Fréttablaðið - 26.08.2010, Síða 25
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
SPIRAL-HÖNNUN verður með opna vinnustofu
frá klukkan 13 til 22 í dag í Hafnargötu 2 í Reykjanes-
bæ í tilefni Ljósanætur. Spiral er hönnun Ingunnar
Yngvadóttur og Írisar Jónsdóttur.
„Ég vil vera vel tilhöfð og set á
mig varalit og ilmvatn um leið
og ég vakna,“ segir Agnes Amal-
ía Kristjónsdóttir, söngkona og
danskennari. Kjólinn sem hún
klæðist á myndinni keypti hún
fyrir tónleikana Íslenskar söng-
perlur í Dómkirkjunni á menn-
ingarnótt.
„Ég keypti hann hjá vinkonu
minni Berglindi Sigurðardóttur
hönnuði. Mér líkar vel við fötin
hennar því þau eru rómantísk og
smart og sniðin klæðileg. Ég á
eftir að nota þennan kjól mikið.
Til dæmis við svört há stígvél eða
gullstígvélin mín. Gömul gul kápa
passar líka vel við hann.“
Þegar Agnes er beðin um að lýsa
fatastíl sínum vefst henni ekki
tunga um tönn og segist róman-
tísk, vistvæn og jafnvel ævintýra-
leg í fatavali. „Ég er mjög gjarnan
svartklædd en tjalda þá kannski
bleikum stígvélum, gullskóm eða
litríkum klút við.“
Agnes fullyrðir að engar galla-
buxur finnist í fataskápnum henn-
ar en þar megi rekast á reiðbux-
ur. Hún segist hafa gaman af því
að klæða sig upp á þótt hún kjósi
þægilegan fatnað. „Ég er ekki
mikið fyrir að vera mjög fín og er
yfirleitt komin úr hælunum undir
borði. Það skiptir mig mjög miklu
máli að fötin séu þægileg. Ég kenni
daglega leikfimi, stott pilates og
dans og er því í leikfimifötum alla
daga,“ segir Agnes. Hún bregður
sér þó í síðkjóla í hinni vinnunni
sinni en hún syngur með Kammer-
kór Seltjarnarneskirkju.
„Föt skipta mig máli og hafa
alltaf gert. Vinir og kunningjar
vita af áhuga mínum á fötum og
senda mér reglulega fatapoka frá
sér til að gramsa í og endurnýta
og það kann ég vel að meta. Á
unglingsárunum átti ég til dæmis
síða gamla pelsa, glimmerkjóla
og samkvæmiskápur sem ömmur
vinkvenna minna gáfu mér. Ég
fylgist ekkert sérstaklega með
tískunni í dag og er örugglega
stundum lummó. En mér er ekki
sama í hverju ég er.“
heida@frettabladid.is
Ævintýraleg rómantík
Agnes Amalía Kristjónsdóttir segist ekki fylgjast með tískunni í dag og vera stundum lummó. Vinnu
sinnar vegna klæðir hún sig ýmist í þægileg æfingaföt eða skósíða galakjóla og glimmer.
Kjóll úr smiðju Berglindar Sigurðardóttur sem Agnes keypti sér nýlega og er hæstánægð með. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Opið: má-fö. 12:30 -18:00,
Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp.201
S: 517 7727
www.nora.is - facebook.com/noraisland
Fyrir bústaðinn og heimilið
rómantísk gjafa- og
nytjavara
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
Ný se
nding SAGA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
VALHÖLL/FREYJA
Góð rúm á frábæru verði
Ný sending
Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvali
www.gabor.is
Sérverslun með