Fréttablaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 56
40 26. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Blikar vilja meiri pening
Enn er pattstaða í málum Alfreðs Finnbogasonar. Breiðablik
og Lechia Gdansk hafa verið að kasta á milli sín tilboðum
og enn ber nokkuð í milli að því er Einar Kristján Jónsson,
formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, segir. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins hefur pólska liðið boðið Blikum
30 milljónir íslenskra króna í Alfreð en Blikar vilja meira.
Einar Kristján viðurkenndi í gær að mögu-
leikinn á því að Alfreð færi til Póllands færi
minnkandi enda stutt í að glugginn lokist.
Þess utan vill Alfreð skoða aðstæður
áður en hann semur og ekki mikill
tími fyrir hann að skjótast til Póllands.
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohn-
sen er enn leikmaður AS Monaco í
Frakklandi en hann leitar nú log-
andi ljósi að nýju félagi. Eiður vill
komast frá Frakklandi og helst af
öllu aftur til Englands.
„Það er enn algjör óvissa um
hans mál ennþá. Það er ekkert að
frétta,“ sagði Arnór Guðjohnsen,
faðir Eiðs og umboðsmaður, við
Fréttablaðið í gær.
Hann staðfesti að allt kæmi til
greina eins og staðan væri, meðal
annars að hann spilaði með Mon-
aco í vetur.
En er ekkert stress komið í Eið
þar sem stutt er eftir af gluggan-
um? „Nei, alls ekki,“ sagði Arnór
en Eiður fékk sem kunnugt er frí
frá landsleikjum Íslands við Noreg
og Danmörku til að einbeita sér að
leitinni að nýju félagi.
„Ég hef ekki hugmynd um hve-
nær málið skýrist,“ sagði Arnór
sem vildi ekkert segja til um það
hvort einhver tilboð lægju fyrir
framan Eið þessa stundina.
Monaco ber Eiði söguna vel.
„Eiður má fara frá félaginu. Mon-
aco gaf honum sérstakt leyfi til
að fara til Íslands til að æfa einn.
Það var gert í góðu á milli okkar
og leikmannsins. Hann hefur ekki
verið beðinn um að halda sig frá
félaginu eða neitt slíkt,“ sagði
blaðamannafulltrúi Monaco, Pier-
re-Joseph Gadeau, við Fréttablað-
ið í gær.
Gadeau er jákvæður í garð Eiðs
Smára. „Eiður er velkominn aftur
til Monaco. Hann er að leita sér að
nýju félagi og lausnum fyrir fram-
tíð sína. Við höfum ekkert heyrt
frá honum hvernig það gengur í
nokkrar vikur,“ segir hann. „Ef
Eiður verður ekki búinn að finna
sér nýtt félag þegar félagaskipta-
glugganum verður lokað 1. sept-
ember kemur hann bara aftur til
okkar. Hann er velkominn aftur
til Monaco. Hann er enn leikmað-
ur okkar.“
„Það hefur gengið erfiðlega hjá
honum að finna sér lið,“ segir Gad-
eau sem hefur þó ekki heyrt í Eiði
lengi. „Við höfum í það minnsta
ekki heyrt að eitthvað sé að ger-
ast.“
Blaðamannafulltrúinn segir að
það komi bæði til greina að Eiður
fari að láni frá félaginu eða hrein-
lega að selja hann strax. „Svo lengi
sem Monaco tapar ekki peningum
þá stöndum við ekki í vegi fyrir
honum að fara. Við ætlum ekki að
neyða hann til að vera hér áfram,“
segir Gadeau. Eiður kom frítt til
félagsins frá Barcelona.
Ljóst þykir að Eiður Smári veðj-
aði á rangan hest þegar hann gekk
í raðir hins fornfræga félags frá
Barcelona. Hann komst aldrei inn
í leik liðsins og var að lokum lán-
aður til Tottenham í janúar.
Harry Redknapp, stjóri félags-
ins, hefur lýst yfir áhuga á því að
fá Eið aftur. Hann hefur einnig
verið orðaður sterklega við Ful-
ham sem og West Ham, Birming-
ham og Rangers í Skotlandi. Félag
í Dúbaí hefur meira að segja verið
orðað við Eið.
Eiður er staddur á Íslandi þar
sem hann æfir í Sporthúsinu. Á
milli þess fer hann til æfinga hjá
liðum á Íslandi. Hann æfði til að
mynda með KR í vikunni. Þó kemur
ekki til greina að hann gangi í raðir
félags á Íslandi þar sem félaga-
skiptaglugginn hér heima er lokað-
ur. hjalti@frettabladid.is
Það er ekkert stress í
gangi hjá Eiði Smára
Umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen segir að ekkert sé að frétta af leit hans
að nýju félagi. Monaco segir Eið velkominn aftur til félagsins. Það standi ekki í
vegi fyrir því að hann fari, svo lengi sem það tapi ekki peningum á honum.
SÉRTU VELKOMINN HEIM Monaco segir að Eiður sé velkominn aftur til félagsins. Það
standi heldur ekki í vegi fyrir honum í leitinni að nýju félagi. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Ólafur Þórðarson, þjálf-
ari Fylkis, lét í það skína eftir
síðasta leik Fylkis að hann gæti
hætt sem þjálfari liðsins. Það
mun ekki gerast.
„Ég er ekki hættur og það
stendur ekki til að hætta. Ég
mun ekki gefast upp. Við verðum
að standa saman og klára þetta
tímabil eins og menn. Það geng-
ur fyrir að tryggja sætið í deild-
inni,“ segir Ólafur.
„Ég er samt mjög ósáttur við
árangurinn í sumar þó svo við
séum að byggja þetta nær ein-
göngu á uppöldum leikmönn-
um. Það er óþolandi að vera með
góða stöðu og tapa henni alltaf
niður,“ segir Ólafur sem telur
Fylki vanta reynslu í hópinn. Það
sé aðalástæðan fyrir því að lið-
inu gangi ekki betur en raun ber
vitni.
„Svo er breiddin líka lítil hjá
okkur. Það var talað um það fyrir
sumarið að það gæti komið í
bakið og það hefur komið á dag-
inn. Við misstum líka reynslu-
mikla menn fyrir tímabilið sem
reyndist okkur líka erfitt,“ segir
Ólafur sem skartar myndarlegu
alskeggi þessa dagana sem teng-
ist þó ekki gengi liðsins.
„Innra eðlið er kannski að
koma í ljós. Maður er svoddan
villimaður,“ segir Ólafur og hlær
dátt. „Nei, ég er reyndar voða-
lega ljúfur.“ - hbg
Ólafur Þórðarson:
Ætlar ekki að
gefast upp
ÓLI ÞÓRÐAR Er ekki vanur því að hlaupa
frá verkefnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Deildarleikir Rúnars
Frá 25. júlí til 23. ágúst:
Selfoss - KR 0-3
KR - Fram 4-0
KR - Stjarnan 3-1
Keflavík - KR 0-1
KR - Fram 2-1
Valur - KR 1-4
FÓTBOLTI Rúnar Kristinsson fer
með sína menn í KR á Fylkisvöll-
inn í kvöld. Hann hefur stýrt KR
í sex deildarleikjum, unnið þá
alla og liðið hefur aðeins fengið á
sig tvö mörk en skorað sautján.
Fylkismenn hafa unnið tvo af
síðustu sex leikjum en tapað fjór-
um, skorað ellefu mörk en fengið
á sig tólf. Fylkir er með 18 stig í
níunda sæti deildarinnar en KR
28 í því fjórða. Það getur kom-
ist upp í annað sætið með sigri í
kvöld. - hþh
KR getur komist í annað sæti:
Sex sigurleikir
Rúnars í röð
GÓÐUR Rúnar hefur verið sem vítamín-
sprauta fyrir KR. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Ísland lauk í gær keppni í undankeppni HM 2011 með 5-0 útisigri
á Eistlandi í gær. Margrét Lára Viðarsdóttir og Sara Björk Gunnars-
dóttir skoruðu tvö mörk hvor og Edda Garðarsdóttir eitt.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, var ánægður með
leikinn. „Það voru margir góðir leikkaflar hjá okkur og mörkin voru
flott sem og samspilið. Eistlendingar voru búnir að bæta sig
mikið frá því við mættum þeim síðast og þær voru betur
skipulagðar nú. En leikurinn var þó aldrei spennandi
og þetta var öruggur sigur. Það var einnig gott að við
héldum hreinu.“
Ísland varð í öðru sæti riðilsins með 24 stig af 30
mögulegum. Liðið tapaði í tvígang fyrir sterku liði
Frakka og fer því ekki á HM í Þýskalandi á næsta
ári. Samningur Sigurðar Ragnars rennur út á næst-
unni en sjálfur vill hann halda áfram. „Ég hef þó ekki
rætt um mín mál við framkvæmdarstjóra KSÍ. En ég
hef fullan áhuga á að halda áfram ef mér býðst það.“
Hann segir að enn sé verk að vinna með landsliðinu. „Það
hefur verið spennandi og gaman að taka þátt í uppbyggingu
kvennaknattspyrnunnar á Íslandi og ég vona að ég fái tækifæri
til þess áfram. Það er sífellt meiri áhugi að skapast fyrir íþrótt-
inni og það sést bæði í iðkenda- og áhorfendafjölda. Þetta er
allt á jákvæðri og góðri leið.“
Hann segir að breiddin hafi aukist í landsliðinu undan-
farin ár en meira þurfi til til að styrkja liðið. „Við viljum fá
fleiri toppleikmenn. Atvinnumönnum hefur fjölgað und-
anfarið og vonandi heldur þeim áfram að fjölga enda tel
ég að sterkustu leikmenn Íslandsmótsins eigi erindi í
atvinnumennskuna. Íslenskir atvinnumenn erlendis eru
um tíu talsins núna og er það vissulega miklu meira en
það var fyrir tveimur árum síðan. En við þurfum fleiri til
að styrkja landsliðið og vonandi bætast fleiri í þennan
hóp á næstu árum.“
SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON: LANDSLIÐSÞJÁLFARINN ÁNÆGÐUR MEÐ LOKALEIK ÍSLANDS Í UNDANKEPPNI HM 2011
Landsliðið þarf að eignast fleiri toppleikmenn
FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Sölvi
Geir Ottesen var hetja FC Kaup-
mannahafnar í gær er hann
tryggði sínum mönnum 1-0 sigur
á norska liðinu Rosenborg í síð-
ari viðureign liðanna í umspili
um sæti í riðlakeppni deildarinn-
ar í gær. Samanlögð úrslit voru 2-
2 en FCK komst áfram á útivall-
armarki.
Sölvi Geir skoraði markið með
skalla eftir langt innkast á 32. mín-
útu leiksins. FCK fékk fleiri tæki-
færi til að skora í fyrri hálfleik en
Rosenborg komst nálægt því að
skora í síðari hálfleik og átti Roar
Strand til að mynda skot í slá.
„Þetta var mögnuð upplifun og
afar sætt,“ sagði Sölvi í samtali við
Fréttablaðið í gær. „Það var gríð-
arlegar mikið undir og mikill léttir
og fögnuður í leikslok. Það er auð-
vitað alltaf gaman að skora og sér-
staklega svona mikilvægt mark.
En aðalmálið er að við erum komn-
ir áfram í Meistaradeildinni. Það
eru spennandi tímar framundan.“
Hann vonast auðvitað til að fá að
mæta einu af stórliðum Evrópu en
dregið verður í riðla í dag. „En við
viljum líka gera góða hluti í riðl-
inum og komast áfram. Það væri
ágætt að fá eitthvað stórlið og taka
svo annað sætið í riðlinum,“ sagði
hann í léttum dúr.
Miklir peningar eru í Meistara-
deildinni og tryggði mark Sölva
FCK háar fjárhæðir. „Mér skilst að
þetta séu um 150 milljónir dansk-
ar króna [rúmir þrír milljarðar
króna] sem voru undir í leiknum.
Kannski að ég fái prósentur af því
– það væri ekki verra,“ sagði hann
og hló.
Tottenham komst einnig í riðla-
keppnina eftir 4-0 sigur á Young
Boys frá Sviss á heimavelli þar
sem Peter Crouch skoraði þrennu
og Jermain Defoe eitt. Totten-
ham vann 6-3 samanlagðan sigur
og keppir nú í fyrsta sinn í riðla-
keppninni. Síðast tók Tottenham
þátt í keppni þeirra bestu í Evr-
ópu tímabilið 1961-62.
Alls verða 32 lið í hattinum
þegar dregið verður í riðlakeppn-
ina í dag. - esá
Sölvi Geir Ottesen var hetja FCK og skoraði mark sem mun tryggja liðinu þrjá milljarða króna í tekjur:
Afar sætt og spennandi tímar framundan
MILLJÓNAMARK Sölvi Geir skoraði sitt
fyrsta mark fyrir FCK í gær og það reynd-
ist afar dýrmætt. NORDIC PHOTOS/GETTY