Fréttablaðið - 27.08.2010, Side 32
4 föstudagur 27. ágúst
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n
Þrjú systkin, þau
Pálmar, Smári
og Fríða Dís
Guðmundsbörn,
skipa kjarna Klassart
frá Sandgerði, en
lag þeirra um Gamla
grafreitinn er einn
stærsti sumarsmellurinn
í ár. Hljómsveitin sendi
nýlega frá sér aðra
breiðskífu sína, Bréf frá
París.
Viðtal: Kjartan Guðmundsson
Myndir: Anton Brink
L
agið kom út í byrjun
sumars og hefur notið
talsverðra vinsælda,
en í sannleika sagt
hélt ég að tími þess
væri liðinn. Svo skaust það óvænt
aftur upp í annað sætið í vikunni
og nú er bara að vona að það verði
á toppnum næst. Óneitanlega
væri gaman að eiga vinsælasta lag
landsins þegar Sandgerðisdagar,
uppáhaldshátíðin okkar, ná há-
punkti sínum núna um helg-
ina,“ segir Smári Guðmundsson,
sem einnig gengur undir nafninu
Smári klári, en hann er gítarleik-
ari hljómsveitarinnar Klassart frá
Sandgerði.
Margir íslenskir útvarpshlust-
endur ættu að vera orðnir vel
kunnugir lagi sveitarinnar, Gamli
grafreiturinn, sem hefur verið eitt
vinsælasta lagið í sumar og situr
sem stendur í öðru sæti vinsælda-
lista Rásar 2 og á Tónlist.is.
GEIRMUNDUR HRINGDI
Pálmar Guðmundsson, bassaleik-
ari Klassart, segir líklega skýringu
á vinsældum Gamla grafreitsins þá
að lagið virki betur og betur við ít-
rekaða hlustun. „Ég gæti líka trúað
því að margir finni sig vel í texta
lagsins, og þá sérstaklega smábæj-
arfólk sem flust hefur á mölina,“
segir hann, en í laginu er sung-
ið um gamla bæinn sem er sögu-
manni afar kær þótt hann geti
kæft og svæft og þar búi forvitið,
en um leið velmeinandi lið, svo
vitnað sé beint í textann. „Lagið er
mjög raunsær lofsöngur. Svona er
þetta bara,“ bætir Pálmar við.
Stofnendur Klassart eru upp-
runalega frá Sandgerði, þótt ekk-
ert þeirra búi raunar lengur þar,
og því liggur beinast við að spyrja
hvort Gamli grafreiturinn sé í raun
dulnefni fyrir æskuslóðirnar.
„Bragi Valdimar Skúlason Baggal-
útur samdi textann svo þú verður
eiginlega að spyrja hann að því,“
segir Fríða Dís Guðmundsdóttir
söngkona og hlær, „en margir hafa
velt þessu fyrir sér og það er ekk-
ert skrýtið.“
Smári tekur í sama streng og
bætir við að svona vel sungið lag
hljóti á endanum að ná eyrum
hlustenda, en Sigurður Guðmunds-
son úr hljómsveitinni Hjálm-
um syngur lagið ásamt Fríðu Dís.
„Mér fannst við fullkomlega vera
búin að meika það þegar Pálm-
ar sagði mér að Geirmundur Val-
týsson hefði hringt í sig og beðið
um textann að laginu til að flytja á
tónleikum. Þá hugsaði ég með mér
að þetta væri komið,“ segir Smári
og systkinin skella upp úr.
LITLA SYSTIR LEYNIVOPNIÐ
Klassart er óvenjuleg hljómsveit að
því leytinu til að kjarna sveitarinn-
ar skipa ofannefnd systkin, Pálm-
ar, Smári og Fríða, en ellefu ár eru
á milli þess elsta og yngsta, Pálm-
ars og Fríðu, í aldri.
Svo gæti jafnvel farið að yngsta
systirin í fjölskyldunni, hin tvítuga
Særún, bætist fljótlega í hópinn,
en hún er söngkona og var meðal
annars falið að syngja bakraddir
á annarri plötu Klassart, Bréf frá
París, sem kom út í sumar.
„Særún litla systir er leynivopnið
okkar,“ segir Fríða og Pálmar skýtur
inn í að óvenjuleg skipan sveitar-
innar nálgist það að verða gott efni
NÁNAST EFNI Í RAUNVERULE
Uppáhalds íslenski
tónlistarmaðurinn:
Fríða: Björk
Smári: Rúnar Júlí-
usson
Pálmar: Allir í
Hjálmum
Uppáhalds er-
lendi tónlistar-
maðurinn:
Fríða: Tom
Waits
Smári: Beck
Pálmar: Peter
Green
Uppáhaldsborgin:
Fríða: París
Smári: New York
Pálmar: Peking
B
F
S
P
Ö
O
í raunveruleikaþátt. „Já, The Klass-
art Family Business!“ segir Fríða og
hlær. „Við ættum eiginlega að ræða
alvarlega við mömmu og pabba um
að eignast fleiri börn.“
Aðspurð segja systkinin að tón-
list hafi leikið veigamikið hlut-
verk á æskuheimilinu í Sandgerði.
„Það voru alltaf plötur á fóninum
heima,“ segir Pálmar. „Við bræð-
urnir kunnum textana að hverju
einasta Bítlalagi utanbókar þegar
við vorum litlir og það er kannski
grunnurinn sem við byggjum á. Svo
var pabbi okkar bassaleikari sem
spilaði fyrir kók og hamborgara á
herstöðinni í Keflavík með hljóm-
sveitinni Abstrakt í gamla daga.
Þannig að tónlistin hefur fylgt
okkur alla tíð.“
Fríða Dís vakti athygli einungis
fjögurra ára gömul þegar hún söng
lagið Fríða litla lipurtá í þættinum
Óskastundinni á Stöð 2. „Þetta var
þáttur sem fór á milli byggðar-
laga og Fríða var valin til að koma
fram fyrir hönd Sandgerðis. Þetta
var örugglega það besta sem kom
út úr þessum þáttum allan vetur-
inn,“ segir Pálmar. „Sléttuúlfarnir
voru húsbandið í þættinum og þeir
voru rosalega góðir við mig. Ég hef
verið skotin í Gunna Þórðar alla tíð
síðan,“ segir Fríða.
Öll láta þau vel af því að starfa
með systkinum sínum í hljóm-
sveit og segir Smári kostina við það
fyrirkomulag mun fleiri en ókost-
ina. „Samskiptin eru mun auðveld-
ari fyrir vikið,“ bætir Fríða Dís við.
„Við erum samrýmd fjölskylda og
ef við erum óánægð með eitthvað
þá látum við það bara flakka. Auð-
vitað þarf stundum að ræða málin
en þetta er allt í sátt og samlyndi
hjá okkur.“
KLASSART Þau Pálmar, Fríða Dís og Smári eru sammála um að ýmsir kostir fylgi því að að starfa með systkinum sínum í hljómsveit.
NORRÆNA HÚSIÐ
KYNNIR TVENNA TÓNLEIKA:
Nanook (GRL)
ásamt Rökkurró
31. ágúst
Miðaverð: 1000 kr.
Húsið opnar kl. 20.00
Tónleikarnir hefjast kl. 21.00
Miðasala:
www.midi.is
Miðaverð: 1000 kr.
Húsið opnar kl. 20.00
Tónleikarnir hefjast kl. 21.00
Sturlugata 5 -101 Reykjavik
www.norraenahusid.is
Tríó Gáman (DK)
1. september
Grænlenska súperbandið