Fréttablaðið - 26.08.2010, Síða 52
36 26. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
„Ég gekk í gegnum helvíti á jörðu.“ Þetta er
meðal þess sem tímaritið People hefur eftir
Elinu Nordegren, fyrrum eiginkonu Tigers
Woods, í viðtali sem það birti í gær. Þetta
er í fyrsta sinn sem Elin tjáir sig á opinber-
um vettvangi um hvað gerðist og hvernig
henni hefur liðið meðan á fjölmiðlafárinu
stóð í kringum ótrygga eiginmanninn.
Skilnaður Tigers og Elinar tók formlega í
gildi á mánudag en samkvæmt honum má
Elin ekki ræða hjónabandið í smáatriðum.
Í viðtalinu kemur fram að Elinu grun-
aði aldrei að maðurinn hennar væri henni
ótrúr. „Síðustu þrjú ár var ég mun meira
heima, sinnti börnunum, var ólétt og í
skóla. Ég hafði ekki hugmynd hvað gerð-
ist og mér fannst ég vera heimskari og
heimskari eftir því sem fleiri leyndarmál
komu upp á yfirborðið,“ segir Elin í við-
talinu. Hún tekur jafnframt fram að hún
hafi aldrei ráðist á Tiger þegar hann lá
slasaður í bíl sínum eftir að hafa keyrt á
brunahana.
Sænska fyrirsætan viðurkennir að það
hafi tekið sinn tíma að taka ákvörðun um
framhaldið. „Að endingu ákvað ég að sýna
börnunum mínum að það væri betra að
vera ein og hamingjusöm en í sambandi þar
sem annar aðilinn treystir ekki hinum.“
Elin segir síðan að hún muni þurfa að fyrir-
gefa og sætta sig við hvað gerðist því það
sé eina leiðin fyrir hana að verða ham-
ingjusama á ný. „Og ég veit að ég á eftir að
ná á þann stað.“
Elin talar um hjónaskilnaðinn
FYRSTA VIÐTALIÐ Elin Nordegren segist
hafa gengið í gegnum helvíti á jörðu eftir
að upp komst um framhjáhald eigin-
manns hennar, Tigers Woods.
Fresturinn til að sækja um að
taka þátt í kvikmyndasmiðju
Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar
í Reykjavík, RIFF, hefur verið
framlengdur til 1. september.
Í smiðjunni hittast verðandi
leikstjórar frá mörgum lönd-
um, ráða ráðum sínum, horfa á
kvikmyndir og læra af reynslu-
boltum úr bransanum.
Smiðjan er hugsuð til stuðn-
ings þeim sem eru að undir-
búa fyrstu mynd sína í fullri
lengd en einnig fólki sem vinn-
ur í bransanum og hefur áhuga
á að gera meira. Í smiðjunni í
ár verður að vanda einvala lið
fagfólks sem tekur þátt, þar
á meðal Jim Jarmusch, Peter
Wintonick, Cameron Bailey og
Valdís Óskarsdóttir. Þátttakend-
um stendur einnig til boða að
keppa um Gulleggið og að kynna
næsta verkefni sitt fyrir hópi
framleiðenda.
Sótt um í smiðju
JIM JARMUSCH Bandaríski leikstjórinn
tekur þátt í kvikmyndasmiðju RIFF.
> SKUGGABALDUR HANDTEKINN
Skuggabaldur fyrirsætunnar Paris
Hilton hefur verið kærður fyrir
innbrot. Hinn 31 árs gamli Nathan
Lee Parada reyndi að brjótast inn
á heimili Hilton 24. ágúst síðast-
liðinn, vopnaður eldhúshnífi, en
öryggiskerfi hótelerfingjans sann-
aði mátt sinn og megin
og lét laganna verði vita.
Parada kemur fyrir dómara í
næsta mánuði.
Fegurðardísin Sylvía Briem
Friðjónsdóttir tekur þátt í
Miss Tourism í Kína eftir
mánuð en það er ein stærsta
fegurðarsamkeppni heims.
Kópavogsmærin Sylvía Briem Frið-
jónsdóttir tekur þátt í fegurðarsam-
keppninni Miss Tourism Queen Of
The Year International sem verður
haldin í Kína 25. september í sautj-
ánda sinn. Þar keppa stelpur frá um
níutíu löndum um titilinn Ungfrú
ferðalangur og telst þetta vera ein
stærsta fegurðarsamkeppni heims.
„Þetta leggst rosalega vel í mig
og ég hlakka ekkert smá til,“ segir
Sylvía Briem, sem er 21 árs. „Ég
er að fara í fyrsta skipti til Kína,
þannig að þetta er mjög spenn-
andi.“
Sylvía lenti í þriðja sæti í Ung-
frú Ísland í fyrra og í öðru sæti í
Ungfrú Reykjavík og fær nú tæki-
færi til að reyna sig utan landstein-
anna. „Ég fékk boð frá manni sem
heitir Peter Hadward sem sér líka
um Miss World og Miss Universe.
Hann bað mig um að koma í þessa
keppni.“
Fegurðardísir úr Ungfrú Ísland
hafa lítið keppt erlendis undanfarin
ár, hvað þá í þessari keppni, og því
er tækifærið gott fyrir Sylvíu. Hún
flýgur út 4. september og verður
því úti í þrjár vikur fram að keppni.
„Við förum fyrst til Peking og síðan
þaðan til Sjanghæ þar sem keppn-
in verður haldin. Svo verðum við
líka í góðgerðarmálum í Malasíu,“
segir hún. Stelpurnar taka einnig
þátt í tískusýningum og verða ein-
hverjar þeirra sýndar á sjónvarps-
stöðinni Fashion TV. „Þetta er pínu
stressandi því ég vissi ekki að þetta
væri svona stór keppni. Það kom
mér á óvart hvað þetta er mikið
dæmi því það er búið að plana hvern
einasta dag.“
Sylvía undirbýr sig nú af krafti
fyrir keppnina undir styrkri leið-
sögn Fannars Karvels, einkaþjálf-
ara hjá World Class. Hún starfar
sem sölumaður hjá Ölgerðinni en
ætlar í Kvikmyndaskóla Íslands
eftir áramót. freyr@frettabladid.is
Undirbýr sig fyrir
ferðalag til Kína
Á LEIÐ TIL KÍNA Sylvía Briem undirbýr sig af krafti fyrir fegurðarsamkeppnina Miss
Tourism Queen Of The Year International. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Skoska söngkonan Susan Boyle segir
það mikinn heiður að fá að syngja
fyrir Benedikt páfa í næsta mánuði.
Páfinn er á leiðinni í opinbera heim-
sókn til Skotlands og Boyle hefur
verið boðið að syngja fyrir hann.
Hún mun syngja lögin I Dreamed a
Dream og How Great Thou Art fyrir
páfann sem mun vafalítið heillast af
frammistöðunni.
„Það er mikill heiður að syngja
fyrir páfann,“ sagði hin 49 ára
Boyle, sem sló í gegn í raunveru-
leikaþættinum Britain´s Got Talent.
„Mig hefur alltaf dreymt um að
syngja fyrir páfann og ég get ekki
lýst því hversu ánægð ég er með að
draumurinn sé að verða að veru-
leika.“
Syngur fyrir páfann
SUSAN BOYLE Segir það mikinn heiður
að fá að syngja fyrir páfann.
A-skautarar Listhlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur stóðu
sig með eindæmum vel á síðasta tímabili og eiga Íslands- og
bikarmeistara í öllum A-flokkum. Þau áttu oft öll efstu sætin.
- vélar
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- sala
- varahlutir
- þjónusta