Fréttablaðið - 26.08.2010, Síða 4
4 26. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
DÝRALÍF Mink fer fækkandi í
Reykjavík, að sögn Guðmundar
Björnssonar, meindýraeyðis hjá
Reykjavíkurborg.
„Þetta voru á annað hundrað dýr
sem við vorum að veiða fyrstu árin
sem ég var hérna, sem var í kring-
um 1990. Upp úr 2000 fer honum
fækkandi í Reykjavík og í fyrra
veiddum við um 65 dýr,“ segir Guð-
mundur.
Hann segir að minkurinn sé
meindýr sem eigi ekki heima í
borgarlandinu. Hann sé helst að
finna við ár, vötn eða niðri við sjó
þar sem hann veiðir fisk og fugla.
Flesta minka í höfuðborginni hafi
meindýraeyðar borgarinnar þó
veitt í Viðey.
„Við höfum verið að veiða hann í
Elliðaárdal, Úlfarsárdal og á fleiri
stöðum en flesta veiddum við í
Viðey. Þar veiddum við 24 minka
í fyrra að mig minnir. Restin var
svo svona vítt og breitt um borg-
ina,“ segir Guðmundur.
Minkur er rándýr af marðarætt
sem var fluttur hingað til lands
til loðdýraræktar árið 1931. Hann
slapp þó fljótlega út og breiddist út
um allt land.
Árið 2000 voru tæplega níu þús-
und minkar veiddir um allt land
samkvæmt tölum frá Umhverfis-
stofnun en 2008 voru þeir tæplega
sjö þúsund. - kh
Um 65 minkar voru veiddir í höfuðborginni í fyrra samkvæmt meindýraeyði:
Minna um mink í Reykjavík
MINKUR Um 65 minkar voru veiddir í
höfuðborginni í fyrra.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
33°
32°
17°
18°
17°
30°
18°
18°
25°
18°
31°
27°
34°
15°
28°
18°
17°Á MORGUN
NV- og V-áttir
3-8 m/s.
LAUGARDAGUR
Breytileg átt,
5-10 m/s.
12
10
8
8
9
9
8
11
10
12
6
3
2
2
2
2
3
2
3
2
5
2
11
8 9
9
12 11
7 6
6
11
BEST SYÐST Í dag
og á morgun verð-
ur hægviðri ríkjandi
á landinu. Horfur
eru á lítilsháttar
vætu allra austast
og síðdegis má
búast við skúrum
við SV-ströndina.
Áfram verður nokk-
uð svalt norðan til
en hitinn ætti að
komast upp í 10-
15°C sunnantil.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
DÝRALÍF Steypireyði rak á land
við eyðibýlið Ásbúð á Skaga fyrir
skömmu en fornleifafræðingar frá
Byggðasafni Skagafjarðar fundu
hvalinn í fyrradag, að því er fram
kemur á Feyki.is. Dýrið, sem er
að líkindum kýr, er 22,8 metrar
á lengd sem fróðir menn segja að
þýði að dýrið sé að nálgast kyn-
þroskaaldur.
Guðmundur Stefán Sigurðsson
fornleifafræðingur segir í sam-
tali við Feyki að hvalreki sem
þessi hefði líklega verið tilefni
til veisluhalda á Skaga fyrir um
hundrað árum en í dag þyki hann
ekki matur. Dýrið hafi enda líklega
rekið dautt á land. - kh
Austur-Húnavatnssýsla:
Hvalreki við
Ásbúð á Skaga
LÖGREGLUMÁL Fimm íslenskir karl-
menn, sem lögreglan handtók í
fyrramorgun vegna rannsóknar
á innbrotum, hafa játað að hafa
verið að verki á þremur stöðum.
Þeim hefur öllum verið sleppt, að
sögn Árna Þórs Sigmundssonar
aðstoðaryfirlögregluþjóns á lög-
reglustöðinni á Krókhálsi.
Mennirnir, sem eru á milli tví-
tugs og þrítugs, hafa allir komið
við sögu lögreglu áður. Tveimur
þeirra var sleppt í fyrrakvöld að
loknum yfirheyrslum, en þremur í
gærmorgun. Lögregla gerði þrjár
húsleitir og fann tölvubúnað, skjái
og myndvarpa, sem stolið hafði
verið í innbrotum á svæðinu og
sönnuðu aðild þeirra. -jss
Þjófarnir látnir lausir:
Játuðu innbrot
við yfirheyrslur
DÓMSMÁL Ungur karlmaður hefur
stefnt íslenska ríkinu fyrir ólög-
mæta handtöku.
Maðurinn var handtekinn í
júnímánuði árið 2008 vegna
gruns um aðild að líkamsárás.
Manninum var haldið í tíu
klukkustundir á lögreglustöð á
meðan yfirheyrslur fóru fram.
Honum var síðan sleppt að þeim
loknum.
Mál mannsins var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær-
morgun. Hann krefst 700 þúsund
króna í skaðabætur. - jhh
Ungur karlmaður fyrir dómi:
Vill 700 þúsund
í bætur frá ríki
BANDARÍKIN Fimmtán ára gamall
McLaren F1 ofursportbíll millj-
ónamæringsins Larry Ellison var
seldur á tæplega 3,6 milljónir dala
á uppboði á bílasýningu á Pebble
Beach I í Kaliforníu í vikunni.
Ellison er forstjóri Oracle hug-
búnaðarfyrirtækisins og talinn
sjötti ríkasti maður heims.
Fjallað er um söluna á lífsstíls-
vef Børsen í Danmörku, en þar
kemur fram að nýr hafi bíllinn
kostað 970 þúsund dali árið 1995.
„Jafnvel þótt tekið sé tillit til
verðbólgu í 15 ár er hægt að segja
að Larry Ellison mali líka gull á
því að aka dýrum bílum.“ - óká
Ellison verður allt að gulli:
Seldi ofursport-
bíl með gróða
MCLAREN F1 Bíll sömu tegundar og
Larry Ellison seldi nýverið á sem nemur
430 milljónum íslenskra króna.
Peningar í óskilum
Peningar sem fundust í vestur-
bæ Reykjavíkur eru í óskilum hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Eigandinn getur vitjað þeirra í
afgreiðslu lögreglunnar á Hverfisgötu
115, Reykjavík. Afhending fer fram
gegn staðfestingu á eignarhaldi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
NEYÐARAÐSTOÐ Bæta á við sjálf-
boðaliðum hjá hjálparsíma Rauða
krossins 1717 í september.
Fram kemur á vef Rauða kross-
ins að um þessar mundir sé tekið
á móti umsóknum. „Áhugasamir
einstaklingar sem vilja leggja
þessu þarfa verkefni lið eru hvatt-
ir til að senda inn umsókn,“ segir
þar. Tekið er fram að æskilegt sé
að hver sjálfboðaliði taki tvær til
þrjá vaktir á mánuði. Umsjónar-
maður sjái um að raða fólki á
vaktir og sé það gert samkvæmt
óskum hvers og eins. - óká
Sjálfboðaliða vantar í símann:
Rauði krossinn
kallar á aðstoð
SJÁVARÚTVEGSMÁL Fulltrúar fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins (ESB) ætla að funda um makríl-
veiðar Íslendinga og Færeyinga í
Brussel í Belgíu í næsta mánuði.
Þetta tilkynnti Oliver Drewes,
talsmaður framkvæmdastjórn-
arinnar í sjávarútvegsmálum, á
blaðamannafundi í gær. Fundurinn
verður tæknilegs eðlis á milli full-
trúa ESB og landanna beggja.
Á blaðamannafundinum fór Dre-
wes yfir deilur ESB við Íslendinga
og Færeyinga og lagði áherslu á
það viðhorf ESB að Íslendingar og
Færeyingar valdi makrílstofnin-
um skaða með ofveiði. „Þeir veiða
langt umfram
það sem rétt-
lætanlegt er í
vísindaskyni,“
sagði hann.
„Þeir [inn-
skot blm: fram-
kvæmdastjórn
ESB] geta fund-
að eins og þeim
s ý n i s t . V i ð
eigum jafn mik-
inn rétt til að
veiða innan okkar lögsögu og þeir
að veiða innan sinnar,“ segir Frið-
rik J. Arngrímsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands íslenskra
útvegsmanna (LÍÚ). Ekki náðist
í Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, vegna máls-
ins.
Mjög hefur hitnað í deilum ESB
við Íslendinga og Færeyinga sem
snúa að úthlutun kvóta á makríl.
Skoski Evrópuþingmaðurinn Stru-
an Stevenson, krafðist þess á mánu-
dag að ESB beiti löndin þvingunum
á borð við löndunarbann. Þá líkti
Financial Times deilunum á þriðju-
dag við þorskastríðunum við Breta
á sjötta og áttunda áratug síðustu
aldar og hafði eftir Mariu Daman-
aki, sjávarútvegsmálastjóra ESB,
að Íslendingar taki mikla áhættu
með makrílveiðum sínum, þær geti
haft neikvæð áhrif á aðildarvið-
ræður Íslands við ESB. Hún hefur
skrifað Stefan Fuele, stækkunar-
málastjóra ESB, bréf um málið. Þar
kemur fram að ekki sé mögulegt að
réttlæta makrílkvóta íslenska fisk-
veiðiflotans. Bréfið var gert opin-
bert á þriðjudag.
Íslensk fiskiskip geta veitt 130
þúsund tonn af makríl á þessu
ári. Friðrik J. Arngrímsson segir
fiskveiðiflotann nánast kominn
að mörkum, rúm hundrað þúsund
tonn séu komin á land. „Við hefðum
getað veitt mun meira en höfum
takmarkað þær,“ segir hann. Makr-
íllinn er að mestu frystur og seldur
á erlendum mörkuðum.
jonab@frettabladid.is
MAKRÍLVEIÐI Íslensk stjórnvöld hafa gagnrýnt harðlega makrílveiðar Íslendinga,
sem sagðar eru ógna makrílstofninum. Lítið þarf til að ná upp í 130 þúsund tonna
makrílkvótann.FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
ESB blæs til fundar
um makrílveiðar
Fulltrúar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins ætla að ræða um makríl-
veiði við íslensk og færeysk stjórnvöld í næsta mánuði. Friðrik J. Arngrímsson
segir Íslendinga hafa jafn mikinn rétt til veiðanna og aðildarríki ESB.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 25.08.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,6481
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
120,56 121,14
185,98 186,88
152,49 153,35
20,471 20,591
19,045 19,157
16,117 16,211
1,4252 1,4336
181,67 182,75
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
PI
PA
R\
TB
W
A
S
ÍA
9
26
03
-5kr.
VIÐ FYR
STU NO
TKUN Ó
B-LYKIL
SINS
SÍÐAN A
LLTAF -2kr
.
Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is eða í síma 515 1141
ÓB-lykilhafar geta safnað Vildarpunktum Icelandair.