Fréttablaðið - 27.08.2010, Page 18

Fréttablaðið - 27.08.2010, Page 18
18 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR Fjármálaráðherra hefur birt fjölda blaða-greina til að gleðja okkur landsmenn og freista þess að sannfæra okkur um mikinn árangur af störfum núverandi ríkisstjórnar. Ástæða er til að gleðjast með ráðherranum yfir því sem jákvætt er eins og þeirri stað- reynd að vextir hafa lækkað verulega, krón- an hefur styrkst og hafnar eru viðræður við ráðherraráð Evrópusambandsins um aðild Íslands. Nefnt er að atvinnuleysið er ekki eins mikið og svartsýnustu spár gerðu ráð fyrir. Það gleður ekki nægilega. Á meðan meira en 13 þúsund manns eru án atvinnu yfir hábjargræðistímann að sumri er ekki ástæða til að gleðjast. Þá má ekki gleyma þeim þús- undum sem hafa horfið af vinnumarkaði og flutt úr landi. Þar er bæði átt við Íslend- inga sem hafa haldið til nágrannalandanna í atvinnuleit og einnig hefur brotthvarf útlend- inga verið umtalsvert. Þá má ekki gleyma því að við þurfum að skapa um tvö þúsund ný störf hér á landi á ári næstu tíu árin og það gerist ekki af sjálfu sér. Því er grátlegt að horfa upp á ítrekaðar tafir og seinkanir vegna stórra fjárfestinga sem skapað gætu þúsundir starfa. Þá hafa ráðamenn fagnað því sérstaklega „að botninum sé náð“. Vissulega eru Íslend- ingar nú á botninum. En er það eftirsóknar- vert? Er líklegt að við séum eitthvað á leið af botninum með núverandi atvinnustefnu, skattastefnu og fjárfestingarstefnu stjórn- valda? Svarið við því er nei. Því verður ekki trúað að botninn sé talinn áhugaverður áfangastaður til langframa. Stundum er haft á orði að hver erlend-ur ferðamaður skilji að jafnaði 100.000 krónur eftir sig eða að hann jafngildi einu þorsktonni úr sjó. Fleiri ferðamenn eru velkomnir þó að einhvers staðar séu til þolmörk samfélags og náttúru. Geri mætti ráð fyrir að samfélagið legði áherslu á að styðja við nýsköpun, rannsóknir og þróun- arstarf í geiranum. En þegar að er gáð fer margfalt minna fyrir slíku en stuðningi við hefðbundinn iðnað og alls kyns fram- leiðslu. Skilningi á mikilvægi menningar og ferðaþjónustu í efnahagslífinu er ábóta- vant. Það er eins og von um skjótfenginn ábata og áhersla á gömlu einhæfnina stýri enn mestu þegar verið er að skipuleggja opinbera peningaeyðslu. Eflaust hjálpar hálf steinrunnið viðhorf okkar sjálfra, almenningsins, heilmikið til. Töluvert hefur verið um nýsköpun í ferðaþjónustu en mest af því er einkaframtak, hugsjóna- starf eða verk hópa, skóla og smárra sveit- arfélaga. Auðvitað er það gleðilegt og merki um framtakssemi og hugmyndaauðgi. Þannig hafa orðið umbætur í matarmenningu og veitingarekstri utan Reykjavíkur þar sem lengst af var varla hægt að fá keyptan for- vitnilegan mat eða máltíð, unna af metn- aði. Undanfarin ár hafa allmargir aðilar boðið fram tilbúinn mat úr héraði, tekið upp fjölbreytta matseld, veitingahús bind- ast samtökum um grunnstefnu, unnið er úr rannsóknum á viðhorfum ferðafólks og fólk eins og bakhjarlar Friðriks V. á Akur- eyri virkjað til dáða. Dæmi um þetta eru Matarkistan Skagafjörður, vinna ferða- málasérfræðinga við Hólaskóla og staðir á borð við Lónkot norðan Hofsóss. Þar eru bornar fram fyrsta flokks veitingar í anda „slow-food“-stefnu sem margir erlendir gestir þekkja og sækjast eftir. Fleira þarf þó til að auðga ferðaþjón- ustuna en matseld. Til dæmis vantar mun meira af nýrri þjónustu á veturna til að laða ferðafólk til landsins. Eins er með listir og hönnun. Listasöfn eru opin á sumrin, tónleikahátíðir eða hönnunar- sýningar eru nokkrar og bókmenntavið- burðir einhverjir svo dæmi séu nefnd. En þegar betur er að gáð kemur í ljós að heilmikið vantar upp á að erlendur gest- ur í 5-15 daga ferð geti kynnt sér grunn- inn í þessum geirum á aðgengilegan hátt, á sínu áhugasviði, óháð ferðatímabili. Til þess þarf að útbúa efni eða sýningar sér- staklega til viðbótar við allt annað sem á döfinni er, einkum í Reykjavík sem oftast er upphafs- eða endastöð ferðalags. Hér á ég við t.d. árlegar sýningar á þverskurði íslenskrar myndlistar og hönnunar með fræðslu á nokkrum tungumálum, fyrir- lestra um bókmenntir og kvikmyndagerð með dæmum, um arkitektúr og aðra hönn- un og um tónlistarsöguna. Þjóðmenning- arhúsið, Harpa og húsnæði Þjóðleikhúss- ins henta vel, sér í lagi á sumrin. Sumt af þessu geta opinberir aðilar skipulagt en annað er á hendi einkaaðila sem ef til vill þurfa stuðning meðan verið er að vinna úr hefðum sess, í höfuðborginni og víðar. Í tónlistinni er enn fremur rúm fyrir fjöl- breyttara framboð tónleika fyrir ferða- menn; allt frá kammermúskík til rokks og skyldrar tónlistar. Slíkt er að finna í flest- um borgum heims en þarf að kynna mjög vel því margt er í boði til afþreyingar á annatímum í ferðaþjónustunni. Þar gæti bætt skipulag kynninga og stuðningur borgar- og bæjarstjórna komið sér vel. Í sumar gekkst Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari fyrir tónleikaröð sem var fyrst og fremst ætluð erlendum gestum. Á 66 tónleikum í húsnæði Söngskóla Sig- urðar Demetz á Grandagarði í Reykjavík kynntu nærri tveir tugir söngvara og und- irleikara fjölbreytt sönglög. Efnisskrá var breytileg og vel vönduð, líkt og flutning- urinn sjálfur og af nokkrum dæmum um viðbrögð líkaði tónleikagestunum fram- takið afar vel. Í ráði er að halda starfinu áfram og ætti það að vera hvatning til að opna aðra glugga inn í íslenska menningu og listir. Til dæmis gæti Óperan og Sin- fóníuhljómsveitin notað sér aðgengi að fjölda erlendra ferðamanna með tónleik- um og áður uppteknu efni til að hvetja áhugafólk um slíka músík til að heim- sækja landið á veturna þegar vertíðin er í hámarki. Nýsköpun í ferðaþjónustu Haustin eru heillandi tími. Skólarnir eru að hefja störf að nýju eftir sólríkt sumar. Eftirvænting ríkir meðal skólabarn- anna – augnagotur og umhugsun um hvað veturinn muni bera í skauti sér. Það er ekki laust við að foreldrarnir fái líka fiðring í magann, kannski af gömlum vana. Öll viljum við að börnum okkar líði vel í skólanum og námsárangur þeirra sé góður. Rannsóknir sýna að þátttaka foreldra í skólastarfi er áhrifamesti þátturinn þegar kemur að líðan og árangri nemenda. En hvernig tökum við þátt? Sumum for- eldrum finnst námsefnið framandi og treysta sér ekki til að aðstoða barnið við heimanám. Það hefur sýnt sig að það er ekki endilega heimanámið sem slíkt sem hefur mest áhrif á námsárangur heldur áhugi for- eldra á námsefninu. Mikilvægt er að vera með jákvæðar væntingar og viðhorf til skólastarfsins. Ef við sýnum námi barnsins áhuga og spjöllum um það erum við á réttri leið. Foreldrar eiga ekki að hika við að hafa samband við umsjónarkennara barns síns ef þeim finnst eitthvað óljóst. Þátttaka í félagsstarfi barnanna er ekki síður mikilvæg. Með því að taka þátt í við- burðum á vegum skólans, foreldrafélags eða bekkjar styrkjum við tengslin við skólann, skólafélaga barnanna okkar og aðra for- eldra. Að vera bekkjarfulltrúi eða að taka sæti í stjórn foreldrafélags er skemmtileg upplifun og frábært tækifæri til að kynn- ast umhverfi barnanna enn betur. Með því að taka þátt í skólastarfi eru foreldrar ekki einungis að fá aukna innsýn í skólastarfið heldur einnig að hafa bein jákvæð áhrif á sín eigin börn. Foreldrar í skólabyrjun Í greinaflokki þessum undir heit-inu „Landið tekur að rísa” hefur verið fjallað um aðdraganda og orsakir hrunsins sem hér varð, aðgerðir ríkisstjórnarinnar því tengdu, árangur aðgerðanna, hin ærnu verkefni framundan og stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Ég tel mig hafa fært fyrir því traust og tölfræðilega studd rök að það gríðarmikla verkefni sem núver- andi ríkisstjórn fékk í fangið er á góðri leið með að takast. Við erum á réttri leið þó heilmiklar brekkur séu eftir. Og þá að framtíðinni og þeirri staðreynd að tækifærin sem landið hefur til að endurreisa sig og skila okkur á ný lífskjörum eins og best þekkjast í heiminum eru ótelj- andi. Ríkidæmi auðlindanna Þó mikill styr hafi iðulega staðið um nýtingu og eignarhald á auðlind- um landsins breytir það ekki þeirri staðreynd að fá dæmi þekkjast í veröldinni um 320 þúsund manna þjóð sem fengið hefur til búsetu og varðveislu land jafn ríkulega búið auðlindum. Íslensk efnahagslög- saga er gríðarstór með gjöfulustu fiskimiðum Atlantshafsins og land- ið er stórbrotið hlaðið náttúruperl- um með mikla framtíðarmöguleika til búskapar og ferðamennsku. Við eigum ríkulegan orkuforða í vatns- afli og jarðhita sem býður upp á ein- stæða möguleika til þróunar sjálf- bærs orkubúskapar. Hér er gnótt ferskvatns og lega landsins skap- ar fjölmörg tækifæri þegar sjón- ir beinast í auknum mæli að norð- urslóðum. Við erum lýðfræðilega ung og vel menntuð þjóð í nýupp- byggðu þróuðu samfélagi sem býr að sterkum innviðum. Allt eru þetta auðlindir sem ásamt öðru gera það að verkum að engin ástæða er til að kvíða framtíðinni á Íslandi. Sjávarútvegur Eftir hrun hefur sjávarútvegurinn tryggilega sannað stöðu sína sem mikilvægasta undirstöðugrein þjóð- arbúsins. Á árum útrásarvíkinga þótti fremur lítið til sjávarútvegs- ins koma en nú er öldin önnur. Tölur um aflaverðmæti fyrir árið 2009 liggja fyrir og endaði það í rúmum 115 milljörðum króna, þrátt fyrir ýmis áföll eins og sýkingu í síld og hálfgerðan loðnubrest. Veiði og vinnsla á makríl hefur orðið mikil búbót en aflaverðmæti makrílsins var vel á fimmta milljarð árið 2009. Hjálpaði það til við að mæta áföll- um í öðrum stofnum. Í ár hafa um 53% makrílaflans farið til manneld- isvinnslu í stað 20% í fyrra og heild- arverðmæti stefnir vel á annan tug milljarða. Landbúnaður Íslenskur landbúnaður hefur upp á að bjóða einstaka gæðavöru. Á árinu 2009 varð veruleg aukn- ing á útflutningi landbúnaðaraf- urða en flutt var út fyrir vel á átt- unda milljarð. Vaxandi eftirspurn og hagstæð gengisskráning skýra þennan vöxt. Landbúnaðurinn er útflutningsgrein í mikilli sókn sem skilar miklum hreinum gjaldeyr- istekjum. Vatnsútflutningur hefur einnig verið að sækja í sig veðr- ið og margir telja að vatnið verði brátt okkar mikilvægasta auðlind, okkar olía. Orkan Í vatnsafli og jarðhita og öðrum hreinum náttúrulegum orkugjöf- um eins og vindi og sjávarföllum eiga Íslendingar varanlegar auð- lindir. Svo fremi sem við semjum ekki af okkur geta þær á komandi áratugum skilað okkur milljarða- tuga auknum ávinningi. Ekki með því að virkja allt sem eftir er til ein- hæfrar orkufrekrar stóriðju. Þvert á móti með því að sækja aukinn arð gegnum endurnýjun samninga til framleiðslu sem er til staðar. Með því að beina sjónum að minni og meðalstórum kaupendum sem að jafnaði greiða hærra verð en fæst í risaheildsölusamningunum. Sjálf- bær þróun okkar eigin orkubúskap- ar á þó að vera í öndvegi og gagn- vart öllum nýtingarhugmyndum verður að setja þann fortakslausa fyrirvara að umhverfisáhrif séu í lágmarki, nýting ekki ágeng og ekki sé hróflað við þeim vatnasvið- um og háhitasvæðum sem rétt er að vernda. Tryggja þarf að orku- auðlindir verði í samfélagslegri eigu og að rentan af þeim renni til þjóðarinnar sjálfrar. Orkufyrir- tækin þurfa að einbeita sér að því að gera styttri orkusölusamninga og við fleiri og fjölbreyttari aðila. Orkuverð í heiminum er á sífelldri uppleið og fátt bendir til annars en sú þróun haldi áfram. Gagnaver, ylrækt, kísilflöguvinnsla, koltrefja- vinnsla og álþynnuframleiðsla eru allt dæmi um starfsemi sem krefst hóflegrar orku og skilar mörgum störfum Lífeyrissjóðir Íslendingar eiga eitt best uppbyggða og öflugasta lífeyrissjóðakerfi í heiminum. Eignir lífeyrissjóðanna á hvert mannsbarn eru taldar full- komið ígildi þess sem Norðmenn eiga í sínum olíusjóði. Í árslok 2009 var hrein eign lífeyrissjóðanna 119% af VLF. Ísland, Holland og Sviss skara fram úr í þessum efnum með hreina eign lífeyrissjóða uppá um 120–130% af VLF. Til saman- burðar eiga Grikkir 0%. Miklir erf- iðleikar bíða margra annarra þjóða sem ekki eiga uppbyggðan lífeyris- sparnað og þurfa auk þess að takast á við breyttra aldurssamsetningu. Ferðaþjónusta og flugrekstur Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem vaxið hefur mest undanfarna áratugi, skilar þjóðarbúinu gífur- lega miklum hreinum gjaldeyris- tekjum (svipuðum brúttótekjum og stóriðjan en mun meiri nettó- tekjum) og dreifir afrakstri sínum mjög víða um samfélagið. Gosið í Eyjafjallajökli minnti okkur á mik- ilvægi ferðaþjónustunnar. Með vel heppnuðu sameiginlegu markaðs- átaki tókst að snúa tímabundinni vörn í sókn á nýjan leik og margir telja möguleika Íslands nú meiri en nokkru sinni á sviði ferðaþjónustu. Flugrekstur hefur lengi verið hlut- fallslega stór í íslensku hagkerfi. Ánægjulegt er að sjá að öll íslensku flugfélögin eru nú að auka umsvif sín. Verði allt áfallalaust segir und- irrituðum svo hugur að árið 2011 verði metár í íslenskum flugrekstri og ferðaþjónustu. Skýr menntastefna til framtíðar Á Íslandi er öflugt menntakerfi í anda félagshyggju. Hátt mennt- unarstig þjóðarinnar og aðgangur allra að góðri grunnmenntun leggja sterkan grunn að uppbyggingu og endurmótun samfélagsins. Við stöndum framarlega á heimsvísu í rannsóknum og kennslu á sviði, jarðfræði og jarðhita, sjávarútvegs og fleiri greina. Hugbúnaðargeirinn íslenski hefur vakið athygli víða um heim og íslenskt hugvit sækir fram. Tækni- og þekkingargreinar eru í sókn. Ríkisstjórnin hefur einsett sér að standa þétt að baki menntakerfinu og ný og skýr menntastefna hefur verið mörkuð þar sem lögð er meiri áhersla á gagnrýna hugsun, lýð- ræði, jafnrétti, sjálfbærni og skap- andi starf en áður hefur verið gert. Hér verður látið staðar numið þó nægir séu möguleikarnir og tæki- færin til að reifa. Ekki er tilviljun að endað er á menntamálum, þar leggjum við grunninn. Land tækifæranna með bjarta framtíð En hvernig samfélag viljum við svo í raun og veru byggja upp úr rúst- um efnahagsáfallsins fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir? Hvaða gildi viljum við leggja til grund- vallar þegar við endurmótum sam- félagsgerðina, hvernig á sjálfsmynd okkar að vera? Eitt er skýrt. Ekk- ert okkar vill sjá hliðstæða atburði og þá sem gerðust hér haustið 2008 endurtaka sig. Ef einhverjir sakna tíðarandans frá 2007 er undirritað- ur í öllu falli ekki þeirra á meðal. Skiljum græðgisvæðinguna, óhóf- ið og hrokafullar hugmyndir um okkur sjálf og ímyndaða yfirburði okkar eftir á öskuhaugum sögunn- ar. Það er manneskjulegt, heið- arlegt og hófsamlegt velferðar- samfélag sem við viljum, opið og lýðræðislegt, byggt á valddreifingu og góðri sátt við náttúruna og aðra menn. Þangað viljum við stefna og Landið er að rísa. Landið tekur að rísa! Þjóðmál Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra Land tækifæranna Grein 6 Er botninn heppilegur áfangastaður? Efnahagsmál Helgi Magnússon formaður Samtaka iðnaðarins Menning Ari Trausti Guðmundsson jarðvísindamaður og rithöfundur Menntun Guðrún Valdimarsdóttir formaður SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.