Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 48
28 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
KORPUTORGI
ERTU KLÁR
Í SKÓLANN!
STUTTERMABOLIR
VERÐ KR. 1.995.-
ALLAR BUXUR FRÁ
VERÐ KR. 500
HETTUPEYSUR
VERÐ KR. 4.995.-
Stærsta Outlet landsins!
Opið mánudag til laugardags frá 11 til 18
Sunnudaga frá 12 til 18 • S. 578 9400
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Fyrirgefðu,
ég á í smá
vandræðum
með Ingó og
Veðurguðina.
Hvað ertu
reiðubúin
til að
ganga
langt?
Ganga
hvað?
Villtu bara að þeir
verði lamdir eða
villtu að ég láti þá
hverfa af
yfirborði jarðar?
Þú finnur þá með
því að leita undir „V“,
merkt í rekkanum sem
er merktur „dægurlaga-
tónlist“.
Þú stjórnar
þungarokks-
deildinni, ég sé
um rest.
Passaðu munn-
inn á þér!
Allt í
lagi,
feiti...
Jæja, þá
erum við
komnir.
Já, ég er
bara bíða
eftir að
buxurnar
mínar
þiðni.
Takk fyrir að taka þátt í
könnuninni.
Verði þér
að góðu
Ertu gift?
Áttu
börn?
Já,
þrjú.
Til hamingju! Gælu-
dýr?
Eru
ryk-
maurar
taldir
með?
Ó nei, úrið mitt
er stopp.
Nú veit ég
ekkert hvað
tímanum líður.
Fyrir-
gefðu.
Takk
fyrir.
Ég trúi á Guð, samkvæmt skilningi mínum á honum, ég trúi á Jesú Krist
og þá siðfræði sem honum er eignuð en ég
hef enga trú á heilagri, almennri kirkju.
ÉG VAR trúað barn, sótti barnamessur
á þeim (greinilega kristilega) tíma ell-
efu á sunnudagsmorgnum með vinkonum
mínum og hafði eitt árið meira að segja þá
virðingarstöðu með höndum að afhenda
hinum krökkunum Biblíumyndir þegar
þeir gengu inn í kirkjuna. Eftir messu voru
stundum sýndar teiknimyndir en það voru
ekki þær sem heilluðu heldur söngurinn,
þulurnar og kærleiksboðskapurinn.
VETURINN sem ég fermdist breyttist
allt. Vissulega má kenna almennri ungl-
ingsárafýlu og þvermóðsku um að hluta
en það gerðist líka að ég fór að spyrja
meira og svörin sem ég fékk voru í
besta falli ófullnægjandi og teygðu sig
upp í ókurteisi og niðurtal.
ÉG HEF því stundum talað um að ég
hafi verið affermd og tók við ferm-
ingargjöfunum og veislugestum
með þrúgandi samviskubiti
syndarans.
HÉKK SAMT áfram í þjóð-
kirkjunni með því að hugsa sem
minnst um það en sagði mig úr
henni áratugum síðar og valdi annan söfn-
uð þar sem mér fannst jafnvægið milli
guðs og manna ásættanlegra.
VIÐ ÞURFUM enga þjóðkirkju. Rauði
krossinn sinnir félagslegri skyldu kirkj-
unnar og sálfræðingar sálgæslu án þess að
halda þurfi úti höllum og köllum og Köllum
og höklum handa starfsmönnunum. Kirkj-
an er á fjárlögum en þær athafnir sem hún
hefur eignað sér þarf samt að greiða fyrir
þannig að þeir sem kjósa að láta nafngiftir,
hjónavígslur, fermingar eða jarðsöng fara
fram undir merkjum hennar þurfa hvort
sem er að borga fyrir það sérstaklega.
HROKI kirkjunnar þjóna hefur verið
slíkur að mannanna lög hafa verið fyrir
neðan þeirra virðingu. Þó að þeir finni
fyrir andúð frá launagreiðendum sínum
fara þeir alltaf undan í flæmingi og geta
aldrei svarað spurningum beint og aldrei
skammast sín fyrr en of seint, fyrr en
skömm þeirra er orðin svo stór að ekki
er siðferðislega og samfélagslega hægt
annað en að gefa yfirlýsingu og biðjast
afsökunar.
ÝMSIR hafa orðið til þess að fara fram á
aðskilnað ríkis og kirkju undanfarin ár og
áratugi en ekki haft erindi sem erfiði. Það
er blessun þeirra að nú stefnir þjóðkirkjan
fyrir björg knúin eigin vélarafli.
Læmingi í flæmingi