Fréttablaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 36
26. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
● ÚTIKAFFIHÚS KVENNASKÓLANS Við ákváðum að nýta
góða veðrið meðan við höfum það, áður en skammdegið með próf-
um skellur á og hafa fyrstu skólavikuna skemmtilega. Útikaffihús, þar
sem kakó, kaffi og meðlæti er selt á kostnaðarverði, er einn liður í
því,“ segir Sindri Már Hjartarson formaður Keðjunnar, Nemendafélags
Kvennaskólans í Reykjavík. Hann segir lista-
nefnd félagsins hafa skipulagt dagana
og skreytt allt úti og inni. Því sitji
fólk frekar úti en inni. „Við erum
búin að vera að spila rúllutón-
list hér úti frá átta til fjögur á
daginn og á morgun [í dag]
kemur hljómsveitin Boba fram í
hádeginu, frá hálf tólf til tólf.
● NÝTT NAN BRAUÐ
Á MARKAÐ Veitingahúsið
Tandoori í Skeifunni hefur sett
á markað nýlega tvær tegundir
af Nan brauðum, venjulegt
og með hvítlauk. Brauðin eru
bökuð í ekta Tandoori ofni
við 400 gráðu hita en þau eru
handgerð og án allra aukefna.
Þau hafa notið nokkurra vin-
sælda en von er á fleiri tegund-
um í verslanir bráðlega.
Hugmyndahús háskólanna hleypir
svokallaðri Hugmyndasmiðju 2010
af stokkunum nú í september. Verk-
efnið er hugsað fyrir þá sem lang-
ar að koma hugmynd að vöru eða
þjónustu í framkvæmd á sviði skap-
andi greina, tækni, vísinda eða við-
skipta. Hugmyndasmiðjan hefst 2.
september og stendur í sex vikur
þar sem fyrirlestrar verða haldn-
ir á fimmtudögum og vinnusmiðj-
ur á laugardögum. Í lokin fá sex
þátttakendur hvatningarverðlaun
að upphæð 500.000 krónur og eru
verðlaunin veitt þeim sem þykja
hafa unnið best úr hugmynd sinni.
Ekki er greitt fyrir þátttöku í Hug-
myndasmiðjunni en umsóknum þarf
að skila rafrænt á hugmyndahus.is
og er takmarkað sætaframboð. - jma
Hugmynda-
smiðjan 2010
Sex þátttakendur fá hvatningarverðlaun
í lok Hugmyndasmiðjunnar sem Hug-
myndahús háskólanna stendur fyrir.
● MEÐ
KEIM AF
ÍSLANDI
Fjallagrasa-
snafs sem fram
á síðasta ár hefur
aðeins fengist í
Leifsstöð er nú seld-
ur í Vínbúð og á börum og veit-
ingahúsum í miðbæ Reykjavíkur.
Íslenska þjóðin hefur notað
fjallagrös frá landnámi að talið
er, bæði til matargerðar og
lækninga. Árið 1993 var farið að
framleiða snafs með því að láta
möluð grös liggja í spírablöndu
sem leysir upp og dregur í sig
líffræðilega virk efni úr þeim og
gefur drykknum sérstakan lit
og bragð. Heil fjallagrös eru svo
sett ofan í flöskuna til prýði.
Hlíðarsmára 2 201 Kópavogi Sími 565 7272 www.verkefnalausnir.is
HELSTU
NÁMSKEIÐS-
ÞÆTTIR
Elín Þ.
Þorsteinsdóttir
Sigrún
Stefánsdóttir
LEIÐBEINENDUR:
NÁMSKEIÐSDAGSKRÁ:
Hugarflug
Grunnæfingar
Tölulegar upplýsingar
Gerð skipurita
Fundarstjórnun
Ritgerðasmíð og skýrslugerð
Verkefnastjórnun og skipulagning
Samspil Outlook og MindManager
Kynningar
Stjórnun upplýsinga
HRAÐFERÐ
7 klst.
kl. 8.30–16.30
25. ágúst
9. september
14. október
11. nóvember
Forkröfur: Að vera vel tölvufær
ÓKEYPIS OPNIR
KYNNINGARFUNDIR
7 klst.
kl. 8.30–16.30
7. október
5. nóvember
GRUNNUR + FRAMHALD
2x4 klst.
kl. 8.30–12.30
22.–23. september
26.–27. október
24.–25. nóvember
Ómar Á.
Óskarsson
Frumsýning
á MindManager 9
föstudaginn 27. ágúst milli kl. 9 og 10
í Hlíðarsmára 8, 4. hæð. Allir velkomnir.