Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 16
16 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Gefðu oss Guð, meira puð.“ Þannig hljóð-ar brot af þjóðþekktum texta. Þetta var ort á þeim árum þegar „meira puð“ var einna eftirsóknarverðast í augum Íslend- inga. Nú er þrasið orðið puðinu yfirsterk- ara. Þrasgirni Íslendinga er löngu kunn. Árum saman þrösuðu Íslendingar með boðaföllum í sjálfstæðisbaráttunni yfir ríkisráðsákvæðinu, sem hér á landi var kallað „fleygurinn“. Loks komust menn á snoðir um að „fleygurinn“ skipti engu máli. Þá lauk þrasi. Halldór Laxness kvað upp þann dóm, að Íslendingar þrösuðu ávallt um aukaatriði og tittlingaskít. Þegar kæmi að kjarna máls setti menn hljóða. Slíkt þjónar ekki þrasi. Menn þrösuðu um byggingu Búrfellsvikj- unar og álverið í Straumsvík. „Hafnarfjörð- ur verður óbyggilegur vegna barnadauða af völdum mengunar.“ „Það er ekki satt.“ „Jú, víst.“ „Nei!“ „Jú!“ Svo var þrasið frá þjóð- inni tekið. Þjóðin þrasaði vegna EFTA. „Nú verður selt sjálfstæði þjóðarinnar.“ „Nei.“ „Jú.“ „Nei!“ „Jú!“ Svo var þrasið frá þjóðinni tekið. Samningurinn um EES. „Ísland mun nú fyllast af portúgölskum, spænskum og ítölskum lýð sem sest upp á velferð- arkerfið.“ „Nei.“ „Jú, víst.“ „Nei!“ „Jú, víst.“ Svo var þrasið frá þjóðinni tekið. Muna menn byggingu Perlunnar, Ráð- hússins í Tjörninni og Hæstaréttarhússins? Hvílík reiðinnar ósköp sem þjóðin gat þras- að. Svo var þrasið frá þjóðinni tekið. Hví- lík skelfing! Í hálfan annan áratug hafa menn þrasað um hugsanlega aðild að ESB. Einn fullyrðir að um glapræði sé að ræða – ókostirnir séu svona og svona. Annar full- yrðir hið algerlega gagnstæða – kostirnir séu þvert á móti þessir og þessir. Eftir þessu sama spori í sama hring hefur þrasið gengið – hring eftir hring, ár eftir ár. Nú stendur til að gá hvaða kostir gefist. En þá má það ekki. Af hverju ekki? Af því að þá verður þrasið frá þjóðinni tekið. Þá koma landsmenn að kjarna máls. Slíkt á ekki við Íslendinga. En alltaf má þá búa til nýtt þras. Þá geta menn þrasað um hvort nokkuð sé að marka niðurstöður samninga. „Þær niðurstöður er ekkert að marka því þær munu ekki standast fyrir Evrópurétti.“ „Jú, víst.“ „Nei, ekki.“ „Jú.“ „Nei.“ Drottinn minn góður gefðu að þrasið sé ekki frá þjóðinni tekið. Nóg er nú samt, sem dunið hefur yfir þessa þjóð! „Gefðu oss Guð, meira þras.“ Til allrar hamingju fyrir þjóðarsálina eru ekki horfur á að þau ósköp verði að vondir menn taki af oss vélaþras. Það væru jú landráð! Gefðu oss Guð, meira þras! Þjóðmál Sighvatur Björgvinsson forstjóri Þróunar- samvinnu- stofnunar Íslands J ón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur valið þá leið sem óhagstæðust er fyrir neytendur þegar hann ákveður hvernig tollar skuli lagðir á innfluttar landbúnaðar- vörur, eins og fram kom á neytendasíðu Fréttablaðsins í gær. Einu sinni voru nánast engar búvörur fluttar inn, sem voru í samkeppni við innlenda framleiðslu. Með samningi Heimsvið- skiptastofnunarinnar (WTO), sem gekk í gildi 1995, var opnað fyrir innflutning, en íslenzk stjórnvöld leggja á hann gífurlega háa tolla sem gera hann í raun ómögulegan. Samkvæmt samningnum eru stjórnvöld þó skyldug til að flytja inn lítið brot af innanlandsneyzlu búvara á lægri tollum. Þetta litla brot er kallað tollkvóti. Úthlutun tollkvótanna hefur verið deiluefni allt frá upphafi. Í samræmi við þá gömlu reglu að landbúnaðarráðherrar taki ákvarðanir, sem hygla fram- leiðendum en eru í andstöðu við hagsmuni neytenda, var efnt til uppboðs á kvótunum. Sá fékk inn- flutningskvótann (til dæmis tonn af osti) sem bauð hæst. Innflytjandinn átti að sjálfsögðu ekki annan kost en að velta greiðslunni fyrir kvótann (til dæmis þrjú hundruð krónum á kíló) yfir á neytandann og þannig hafa landbúnaðarvörur á „lágu“ tollunum verið gerðar dýrari en nauðsynlegt er. Á tímabili komust stórir framleiðendur innlendra búvara, til dæmis mjólkursamlög og sláturhús, upp með að bjóða í kvóta og tryggja sér hann, en flytja hann svo ekki inn og borga ekki fyrir hann. Þannig féll kvótinn niður og aðrir innflytjendur gátu ekki nýtt sér hann. Fyrir þetta var síðar tekið – en ekki að frumkvæði landbúnaðarráðuneytisins. Upphaflega hugsunin með innflutningskvótunum var að þannig fengi innlendur landbúnaður erlenda samkeppni. Sú samkeppni er að sjálfsögðu merkingarlaus, sérstaklega í landi með eitthvert hæsta búvöruverð í heimi, nema innflutningurinn sé á samkeppnisfæru verði. Jón Bjarnason nýtir sér smugu í WTO-samningunum til að velja verðtoll (sem er reiknaður í prósentum) í stað magntolls (fastrar upphæðar sem leggst á hvert kíló). Þetta var í upphafi hugsað þannig að hægt væri að velja leiðina sem tryggði samkeppni, en líklega hafa menn þá ekki haft hugmyndaflug til að ímynda sér að höfð yrðu slík endaskipti á málinu. Með falli krónunnar varð allur innflutningur miklu dýrari og þannig verða áhrif verðtolls til hækkunar á vörunni enn meiri en ella. Í Fréttablaðinu í gær birtust dæmi, sem sýna að tollur á osti, sem áður var 130 krónur á kíló, hefur hækkað í 2.507 krónur og veldur allt að 3.000 króna hækkun á útsöluverðinu. Ummæli Jóns Bjarnasonar í Ríkisútvarpinu í fyrradag, um að það hafi verið nauðsynlegt að vernda innlenda framleiðslu landbúnaðar- afurða fyrir erlendri samkeppni eftir hrun, sýna hversu staðfastur ráðherrann er í þeirri fyrirætlan sinni að svína á neytendum. Geng- ishrunið veitti innlendri framleiðslu sjálfkrafa aukna vernd fyrir erlendri samkeppni. Stjórnvöld þurftu ekki að bæta um betur. Landbúnaðarráðherrar hafa alltaf starfað í þágu framleiðenda og unnið gegn hagsmunum neytenda. Sumir hafa reynt að breiða yfir það með orðagjálfri. En Jón Bjarnason skammast sín ekki einu sinni fyrir vinnubrögðin. Landbúnaðarráðherra skammast sín ekki einu sinni fyrir að svína á neytendum. Jón finnur smugu Björn les grein Björn Bjarnason, annar ritstjóra Evrópuvaktarinnar, bregst í pistli á síðunni við fimmta hluta greina- flokks Steingríms J. Sigfússonar, sem birtist í Fréttablaðinu í gær. Greinina hefur Björn þaullesið, vitnar í hana þvers og kruss og tætir hana í sig eins og hans er siður, einkum þann hluta hennar sem snýr að Evrópu- sambandinu og aðildarumsókn Íslands. Valið og hafnað Athygli vekur hins vegar að Björn bregst í engu við grein Þóris Stephensen, þar sem sér- staklega er vikið að honum og meintum sinnaskiptum hans í garð Evrópusambandsins í löngu og ítar- legu máli. Björn hefur kannski ekki orðið var við greinina, sem þó var beint við hliðina á grein Steingríms í blaði gærdagsins. Hann hefur líklega lesið Steingrím í Viðskiptablaðinu. Bandalag Bjarnasona Jón Bjarnason hefur málað sig út í horn í ríkisstjórninni með ummælum sínum en hann getur huggað sig við það að hann á bandamann í Birni, sem á ekki orð yfir aðför Samfylkingarinnar að sjávarútvegs- og landbún- aðarráð- herranum. Björn gagnrýnir í öðrum pistli á vef Evrópuvaktarinnar ályktun Ungra jafnaðarmanna, þar sem Jón var hvattur til afsagnar, og líkir henni við það þegar einræðisherrann Maó formaður gerði unga rauðliða út af örkinni fyrir hálfri öld „til að úthrópa þá, sem hann vildi, að hyrfu af vettvangi. Beittu rauðlið- arnir niðurlægjandi aðferðum gegn fórnarlömbunum og tóku sum þeirra af lífi í þágu málstaðarins,“ skrifar Björn. Á tíma Björns í ríkisstjórn hurfu fjölmargir ráðherrar af þeim vettvangi. Allir eru þeir enn á lífi. Aftökulíking Björns er því kannski fullsterk. stigur@frettabladid.is Fást í heilsubúðum, matvöruverslunum og völdum N1 stöðvum Lífrænir ávaxtasafar úr ferskum ávöxtum án aukefna, viðbætts sykurs og rotvarnarefna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.