Fréttablaðið - 27.08.2010, Qupperneq 46
26 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jónína Jóhanna
Kristjánsdóttir
(Adda Massa)
Hlíf II - Ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði þriðjudaginn
24. ágúst síðastliðinn. Útförin verður auglýst síðar.
Helga Sveinbjarnardóttir Kristján Kristjánsson
Kristján Sveinbjörnsson
Sveinbjörn Sveinbjörnsson Selma Antonsdóttir
Berta Sveinbjarnardóttir Auðunn Hálfdanarson
Halldór Sveinbjörnsson Helga Einarsdóttir
Marzellíus Sveinbjörnsson Margrét Geirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Jónsdóttir
Draflastöðum, Fnjóskadal,
andaðist laugardaginn 21. ágúst á Dvalarheimilinu
Hlíð. Jarðsett verður frá Draflastaðakirkju
fimmtudaginn 2. september klukkan 14.00.
Dómhildur Sigurðardóttir
Jón F. Sigurðsson Svanhildur Þorgilsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar
Rebekka Jónsdóttir,
sem lést 24. ágúst á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju þann 28. ágúst
kl. 14. Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Ásdís Guðmundsdóttir Jón Baldvin Jóhannesson
Halldór H. Guðmundsson Þórdís Guðmundsdóttir
Guðríður G. Guðmundsdóttir Róbert Mellk
Friðgerður Guðmundsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ágústa Jónasdóttir
Bergmann
áður til heimilis að Ljósvallagötu 24,
lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund miðviku-
daginn 25. ágúst. Jarðsett verður frá Dómkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 2. september kl. 11.00.
Jón G. Bergmann
Andreas Bergmann Guðrún Gísladóttir Bergmann
Ingibjörg Bergmann Þorbergur Halldórsson
Halldór Bergmann Anna Lára Kolbeins
Guðrún Bergmann Gísli G. Sveinbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
MOSAIK
Maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Axel Jónsson
Barónsstíg 78, Reykjavík,
lést að kvöldi sunnudagsins 22. ágúst á Landspítalanum
í Fossvogi. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni
í Reykjavík mánudaginn 30. ágúst kl. 15.00.
Margrét Halldórsdóttir
Þór Axelsson
Ásdís Axelsdóttir Bjarni Bjarnason
barnabörn og barnabarnabarn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
SKÁLDIÐ SJÓN ER 48 ÁRA.
„Eðlisþættir tilverunnar fá
á sig mynd í goðsögunum.
Maðurinn reynir að henda
reiður á óútskýranleg-
um fyrirbrigðum með því
að setja allt í söguformið.
Gefa öllum upphaf, miðju
og endi.“
Sigurjón Birgir Sigurðsson
er íslenskt skáld sem best er
þekkt undir listamannsnafn-
inu Sjón.
MERKISATBURÐIR
1828 Símon Bólívar tekur sér
alræðisvald í Stór-Kól-
umbíu.
1914 Fjórir menn af 17 manna
áhöfn togarans Skúla fóg-
eta farast er togarinn siglir
á tundurdufl og sekkur.
1946 Einangrun Siglufjarðar
er rofin er fyrsti bíllinn
kemst þangað eftir að
unnið hafði verið að
vegagerð um Siglufjarðar-
skarð í ellefu ár.
1970 Flugsveitin Rauðu örv-
arnar sýnir listir sínar í
Reykjavík og vekur mikla
aðdáun.
2002 - Flak Northrop N-3PB-
sjóflugvélar finnst á átta
metra dýpi í Skerjafirði.
Edda Heiðrún Backman listakona opn-
aði sína fyrstu listasýningu í MS setr-
inu í gær. Fjöldi manns var viðstadd-
ur opnunina að sögn Eddu Heiðrúnar.
„Við opnunina gaf ég líka MS setrinu
stóra mynd,“ segir Edda Heiðrún og
lýsir verkunum á sýningunni: „Ég er
að sýna olíuverk, vatnslitamyndir, gler-
verk og leirdiska,“ segir Edda Heiðrún
sem unnið hefur að sýningunni í um
eitt ár en upp undir fjörutíu verk eru
þar til sýnis.
Edda Heiðrún greindist með MND-
sjúkdóminn fyrir nokkrum árum og
málar vegna hans myndirnar með
munninum. Hún hóf málunina fyrir
tveimur árum undir leiðsögn Dereks
Mundell. „Ég gat ekkert annað en að
byrja bara að mála. Núna er ég bæði að
mála á MS setrinu og síðan er ég uppi á
Grensásdeild í iðjuþjálfuninni þar. Sig-
þrúður Loftsdóttir, iðjuþjálfi á Grens-
ásdeild, hefur hjálpað mikið til meðal
annars með aðstöðu.“
Listsköpunin gefur Eddu Heiðrúnu
mikið að hennar sögn. „Þetta er bara ein
leið fyrir mig til að tjá mig og gleyma
mér. Þetta heldur mér heilli á geðsmun-
um,“ segir Edda Heiðrún og bætir við
að sér líði afskaplega vel. Hún heldur
svo frásögninni áfram: „Listsköpunin
er rosalega stór partur af lífi mínu.“
Edda Heiðrún fékk inngöngu í alþjóð-
leg samtök munn- og fótmálara á síð-
asta ári. Samtökin styðja við fólk sem
ekki getur málað með höndunum en ein
aðalvara þeirra eru jólakort sem máluð
eru af meðlimum samtakanna. Þá eru
líka gerð póstkort og dagatöl með verk-
um listamannanna. „Ég er komin inn í
þau samtök, þess vegna er ég búin að
mála svona mikið. Ég er með fullt af
myndum þar.“
Edda Heiðrún segir að lokum glað-
lega frá því að verið er að stofna deild
við Myndlistaskóla Reykjavíkur fyrir
fatlað fólk. Hún átti sjálf frumkvæði að
því. „Þetta er gert fyrir minn atbeina.
Deildin er hugsuð fyrir fatlað fólk svo
það geti tjáð sig með ýmsum aðferðum.
Hún er fyrir þá sem ekki geta notað
hendurnar eða eiga bágt með að nota
þær.“
Sýningin er í MS Setrinu að Sléttu-
vegi 5 og er opin frá tvö til fjögur alla
virka daga næstu tvo mánuðina.
martaf@frettabladid.is
EDDA HEIÐRÚN BACKMAN: OPNAR SÍNA FYRSTU LISTASÝNINGU
Listsköpunin stór hluti lífsins
MÁLAR MEÐ MUNNINUM Edda Heiðrún Backman segir listsköpunina eina leið til að tjá sig og gleyma sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sýningarsalir Listasafns
Íslands voru formlega teknir
í notkun í húsi Þjóðminja-
safnsins þennan dag fyrir 49
árum. Listasafn Íslands var
stofnað í október árið 1884
en núverandi hús Listasafns-
ins við Fríkirkjuveg í Reykja-
vík var vígt árið 1988.
Björn Bjarnason sýslu-
maður stofnaði Listasafnið
í Kaupmannahöfn og voru
gjafir danskra listamanna uppistaðan í stofni
safnsins. Árið 1916 ákvað Alþingi að gera það
að deild innan Þjóðminjasafnsins. Safnið fór svo
undir stjórn menntamálaráðs árið 1928. Til að
byrja með voru verk safnsins til sýnis í Alþingis-
húsinu allt til ársins 1950
þegar það fluttist í safnahús-
ið við Suðurgötu sem það
deildi með Þjóðminjasafninu.
Listasafn Íslands hlaut svo
fullt sjálfstæði árið 1961 en
fluttist í núverandi húsnæði
að Fríkirkjuvegi árið 1987.
Húsið var áður íshús og reist
árið 1916 eftir teikningum
Guðjóns Samúelssonar.
Listasafn Íslands er þjóð-
listasafn og leggur megináherslu á 19. og 20.
aldar list, íslenska og erlenda. Þar er að finna
merkasta safn íslenskra verka hér á landi og eftir
alla helstu myndlistarmenn þjóðarinnar.
Heimild: www.listasafn.is
ÞETTA GERÐIST: 27. ÁGÚST 1951
Listasafn í Þjóðminjasafninu