Fréttablaðið - 27.08.2010, Side 23
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
TÖÐUGJÖLD verða í Viðey á sunnudaginn. Á töðu-
gjöldunum verður meðal annars grænmetismarkaður
með nýuppteknum rófum, kartöflum, káli og alls kyns
góðgæti.
„Ég gerði sólberjasalat og berjapæ
í eftirmat,“ segir Sigríður Melrós
Ólafsdóttir, myndlistarmaður og
sýningastjóri. „Það er berjatím-
inn núna og ég borða svona salat á
hverjum degi. Reyndar ekki allt-
af með sólberjum, það er misjafnt
hvað fer út í það. Döðlur eru svaka-
lega góðar.“
Sigríður ræktar salatið í garðin-
um sínum og segist taka lúku af því
með sér í vinnuna á hverjum degi.
Í garði hennar má finna auk sal-
atsins sólber, hindber, jarðarber,
kryddjurtir og piparmyntu. „Ég er
mikil salatkona á sumrin. Þegar ég
er búin að eiga svona ferskt salat
úti í garði þá langar mig ekkert í
pokasalat fyrr en í janúar.“
Sigríður er einn skipuleggj-
enda götumarkaðar í Laugardal
sem haldinn verður á Sunnutorgi
á morgun. „Þetta er í níunda sinn
sem við höldum markað í hverf-
inu en hann hefur flakkað á milli
staða. Við erum alltaf að reyna
að finna hinn fullkomna stað,“
Salat á hverjum sumardegi
Sigríður Melrós Ólafsdóttir tekur lúku af salati með sér í vinnuna á hverjum degi. Salatið ræktar hún í
garðinum í Langholtshverfinu en í sama garði má meðal annars finna sólber, hindber og piparmyntu.
Sigríður Melrós Ólafsdóttir segist vera mikil salatkona á sumrin þegar hún ræktar sitt eigið salat. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ein skál blandað blaðsalat
3-4 msk. fetaostur í kryddlegi
2-3 msk. balsamik-síróp
2-3 msk. ristuð graskersfræ
Sólber
Skolið salatið og þurrkið og setjið
í skál ásamt öðru innihaldi. Nauð-
synlegt er að setja vel af olíu með,
til dæmis úr fetaostkrukkunni eða
eftirlætis ólívuolíuna.
Upplagt er að skreyta
með fallegu blómi.
Æt blóm eru til
dæmis morgunfrú,
skjaldflétta, stjúpur
og rósir.
Berjapæ
100 g smjör
100 g sykur
250 g hveiti
Hindber, bláber og jarðarber
50 g súkkulaðidropar
Setjið botnfylli af berjum í eldfast
mót. Dreifið súkkulaðibitum yfir.
Setjið smjör, hveiti og sykur í
skál og myljið saman með
höndunum og dreifið
yfir berin í eldfasta
mótinu.
Bakið í tíu til fimmtán
mínútur við 180
gráður.
SÓLBERJASALAT ÚR GARÐINUM AÐ HÆTTI SIGRÍÐAR
og berjapæ FYRIR 4
útskýrir Sigríður og bætir
við að markaðurinn sé vinsælli
en áður. Markaðurinn stendur frá
klukkan ellefu til þrjú og þar má
meðal annars finna grænmeti,
silung og sultur ásamt hefðbundnu
kompudóti og handverki.
martaf@frettabladid.is
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
4ra rétta
Góð tækifæ
risgjöf!
Kryddlegin bleikja
með rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósu
Humarsúpa
rjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum
Fiskur dagsins
það ferskasta hverju sinni; útfærður
af matreiðslumönnum Perlunnar
*** eða / Or ***
Lambatvenna
með steinseljurótarmauki, aspas, rófu,
soðkartöflu og basil-myntu gljáa
Kókoshnetu Tapioca
með steiktu mangói og lychee sorbet
Verð aðeins 7.290 kr.
tilboðsseðill
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…