassískur,
talað um „klassisima“ sem lyk-
ilorð. Flíkinni er ætlað að vera
óaðfinnanlega sniðin en með
ekki of mörgum smáatriðum
sem tengja hana samtímanum
og lifa þannig kannski lengur
en einn vetur. Innkaup hvort
sem þau eru nauðsynleg eða
ekki eiga að vera skynsamleg.
Neyslan hefur gjörbreyst með
kreppunni og meira að segja
þeir sem geta leyft sér að eyða
miklu gera það með öðrum
hætti en áður hefur þekkst. Mér
segir svo hugur að þessi lífs-
háttur muni ekki breytast hratt
með bættum efnahag. Þeir
óstýrilátustu í tískunni eins og
Riccardo Tisci hjá Givenchy til
dæmis eru þægari í vetur en
áður. Alltaf eru þó einhverjar
nýjungar sem vert er að skoða
en yfirleitt eitthvað sem áður
hefur sést. Í fyrra sáust slár í
vetrartískunni en nú er varla
sá hönnuður sem ekki býður
upp á eins og eina og er það
góð tilbreyting frá vetrarkáp-
unni. Slárnar eru misjafnlega
þykkar, ekki allar sérstaklega
góðar fyrir frost og byl (Paule
Ka). Pilsin eru há í mittið í
vetur sem á vel við kröfuna um
hið óaðfinnanlega snið. Minn-
ir mjög á Joan Crawford eða
Audrey Hepburn í Dior. Stutt-
buxur úr leðri eru nokkuð áber-
andi í vetur sem auvitað þarf að
nota með þykkum sokkabuxum
og háum stígvélum. Stíllinn er
mjög kvenlegur og varir eiga að
vera eldrauðar til að fullkomna
þetta Hollywood-útlit.
Góðu fréttirnar eru þær að
tískan er litskrúðug samanbor-
ið við síðasta vetur þegar varla
sást annar litur en svart og
dökkblátt og hönnuðir virtust
allir vera þjáðir af kreppuþung-
lyndi og kröfum fjárfesta um
að skila hagnaði. Svart er áber-
andi eins og alltaf í vetrartísk-
unni, mikið um grátt og jafn-
vel súkkulaðibrúnt en nú eru
litirnir samt sterkir í bland. Í
vetur sést rautt í ýmsum útgáf-
um eins og hjá Lanvin og sumir
blanda bleikum lit eins og fús-
hía saman við (Valentino) og
nota rautt og bleikt saman að
hætti YSL. Áhrifa í vetur gætir
frá ´50-´60 en einnig frá 1990 en
tískan frá árunum ´80 er klár-
lega á útleið.
Í vetur má einnig tala um síð-
ustu tískulínur nokkurra hönn-
uða í verslunum, þá síðustu sem
Alexander McQueen hafði að
mestu leyti klárað fyrir dauða
sinn í febrúar og svo síðasta
tískulína Jean-Paul Gaultier
fyrir Hermès þar sem hann lét
af störfum í sumar og ætlar nú
að einbeita sér eingöngu að sínu
eigin tískuhúsi. bergb75@free.fr
Haust í lit
Í Seúl í Kóreu fór fram neðan-
sjávartískusýning á dögunum.
Sýningarstúlkurnar sem syntu
um á neðansjávartískusýning-
unni í Seúl sem fram fór um síð-
ustu helgi minntu helst á ævin-
týralegar hafmeyjur. Þær voru
allar klæddar í hanbok sem er
þjóðlegur kóreskur búningur.
Það var hönnuðurinn Park Sul-
Nyeo sem átti heiðurinn af kjól-
unum. - eö
Hanbok
hafmeyjur
Hanbok er hefðbundinn kóreskur bún-
ingur. NORDICPHOTOS/AFP
Sýningarstúlkurnar minntu helst á haf-
meyjur þar sem þær syntu um.
www.hjahrafnhildi.is • Sími 581 2141
Vorum að
opna fulla
búð af
glæsilegri
haustvöru
ansstudioD www.jsb.is
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is EF
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
12 vikna námskeið fyrir stráka og stelpur 16 ára og eldri!
Danslistarskóli JSB
er samstarfsaðili að
Frístundakorti
Reykjavíkurborgar.
Vertu með í haust!
Studio 1 – Námskeið fyrir byrjendur
MOVE LIKE A DANCER…
Langar þig að læra að hreyfa þig og komast í gott líkamlegt form?
• Spennandi og skemmtilegt 12 vikna jazzdans og púlnámskeið fyrir stráka
og stelpur 16 ára og eldri.
• Kennt er í lokuðum hóp á mánudögum og fimmtudögum kl.19:25.
• Kennarar eru Inga Sjöfn Sverrisdóttir og Irma Gunnarsdóttir.
Studio 2 – Námskeið fyrir lengra komna
MUSICAL JAZZ – LYRICAL JAZZ – COMMERCIAL JAZZ
Leynist jazzdansari í þér? Varst þú í jazzballett og langar að byrja aftur? Nú er tækifærið!
• 12 vikna jazzballettnámskeið fyrir lengra komna þar sem ýmsir dansstílar
eru kynntir til sögunnar.
• Kennt er í lokuðum hóp á mánudögum kl. 20:40 og fimmtudögum kl. 20:30.
• Kennarar eru Arna Sif Gunnarsdóttir og Inga Sjöfn Sverrrisdóttir.
Innritun hafin í síma 581 3730 og á jsb@jsb.is
Námskeið hefjast 6.september! Skráning í síma 581 3730 og á jsb@jsb.is Frjáls aðgangur að tækjasal fylgir. Verð: 29.900 kr.
Nýtt! STUDIOKORT
Árskort sem gildir á öll dansnámskeið í Dansstudioi JSB.
Kortið veitir einnig frjálsan aðgang að tækjasal JSB.
Verð: 56.900 kr.
ansstudioD www.jsb.is
STUDIOKORT
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU