Fréttablaðið - 27.08.2010, Page 30
2 föstudagur 27. ágúst
núna
✽ hláturinn lengir lífið
þetta
HELST
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Anton Brink
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir
sigridurh@365.is sími 512 5432 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Á PALLI Í SYDNEY Tískuvikan í
Sidney í Ástralíu var haldin í síðustu
viku. Þar sýndi meðal annars þessi
fagra fyrirsæta kjól úr smiðju Fern-
andos Frison.
MYND/GETTY IMAGES
Selja góssið sitt
Það er alltaf gaman að líta við í
Kolaportinu og freista þess að gera
góð kaup. Líkurnar á því gætu
verið töluverðar á sunnudaginn, því
þá ætlar smekkparið Hilda Gunn-
arsdóttir fatahönnuður og Snorri
Helgason tónlistarmaður að skella
þar upp bási. Þau eru að flytja til
London í byrjun næsta mánaðar
og ætla að selja því sem næst allar
eigur sínar í Kolaport-
inu. Meðal þess
sem þau ætla
að losa sig við er
fatnaður, geisla-
diskar, bækur og
alls konar gúmmelaði
á lágu verði.
HANNA BJÖRK VALSDÓTTIR FRAMLEIÐANDI
Ég var að koma úr tökuferð við Mývatn þar sem við erum að gera
heimildarmynd um Laxárdeiluna, þannig að helgin verður róleg í bænum.
Ég ætla að drekka latte í 101 og pirra mig á Magma Energy og HS Orku.
Á laugardagskvöld fer ég svo á Faktorý og sé Formann Dagsbrúnar á
tónleikum.
www.hjahrafnhildi.is • Sími 581 2141
Vorum að
opna fulla
búð af
glæsilegri
haustvöru
Í allt sumar hafa tónleikar verið haldnir reglulega í versluninni
og menningarmiðstöðinni Havarí
í Austurstræti 6. Þeirri seríu er nú
að ljúka og er það nýbylgjusveitin
Kimono sem ætlar að kveðja sum-
arið og taka á móti haustinu með
gestum Havarís á morgun. Það
verður standandi veisla frá klukk-
an 2, þegar staðarhaldarinn Svav-
ar Pétur Eysteinsson kveikir upp í
Skakkakrepes-pönnu sinni og beit-
ir henni við að gleðja bragðlauka
gesta. Klukkan tvö kemur Hugleikur
Dagsson fram og stjórnar leiknum
„Hver er maðurinn“ en samnefnd
bók kom út á vegum bókaforlagsins
Ókei bækur, í sumar. Klukkan fjögur
stígur svo Kimono á svið.
Í fréttatilkynningu frá Havar-
íi er tekið fram að þótt formlegri
tónleikaröð sé að ljúka muni Hav-
arí halda áfram að bjóða upp á lif-
andi tónlistarflutning og alls konar
menningarlegt góðgæti, um aldir
alda. - hhs
Sumarslútt hjá Havaríi á laugardaginn:
Kimono og Crepes
Hljómsveitin Kimono Fagna komu haustsins með gestum og gangandi í Havaríi á
laugardaginn. MYND/VALDÍS THOR
V erkin á þessari sýningu gefa manni öll skemmtilega sýn
á hlutina. Þetta er ekki endilega
svona haha-húmor. Frekar svo-
leiðis að maður flissar eða hlær
inni í sér,“ segir Ilmur Stef-
ánsdóttir myndlistarkona.
Hún er á meðal nítján ís-
lenskra listamanna úr öllum
áttum og á ólíkum aldri sem
eiga verk á sýningunni Að elta
fólk og drekka mjólk sem opnar
í Hafnarborg í Hafnarfirði í dag.
Heitið dregur nafn sitt af ljós-
myndaverki Sigurðar Guðmunds-
sonar, Ljóð (að elta fólk og drekka
mjólk) frá árinu 1972.
Öll verkin á sýningunni eiga
það sameiginlegt að vera á einn
eða annan hátt tengd húmor.
„Eins og myndlist svo oft gerir
endurspegla verkin á þessari sýn-
ingu það sem er að gerast í kring-
um okkur í samfélaginu. En hér
eiga þeir það allir sameiginlegt
að gera það með gleraugum gleð-
innar eða ákveðinni kaldhæðni,“
segir Ilmur.
Sjálf sýnir hún vídeóverk-
ið Playtime en í því sést hún
meðal annars sauma á klukku-
spil, spila á sellóstrauborð með
straujárni og spila á blokkflautu
með hárþurrku. Verkið vann hún
með Davíð Þór Jónssyni tónlistar-
manni.
Meðal annarra sem eiga verk á
sýningunni má nefna Gjörninga-
klúbbinn, sem sýnir myndbands-
verkið Dynasty, og Ásmund Ás-
mundsson, sem ætlar að afhjúpa
nýtt útilistaverk við opnun sýn-
ingarinnar. Magnús Pálsson,
Steingrímur Eyfjörð og Snorri
Ásmundsson eru svo einungis
nokkrir af þeim mörgu listamönn-
um til viðbótar sem eiga verk þar.
Dagskrá sýningarinnar í heild má
sjá á vefsíðu Hafnarborgar, www.
hafnarborg.is.
Sýningin opnar í Hafnarborg í
dag klukkan 20.00.
- hhs
Listasýningin Að elta fólk og drekka mjólk opnuð í Hafnarborg í kvöld en þar verður húmor í brennidepli:
HLEGIÐ INNI Í SÉR
Playtime Eins og með aðra listamenn sem koma að sýningunni Að elta fólk og drekka mjólk einkennast verk Ilmar Stefánsdóttur oft
af húmor og gleði. MYND/ILMUR STEFÁNSDÓTTIR
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR