Fréttablaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 17
569 5100
skyrr@skyrr.is Velkomin
Rafræn viðskipti og innkaup gera vinnustöðum kleift að spara
tíma, pappír og peninga. Notkun skeytamiðlunar í dreifingu
reikninga, pantana, hreyfingalista og annarra skjala lágmarkar
kostnað við umsýslu, ásamt því að stórauka nákvæmni og
öryggi.
Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar,
annars vegar um ávinning af innleiðingu á rafrænum
reikningum og hins vegar um tengdar lausnir í Microsoft
Dynamics NAV sem lúta að þessu sviði.
Fundurinn er miðaður við þarfir stjórnenda, fjármálastjóra
og starfsfólks fjármálasviða í atvinnulífinu.
Fundurinn verður haldinn núna á föstudaginn kemur,
27. ágúst, frá kl. 8:00-10:00.
Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00, en formleg
dagskrá hefst kl. 8:30 og fundarlok eru áætluð kl. 10:00.
Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu og fundurinn er
öllum opinn, meðan húsrúm leyfir.
Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2
í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).
Skráning fer fram á vefsvæði Skýrr (skyrr.is).
Rafrænir reikningar &
Microsoft Dynamics NAV
Opinn morgunverðarfundur Skýrr föstudaginn 27. ágúst um rafræna reikninga,
skeytamiðlun og tengdar lausnir fyrir Microsoft Dynamics NAV
8:00 Húsið opnar - Morgunverður
Ljúffengar veitingar að hætti hússins
8:30 Morgunverðurinn er aldrei (alveg) ókeypis
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr
8:40 Reykjavíkurborg og rafræn viðskipti
Jónas Skúlason, deildarstjóri bókhalds hjá Reykjavíkurborg
9:00 Rafrænir reikningar – tíminn er núna
Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar
9:20 Rafræn viðskipti með Microsoft Dynamics NAV
María Leifsdóttir og Styrmir Kristjánsson, ráðgjafar hjá Skýrr
9:40 Microsoft Dynamics NAV á skrifstofunni
(handhæg tól til að stytta ferla og flýta fyrir úrvinnslu bókhalds)
Gunnar Gestsson, hugbúnaðarþróun, Skýrr
Fundarstjóri
Ólína Laxdal, viðskiptastjóri hjá Skýrr