Fréttablaðið - 26.08.2010, Qupperneq 30
26. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
● NÝTT JÓGASTÚDÍÓ Jógastúdíó-
ið Hateshwari Mata Yoga Sansthan opn-
aði nýverið að Skúlagötu 32. Aðalkenn-
arinn er Bharat Bhushan sem hefur mikla
reynslu af kennslu í Ashtanga Vinyasi jóga
frá Mysore á Indlandi. Eigandi stúdíósins
er Auður Halldórsdóttir áhugamaður um
Indland og jóga, en lítil verslun með ind-
verskar vörur er í anddyri stúdíósins.
Nánari upplýsingar er að finna á www.
yoga-sansthan.is.
● FLUGELDASÝNING Á JÖKULSÁRLÓNI Ísjakarnir í Jökulsár-
lóni munu lýsast upp í mörgum litum á laugardagskvöldið þegar Björg-
unarfélag Hornafjarðar og ferðaþjónustan við Jökulsárlón standa fyrir
flugeldasýningu.
„Þessi sýning á uppruna að rekja til uppskeruhátíðar starfsfólksins hér
við Jökulsárlón sem vatt upp á sig,“ segir Ágúst Elvarsson hjá ferðaþjón-
ustunni við Jökulsárlón sem lætur sig ekki vanta á flugeldasýninguna
enda segir hann upplifunina óviðjafnanlega. „Þeir sem hafa ekki prófað
verða að gera það, þetta er það flottasta sem maður sér.“
Nokkur undirbúningur er fyrir sýninguna en á laugardaginn fara menn
á gúmmíbáti um lónið og raða 150 friðarkertum á jakana. Um kvöldið er
kveikt á kertunum og síðan skotið upp flugeldum af tveimur bátum milli
þess sem siglt er milli jakanna og kveikt í tertum.
Þetta verður ellefta árið í röð sem flugeldasýningin er haldin en hún
hefst klukkan 23 og stendur í 20 til 30 mínútur. Aðgangseyrir er þúsund
krónur en frítt fyrir tólf ára og yngri. Allur ágóði rennur til Björgunarsveit-
ar Hornafjarðar. - sg
Stórkostlegt sjónarspil bíður þeirra sem halda að Jökulsárlóni á laugardags-
kvöldið. MYND/RUNÓLFUR HAUKSSON
● HAUSTMARKAÐUR Á ÁRBÆJARSAFNI Frítt verður inn á
Árbæjarsafnið sunnudaginn 29. ágúst í tilefni af árlegum haustmarkaði
sem þar verður haldinn. Þangað getur fólk komið með grænmeti, sultur,
handverk eða annað skemmtilegt og selt á markaðnum og kostar ekkert
að vera með. Árbæjarsafn býður upp á aðstöðu
á torginu en fólk verður sjálft að koma
með borð, stóla, tjald eða það
sem hverjum hentar.
Fólk sem hyggur á að selja
muni á markaðnum er vinsam-
lega beðið að senda póst á
minjasafn@reykjavík.is eða
hringja í síma 411 6320.
Rósanýpur eru C-vítamínríkar. Þessi Ört-
räsrós ber blóm og nýpur á sama tíma.
Urtagarður með safni jurta
sem ýmist gegndu hlutverki í
lækningum eða voru nýttar til
næringar á tímabilinu 1760 til
1834 var opnaður nýverið að
Nesi við Seltjörn.
Það verður að teljast áskorun að
setja niður arfa og fífla í garð en
hvort tveggja eru lækningajurt-
ir og eiga því heima í Urtagarðin-
um við Nesstofu á Seltjarnarnesi.
Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir,
safnstjóri Lækningaminjasafns
Íslands, segir garðinn stofnaðan
í minningu þriggja manna sem
tengdu saman ræktun og heilsu-
bót í lífi og starfi: Bjarna Páls-
sonar landlæknis, Hans Georgs
Schierbeck landlæknis og stofn-
anda Garðyrkjufélags Íslands og
Björns Jónssonar lyfsala. „Garður-
inn er sameiginlegt áhugamál og
verk margra en hugmyndin kom
frá Garðyrkjufélagi Íslands sem
er 125 ára á þessu ári. Landlæknis-
embættið er 250 ára og í stað þess
að reisa styttur var ráðist í að búa
til svona garð,“ segir hún.
Nes er einn af fáum stöðum á
höfuðborgarsvæðinu sem hefur
enn sama yfirbragð og fyrir um
250 árum, þegar Bjarni Pálsson,
fyrsti landlæknir Íslands, bjó þar.
Nú hefur verið fyllt inn í þá mynd
með Urtagarðinum sem minnir á
garð Björns Jónssonar lyfsala sem
var með stóran matjurtagarð sunn-
an undir húsinu í Nesi.
Í Urtagarðinum er að finna 130
tegundir plantna, þar af 70 úr ís-
lenskri flóru. Kristín Einarsdótt-
ir, forstöðumaður Lyfjafræði-
safnsins, segir lyfjafræði byggða
á jurtum. „Fyrsta stóra danska op-
inbera skráin um lyf er frá 1760 og
þær plöntur sem ekki eru íslensk-
ar völdum við úr þeirri lyfjaskrá.“
Hún segir nútímafólk gjarnan nota
eina og eina jurt í te en á fyrri
öldum hafi meira verið gert af því
að blanda þeim saman. „Munur-
inn á alþýðunni og þeim sem voru
lærðir var sá að lyfjafræðingarn-
ir höfðu vogir og pressur og önnur
áhöld og um leið og efnafræðiþekk-
ingunni fleygði fram fóru þeir að
finna út hvert virka efnið væri í
hverri plöntu,“ segir Kristín.
Þær stöllur segja garðinn til-
gátugarð og að auðvelt sé að skipta
út tegundum. „Hingað koma vafa-
laust fræðingar með tillögur að
plöntum sem eigi erindi hingað
umfram einhverjar sem eru hér
nú,“ segir Kristín. „Þá er alltaf
möguleiki að verða við óskunum.“
- gun
Til næringar og heilsubótar
Fingurbjargarblómið er innflutt. Það
er eitrað en þó er unnið úr því efni í
milligrammavís sem notað er í lyf við
hjartabilun.
Garðurinn minnir á garð fyrsta lyfjafræðingsins Björns sem ræktaði 20 tegundir matjurta, auk lækningajurta að Nesi á átjándu
öld.
Skarfakálið er sú jurt sem hvað best þótti við skyrbjúg, sjúkdómi sem stafaði af
C-vítamínskorti.
Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir, safnstjóri Lækningaminjasafns Íslands, og Kristín
Einarsdóttir, forstöðumaður Lyfjafræðisafnsins, segja Urtagarðinn vera tilgátugarð.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Frystikistur á frábæru verði
Verð frá aðeins kr. 79.980,- m.vsk.
*Stærðir frá 189L upp í 567L kistur
*Allar kistur eru á hjólum
*Með læsingu á loki
*Niðurfall f. afhrýmingu
*Með hitamæli
Nánari upplýsingar í síma s: 440-1800 & www.kaelitaekni.is