Fréttablaðið - 26.08.2010, Side 42
26 26. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir,afi og langafi
Jón Stefánsson
Hvassaleiti 25
verður jarðsunginn frá Grensáskirkju föstudaginn
27.ágúst kl 13:00
Steinunn D. Sveinsdóttir
Laufey Jónsdóttir Birgir Árnason
Ingileif Jónsdóttir Rudiger Seidenfaden
Sveinn Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Gústafs Gústafssonar,
Stigahlíð 97, Reykjavík.
Halldór Gústafsson
Helgi Gústafsson Guðrún B. Hallbjörnsdóttir
Gústaf Gústafsson
Leifur Gústafsson Fríða Dís Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Agnes Jóhannesdóttir
barnahjúkrunarfræðingur
lést á krabbameinsdeild Landspítalans, mánudaginn
23. ágúst. Útför verður auglýst síðar.
Helena Kristbjörg Hrafnkelsdóttir Valtýr Helgi Diego
Jóhanna Hrafnkelsdóttir Guðbjartur
Þórarinnsson
Svava Snæberg Hrafnkelsdóttir Hulda Snæberg
Hauksdóttir
og barnabörn
Minningarathöfn um móður mína,
Sigrúnu Sveinsson
Balí
fer fram frá dómkirkjunni fimmtudaginn 26. ágúst
kl. 15:00. Þeim sem vilja minnast hennar skal bent á
ABC barnahjálp.
Jón Alexander Mír
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við andlát og útför bróður
míns frænda okkar og vinar,
Eyjólfs Egilssonar,
Hverahlíð 13, Hveragerði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Ási
fyrir frábæra umönnun.
Ættingjar og vinir.
Elskulegur faðir okkar, afi og langafi,
Gísli Jónsson
frá Norðurhjáleigu
Markholti 1, Mosfellsbæ,
lést þriðjudaginn 24. ágúst 2010.
Eygló Gísladóttir Þórunn Gísladóttir
Guðlaug Gísladóttir Eygló Svava Gunnarsdóttir
Gísli Páll Davíðsson Þórey Una Þorsteinsdóttir
Loftur Þór Þórunnarson Sigrún R. Guðlaugardóttir
Grétar Snær Hjartarson
og langafabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og vinur
Steinn Þ. Steinsson
fyrrverandi héraðsdýralæknir, Þverholti
24, Reykjavík
lést þriðjudaginn 24. ágúst sl. á krabbameinsdeild
Landspítalans. Útförin verður frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 1. september kl. 13.00.
Þorsteinn Steinsson Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Finna Birna Steinsson Baldur Hafstað
Friðrik Steinsson
Bryndís Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður og afa.
Jóns Helgasonar
húsasmíðameistara,
Hlíðarvegi 39, Kópavogi.
Þökkum einnig starfsfólki deildar 14 E, Landspítala
við Hringbraut.
Guðríður Þóra Snyder Mark Laws
Viðar Jónsson Inga Brynjólfsdóttir
Helgi Jónsson
Guðrún Katrín Jónsdóttir Páll Breiðfjörð Sigurvinsson
Sólveig Þóra Jónsdóttir Hólmgrímur Rósenbergsson
Katrín Jónsdóttir Sváfnir Hermannsson,
og afabörn
„Mér finnst tilfinningin að verða sextugur frekar góð. Mér
finnst ég allavega ekki orðinn gamall og þreyttur, og vona
að ég sé ekki mjög fúll, en ég stefni á að eldast sem þrosk-
að og yfirvegað gamalmenni,“ segir guðfræðingurinn og
útvarpsmaðurinn Ævar Kjartansson sem vaknaði á sextug-
asta afmælismorgni sínum í torfhýsi sínu á Hólsfjöllum.
„Hér eru æskuslóðirnar, en ég var alinn upp af fóstur-
foreldrum mínum Benedikt Sigurðssyni og Kristínu Axels-
dóttur bændum á Grímsstöðum á Fjöllum. Kristín er móð-
ursystir mín en þær móðir mín höfðu hlutverkaskipti þegar
Kristín tók mig nýfæddan í fóstur. Hér næ ég sambandi við
æsku mína og hugsa mitt ráð,“ segir Ævar og lítur í átt til
Herðubreiðar úr glugga baðstofu sinnar.
„Herðubreið er miðlæg í mínu lífi, enda fjall guðanna
og afla sem ég held að vaki yfir landinu. Mér þykir mikið
mál að ganga vel um landið og dreg nú lærdóm af því sem
ég gerði tvítugur með aukinni visku. Þórbergur sagði ekki
hægt að tala við fólk undir sextugu vegna þess hve það væri
vitlaust. Ég tek það alvarlega og reyni að vera vitur og við-
ræðuhæfur hér eftir,“ segir Ævar og vísar í sprenginguna
í Miðkvísl sem hann tók þátt í tvítugur, en í gær hélt hann
ávarp í tilefni 40 ára afmælis hennar.
„Eins og aðrir sveitamenn var ég farinn burt til náms
á unglingsaldri en taugarnar heim eru sterkar og þessi
háslétta í norðvestri togar. Ég reyni að vera hér eitthvað á
hverju ári og geng stundum til rjúpna, en byrjaði seint og
hitti því illa,“ segir hann og brosir í kampinn.
„Ljúfasti afmælisdagur ævi minnar var sá tíundi þegar
ég fékk leyfi til að keyra Ferguson-traktorinn en þá fannst
mér ég mikils virði. Þá var heyskapur seint á ferðinni og ég
fékk að raka saman heyi á túnum.“
Ævar lauk embættisprófi í guðfræði fyrir fimm árum.
Síðar sóttist hann eftir brauði í Eyjafirði en fékk ekki.
„Mér hefur alltaf þótt hljóma vel að vera sveitaprestur og
segi ekki ef brauðin á Skútustöðum eða Skinnastöðum losna
að ekki væri freistandi að eyða árum af sjötugsaldrinum í
að tala yfir gömlum sveitungum,“ segir hann dreyminn, en
er sáttur við 38 ár í útvarpinu.
„Ég er ánægður með að leggja mitt af mörkum í jafn
mikilvægri stofnun og Ríkisútvarpið er, en Rás 1 er eini
fjölmiðillinn þar sem töluð er íslenska um íslensk málefni.
Ég hef því skemmt mér vel, fundist þetta góður starfsvett-
vangur og kynnst góðu fólki,“ segir Ævar sem ætlar til Kína
með eiginkonu sinni Guðrúnu Kristjánsdóttur myndlistar-
konu í tilefni sextugsafmælis þeirra beggja í ágúst.
„Ég er ákaflega hamingjusamur. Ég á tvö börn og þrjú
barnabörn, en barneignir eru nærtækasti tilgangur lífsins.
Barnalán skiptir mestu í lífshamingju fólks, sem og réttlátt
og gott samfélag til að lifa í.“ thordis@frettabladid.is
ÆVAR KJARTANSSON: SEXTUGUR Í DAG
Loksins orðinn
viðræðuhæfur
SEXTUGUR Á FJÖLLUM Ævar Kjartansson útvarpsmaður eyðir afmælis-
deginum í torfbæ sem hann hlóð með hjálp Ögmundar Jónassonar,
þingmanns, á Hólsfjöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MACAULAY CULKIN ER ÞRÍTUGUR
„Ég skellti mér í menntaskóla,
sem reyndist skynsamleg
ákvörðun þar sem ég hafði átt
mjög lítil samskipti við jafn-
aldra mína sem önnum kafin
kvikmyndastjarna. Ég var því
einmana, átti milljón kunn-
inga en enga vini í raun.“
Bandaríska barnastjarnan
Macaulay Culkin heillaði heims-
byggðina í Home Alone-myndun-
um á tíunda áratugnum.
MERKISATBURÐIR
1896 Suðurlandsskjálfti hinn
fyrri. Fjöldi bæja í Rangár-
vallasýslu hrundi til
grunna.
1929 Vélbáturinn Gotta kemur
til Reykjavíkur með fimm
sauðnautskálfa frá Græn-
landi.
1967 Bítlarnir, Mick Jagger og
Marianne Faithfull fara
saman á fund Maharishi
Mahesh Yoga.
1979 Átta alda afmæli Snorra
Sturlusonar minnst með
Snorrahátíð í Reykholti.
1991 Ísland tekur formlega upp
stjórnmálasamband við
Eistland, Lettland og Lit-
háen.
Keppt var í Reykjavíkurmara-
þoni, alþjóðlegu maraþon-
hlaupi, í fyrsta sinn hér á landi
fyrir 26 árum. Hlauparar tóku
hinu nýja maraþonhlaupi fagn-
andi, en þátttakendur í fyrsta
hlaupinu voru 214. Tíu árum
síðar voru þeir orðnir á fjórða
þúsund og í ár voru þeir vel á
ellefta þúsund.
Reykjavíkurmaraþon er haldið í ágúst á hverju
ári og á sama degi og menningarnótt. Erlendir
hlauparar koma víðs vegar að til að spreyta sig í
íslenskri veðráttu og fögru borgarlandslaginu, og
alltaf bætist við hóp Íslendinga sem reyna sig við
fullt maraþon sem er 42,2 kílómetrar. Einnig er
boðið upp á hálft maraþon, 10
kílómetra hlaup og 3 kílómetra
skemmtiskokk og nú síðustu
ár 1 kílómetra Latabæjar-
hlaup fyrir börn. Í nýliðnu
Reykjavíkurmaraþoni var boðið
upp á boðhlaup en það var
hlaupið á maraþonbrautinni
og því 42,2 kílómetrar eins og
maraþon, en skiptistöðvar eru
eftir 10, 20 og 30 kílómetra hlaup.
Undanfarin ár hefur þátttakendum í Reykja-
víkurmaraþoni gefist kostur á að hlaupa í þágu
góðs málefnis. Í ár tóku 98 góðgerðafélög þátt í
áheitasöfnun og söfnuðust um 30 milljónir.
ÞETTA GERÐIST 26. ÁGÚST 1984
Fyrst keppt í Reykjavíkurmaraþoni