Fréttablaðið - 26.08.2010, Side 6
6 26. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
Lokað
Vegna útfarar Hannesar Þórs Helgasonar verður
lokað fimmtudaginn 26. ágúst hjá Sælgætisgerðinni
Góu-Lindu og á skrifstofum og veitingastöðum
KFC og Taco Bell.
®
HJÓL FYR
IR ALLA F
JÖLSKYLD
UNA
20-40% a
fsláttur
af hjólum
ÖLL NOTU
Ð
BARNAHJÓ
L Á
KR. 5.000.
-
-20%
-30%
HEILBRIGÐISMÁL Auknar líkur eru
á því að fólk með ákveðna tegund
mígrenihöfuðverkja deyi af völd-
um hjarta- og æðasjúkdóma. Í nið-
urstöðum íslenskrar rannsókn-
ar sem birt var í gær í vefútgáfu
British Medical Journal (BMJ)
kemur fram að fólk sem þjáist af
mígreni með áru, en þá fylgja höf-
uðverknum sjón- eða skyntruflan-
ir, sé í þessum áhættuhópi. Fólk
með mígreni án áru er ekki í auk-
inni hættu.
Lárus Steinþór Guðmundsson,
faraldsfræðingur og doktorsnemi
við Háskóla Íslands, sem leiddi
rannsóknina, segir að í eldri rann-
sóknum hafi verið að finna vísbend-
ingar um tengslin, en í þessari hafi
í fyrsta sinn verið hægt að greina
á milli mígrenis með og án áru.
Rannsóknin marki því tímamót.
Næsta skref segir Lárus að svara
spurningunni um hvað valdi teng-
ingunni. „Við eigum eftir að svara
spurningunni um hvort lyfjameð-
ferð sem fækkar köstum mígren-
is með áru dragi einnig úr líkum á
hjartaáfalli og hjartasjúkdómum.“
Rannsóknin var á vegum Hjarta-
verndar og unnin í samvinnu við
Háskóla Íslands, National Institute
of Aging og Uniformed Services
University of the Health Scienc-
es í Bandaríkjunum. Í tilkynningu
Hjartaverndar kemur fram að þetta
sé í fyrsta sinn sem niðurstöður
hóprannsóknar með langtíma eft-
irfylgni sýni fram á þessi tengsl
mígrenis með áru við hættuna á
því að deyja úr hjarta- og æðasjúk-
dómum.
Lárus segir þó mikilvægt að
niðurstöðurnar valdi ekki ótta að
óþörfu því áhættan sem sýnt hafi
verið fram á sé í raun lítil miðað við
hefðbundna áhættuþætti. „Þarna er
hins vegar komin enn ein ástæðan
fyrir fólk að fylgjast með þessum
lífsstílsáhættuþáttum,“ segir hann
og vísar meðal annars til reykinga
og kólesterólsöfnunar.
Forsendu rannsóknarinnar segir
Lárus vera hversu vel hafi verið
staðið að rannsókn Hjartaverndar,
en þar var mígreni með og án áru
greint með spurningalista sem þátt-
takendur svöruðu á árunum 1967
til 1991. Þátttakendur voru 18.725
karlar og konur sem fædd voru á
árunum 1907 til 1935. Meðaleftir-
fylgni var 26 ár, en Lárus segir að
í rannsókn sem þessari sé 15 ára
eftirfylgni lágmark.
Í tilkynningu Hjartaverndar
segir að tímalengdin þýði að rann-
sóknin sé meðal umfangsmestu
rannsókna sem gerðar hafi verið.
Hún vakti enda strax heimsathygli
við birtingu í gær. Um miðjan dag
var Lárus þegar búinn að vera í við-
tali við CBS News Radio, auk þess
sem ýmsir fréttamiðlar á netinu
höfðu sett sig í samband við hann.
olikr@frettabladid.is
LÁRUS STEINÞÓR GUÐMUNDSSON Lárus, faraldsfræðingur og doktorsnemi við Háskóla
Íslands, og prófessor Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Rannsóknarstöðvar Hjarta-
verndar, leiddu tímamótarannsókn Hjartaverndar sem birt var í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mígreni tengt meiri
líkum á hjartaáfalli
Íslensk rannsókn um tengsl milli mígrenis með áru og líkinda á því að deyja
úr hjartasjúkdómum vekur heimsathygli. Niðurstöður rannsóknarinnar voru
birtar í gær í British Medical Journal. Byggt er á gögnum Hjartaverndar.
RÁÐSTEFNUR Bílahönnuðurinn, Chris Bangle, verður
aðalfyrirlesari á ráðstefnunni Driving Sustainability
sem haldin verður í Reykjavík dagana 16. til 18. sept-
ember næstkomandi.
Chris stýrði hönnunardeild BMW frá 1992 til 2009
og er talinn einn áhrifamesti bílahönnuður sögunn-
ar. Á ráðstefnunni kynnir hann sýn sína á samgöng-
ur árið 2050.
Fram kemur í tilkynningu að ráðstefnan sé nú hald-
in hér á landi fjórða árið í röð. „Á ráðstefnunni gefst
stjórnendum, áhrifafólki, frumkvöðlum og
áhugamönnum um samgöngur, orkumál og
umhverfismál tækifæri til að tengjast
verkefnum, kynnast nýjungum og
hlýða á heimsþekkta fyrir-
lesara spá í samtímann
og framtíðina. Á síð-
ustu þremur árum
hafa fyrirlesarar og
gestir frá meira en
25 þjóðlöndum sótt
ráðstefnuna í Reykja-
vík,“ segir þar.
Meðal ræðumanna að þessu sinni eru stjórnendur
frá Tokyo Electric Power Company, Toyota Motors
og einnig frá Tesla Motors. „Landsvirkjun, CHAd-
eMO-samtökin og Mitsubishi Heavy Industries munu
taka þátt í umræðum um orkumál og hlutverk orku í
umbreytingu samgangna.“
Ráðstefnan hefst með opnunarávarpi Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, forseta Íslands, fimmtudaginn 16.
september, en fyrsta ráðstefnudaginn verður fjallað
um þróun borgarsamgangna næstu áratugi. Á öðrum
degi ráðstefnunnar verður fjall-
að um orkuskipti í samgöng-
um og þann síðasta verður
fjallað um fjármögnun
nýsköpunarverkefna
sem tengjast umbreyt-
ingu í samgöngum.
- óká
BMW Chris Bangle, sem
heldur fyrirlestur hér á
landi, hannaði meðal ann-
ars þennan BMW.
Alþjóðleg ráðstefna um sjálfbærar samgöngur haldin hér á landi í september:
Þekktur bílahönnuður spáir í framtíðina
SVÍÞJÓÐ, AP Julian Assange, stofn-
andi Wikileaks, á ekki lengur
yfir höfði sér ákærur fyrir nein
kynferðisbrot í Svíþjóð.
Karin Rosande, talsmaður sak-
sóknaraembættisins í Svíþjóð,
segir Assange þó enn grunaðan um
að hafa áreitt konu, en tekur fram
að áreitni telst ekki til kynferðis-
glæpa samkvæmt sænskum lögum.
Undir áreitni getur hins vegar fall-
ið margvísleg hegðun, svo sem
óviðeigandi snerting af einhverju
tagi eða yfirgangur og almennur
ruddaskapur.
Verði hann fundinn sekur af þeirri
ákæru gæti hann átt yfir höfði sér
allt að eins árs fangelsisdóm.
Eva Finne aðalsaksóknari sagði
hins vegar að engin ákæra yrði
lögð fram í máli annarrar konu,
sem sakaði Assange um kynferðis-
glæp. Á föstudag kvað Finne upp
þann úrskurð að engin ákæra yrði
lögð fram vegna nauðgunar, en í
gær kvað hún upp þann úrskurð að
engin ákæra yrði heldur lögð fram
á hendur honum fyrir kynferðisbrot
af öðru tagi gagnvart þeirri konu.
Claes Borgstrom, lögmaður
beggja kvennanna, segir ekk-
ert hæft í ásökunum um að kærur
þeirra séu lagðar fram að undirlagi
bandarískra stjórnvalda, sem eru
ósátt við birtingu viðkvæmra leynd-
armála á vefsíðunni Wikileaks. - gb
Stofnandi Wikileaks á ekki yfir höfði sér ákæru fyrir kynferðisbrot:
Ákæra um áreitni rannsökuð
JULIAN ASSANGE Hefur birt fjölmörg
viðkvæm ríkisleyndarmál á vefsíðunni
Wikileaks. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NÁTTÚRA Ormurinn birkifeti hefur
valdið tjóni á berjalyngi á nokkr-
um stöðum á landinu í sumar, að
því er fram kemur á Skessuhorni.
Töluverðar skemmdir eru af
völdum birkifeta vestur í Dölum.
Skemmdirnar lýsa sér þannig að
heilu lynghlíðarnar verða rauðar
eða rauðbrúnar að lit.
Skordýrasérfræðingar rekja
atferli birkifeta til hlýnandi loft-
lags, en hann hefur látið á sér
kræla hér á landi síðustu sumur,
að því er segir á Skessuhorni.
- kh
Nýjar skordýrategundir:
Birkifeti veldur
tjóni í Dölum
Kvíðir þú sumarlokum?
JÁ 33,7%
NEI 66,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefur þú sagt þig úr Þjóðkirkj-
unni?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN