Fréttablaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 32
26. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Á Siglufirði fer nú hamförum
leynifélagið Rauðka sem á
heiðurinn af ægifögrum, litrík-
um húsum við svalan sæinn.
„Að hlúa að þessum húsum og
gefa þeim nýtt líf hefur verið bæði
skemmtileg og gefandi vinna, og
hún gerir mikið fyrir Siglufjörð.
Maður finnur að bæjarbúar kunna
vel að meta þessa andlitslyftingu
og þessi nýja ásýnd bæjarins hefur
smitað út frá sér því Siglfirðingar
eru margir farnir að flikka upp á
hús sín. Sömuleiðis hefur miðbær-
inn gengið í gegnum mikla endur-
nýjun, þannig að mjög aðlaðandi
er að koma inn í Siglufjörð,“ segir
Finnur Yngvi Kristinsson verk-
efnastjóri Rauðku, sem hefur veg
og vanda af stórglæsilegri endur-
gerð gömlu fiskvinnsluhúsanna við
smábátahöfnina á Siglufirði, en nor-
rænn byggingarstíll var hafður til
hliðsjónar á húsunum sem endur-
byggð eru á gömlu grind sinni.
„Rauðka var stofnuð í ágúst
2007 í því augnamiði að kaupa og
gera upp gömul og niðurnídd hús í
bænum. Að baki Rauðku standa ör-
fáir einstaklingar sem ekki vilja
láta nafn síns getið, en langaði að
láta gott af sér leiða og gefa til baka
til bæjarfélagsins. Þeir vildu halda
gömlu bæjarmyndinni heilsteyptri
og fagurri, og endurgera húsin
þannig að þau samræmist vel um-
hverfi sínu og gömlu ímynd Siglu-
fjarðar sem síldarbæs. Hvarvetna
má finna anda liðinnar tíðar og víst
að landsmenn koma ekki á sam-
bærilega staði annars staðar á land-
inu,“ segir Finnur og vísar meðal
annars til Hannesar Boy Cafés þar
sem húsmunir líkjast síldartunnum
og öðrum viðeigandi efnivið.
„Þessir gömlu og niðurgrotn-
andi bárujárnshjallar voru orðn-
ir til mikillar óprýði fyrir bæinn,
en við höfum nú þegar tekið tvo
þeirra í gegn. Sá guli geymir kaffi-
húsið Hannes Boy Café sem við
nefndum svo til að heiðra minn-
ingu samnefnds siglfirsks sjóara
sem sat þarna oft fyrir utan og var
í miklu uppáhaldi hjá bæjarbúum
og í hinum, þeim bláa, hefur verið
útbúin upplýsinga- og þjónustumið-
stöð, lítil sjoppa og gallerí fyrir
listsýningar,“ segir Finnur sem um
þessar mundir er í startholunum
vegna endurbyggingar þriðja húss-
ins, þess rauða, sem opna á sem
kaffihús og fleira næsta sumar.
Að auki hefur Rauðka endurgert
allt umhverfi í kringum smábáta-
höfnina.
„Víst eru þetta dýrar fram-
kvæmdir og stórar, en umfram
allt ánægjulegar. Þegar hafa farið
200 milljónir í uppbyggingu fyrstu
húsanna og áætlað að 150 milljón-
ir kosti að gera rauðu húsin upp.
Þá vill Rauðka reisa hótel innan
við smábátahöfnina á næstu árum,
sem gæti kostað 800 milljónir og
mun öll hönnun taka sama mið af
gamla tímanum.“ - þlg
Kaffisopi hjá Hannesi Boy
Finnur Yngvi Kristinsson við reykvísku
smábátahöfnina að kynna sér breyting-
ar sem þar hafa átt sér stað.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gömlu fiskvinnsluhúsin á Siglufirði hafa gengið í endurnýjun lífdaga og draga nú ferðalanga sem heimamenn að, enda stásslega
fögur með nýtt hlutverk, ósvikinn Siglósjarma og sannkölluð bæjarprýði við gömlu smábátahöfnina. MYND/SIGRÍÐUR MARÍA RÓBERTSDÓTTIR
Svona litu gömlu fisvinnsluhúsin út fyrir andlitslyftingu. Götumynd með endurgerðu fiskvinnsluhúsunum.
Ólafur Jónsson, matreiðslumaður hjá
Ferðaþjónustunni að Hólum í Hjaltadal,
reynir að nota hráefni úr nánasta um-
hverfi við matargerð sína.
„Ég er til dæmis með afar vinsæla hvann-
arsúpu. Skógurinn hér er svo með ótal teg-
undir af sveppum sem eru afar vinsæl-
ir í súpur og ýmsa rétti. Síðan bý ég til
mitt eigið krydd á lambakjötið úr jurtum
í skóginum.“
Inntur eftir því af hverju Ólafur nýti
jurtir úr nágrenninu við matargerðina
segir hann: „Það er svona leikur að bragði.
Ég er ákveðinn byrjandi hér í Skagafirði
með verkefnið matur úr héraði. Við
skuldbindum okkur hér til að nota
heimafengið hráefni í alla þá rétti
sem við getum.“
Ólafur segir rétti úr heima-
fengnu hráefni vinsæla og að fólk
komi víða að til að gæða sér á
þeim.
„Við höfum fengið fólk sem
gistir á Akureyri og kemur hing-
að í kvöldverð og fer svo til baka. Það er
ákveðinn bónus.“ - mmf
Leikur að bragðinu
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
S
FG
4
20
40
0
4.
20
08
512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000