Fréttablaðið - 27.08.2010, Side 56

Fréttablaðið - 27.08.2010, Side 56
36 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Fylkisvöllur, áhorf.: 1.658 Fylkir KR TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 14–19 (7–13) Varin skot Fjalar 7 – Moldsked 6 Horn 7–5 Aukaspyrnur fengnar 7–13 Rangstöður 2–3 KR 4–3–3 Lars Ivar Moldsked 8 Skúli Jón Friðgeirss. 7 Grétar S. Sigurðars. 7 Mark Rutgers 7 Guðm. Reynir Gunn. 8 (84. Dofri Snorrason -) Bjarni Guðjónsson 7 Baldur Sigurðsson 7 Viktor Bjarki Arnarss. 6 (86. Björgólfur Takef. -) Óskar Örn Hauksson 6 Kjartan Henry Finnb. 8 (80. Gunnar Ö. Jónss. -) *Guðjón Baldvinss. 8 *Maður leiksins FYLKIR 4–5–1 Fjalar Þorgeirsson 6 Kristján Valdimarss. 3 Þórir Hannesson 3 Valur F. Gíslason 4 Kjartan Ágúst Breiðd. 5 Ingimundur Níels Ó. 4 (67. Pape M. Faye 4) Ásgeir Börkur Ásg. 3 Ólafur Ingi Stígsson 3 (67. Davíð Þór Ásbj. 5) Andrés Már Jóh. 4 (75. Ásgeir Örn Arnþ. -) Tómas Þorsteinsson 5 Jóhann Þórhallsson 6 1-0 Jóhann Þórhallsson (5.) 1-1 Guðjón Baldvinsson (15.) 1-2 Kjartan Henry Finnbogason (27.) 1-3 Guðm. Reynir Gunnarsson (47.) 1-4 Guðjón Baldvinsson (77.) 1-4 Örvar Sær Gíslason (8) Þýski handboltinn er byrjaður að rúlla. Einar Hólmgeirsson skipti um félag í sumar, hann gekk í raðir HSG Ahlen-Hamm frá Grosswallstadt en félögin mætast einmitt í fyrstu umferðinni í kvöld. „Ég viðurkenni alveg að ég hefði viljað byrja á einhverjum öðrum leik, það voru sextán önnur lið sem komu til greina,“ sagði Einar léttur. Eftir erfiða tíma vegna meiðsla fór hann frá Grosswallstadt en Einar viðurkennir að viðskilnaðurinn hafi ekki verið ýkja góður. Einar spilaði ekki í eina tíu mánuði en var að ná sér þegar hann fór. „Þetta var svolítið endasleppt. Mér var lofað öllu fögru en svo var ekkert af því efnt og ég var bara kvaddur.“ Einar var í vandræðum með hnéð á sér en fyrir þremur vikum meiddist hann í hinu hnénu. „Það mátti búast við þessu,“ sagði Einar glaðbeittur þrátt fyrir allt. „Góða hnéð laskaðist aðeins, það blæddi aðeins inn á það,“ segir Einar. „Þetta er ekkert alvarlegt en ég var bara að byrja að æfa aftur. En það kemur ekkert annað til greina en að spila á móti Grosswallstadt.“ Skyttan segir einnig viðbrigði að fara frá liði sem var að berjast fyrir ofan miðja deild til nýliða sem þurfa að berjast fyrir sæti sínu í deildinni. „Þetta er nokkuð skrítið. Það var ekki sama pressan hjá Grosswallstadt þar sem við unnum yfirleitt heimaleikina okkar og sáum svo bara til með úti- völlinn. Núna þurfum við að berjast fyrir hverju einasta stigi og hverju einasta marki liggur við,“ segir hann. Ahlen-Hamm var stofnaður út frá félögunum tveimur sem skilja bandstrikið að. „Ahlen var minni en Hamm frekar stór. Það var mikill rígur á milli þeirra en það gekk ágætlega að sameina þá. Það er stutt á milli bæjanna, aðeins tíu kílómetrar. Það verður mikil stemning á leiknum og það er fínt að byrja á heimavelli,“ segir Einar sem vonast til að vera lengur en í eitt ár hjá félaginu. „Það er ekkert eðlilega leiðinlegt að flytja. Sumarið fór í að taka upp úr kössum og koma okkur fyrir. En okkur líður mjög vel hérna,“ segir Einar. EINAR HÓLMGEIRSSON: MEIDDIST Í „GÓÐA“ HNÉNU FYRIR STUTTU EN ER KLÁR Í LEIKINN GEGN GAMLA FÉLAGINU Ég hefði alveg viljað byrja á að mæta öðru liði Fylkir og forystan Fylkismönnum hefur gengið illa að halda forystunni í mörgum leikja sinna í sumar: Staða Andstæðingur Úrslit 2-0 Fram 2-2 2-0 FH 2-2 1-0 Breiðablik 2-4 1-0 Haukar 1-1 1-0 Stjarnan 1-2 1-0 Keflavík 1-2 2-0 FH 2-4 1-0 KR 1-4 > Staða Gunnlaugs veik Óvíst er hvort að Gunnlaugur Jónsson verði áfram þjálfari Vals á næstu leiktíð en heimildarmenn Fréttablaðsins innan raða félagsins herma að staða hans sé veik. Í fyrrakvöld greindi RÚV frá því að Gunnlaugi hafi verið boðið að hætta strax með liðið og að rætt hafi verið við Guðjón Þórðarson um að taka við liðinu. Því neitaði stjórn Vals í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í gær en hvorki náðist í Gunnlaug né Börk Edvardsson, formann knattspyrnudeildar Vals, þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir í gær. Pepsi-deild karla, staðan ÍBV 17 10 3 4 27-17 33 Breiðablik 17 9 4 4 36-20 31 KR 17 9 4 4 34-22 31 FH 17 8 5 4 33-26 29 Stjarnan 17 6 6 5 34-28 24 Keflavík 17 6 6 5 19-21 24 Fram 17 6 5 6 26-26 23 Valur 17 5 7 5 23-30 22 Grindavík 17 5 4 8 20-24 19 Fylkir 17 5 3 9 30-36 18 Selfoss 17 4 2 11 24-39 14 Haukar 17 1 7 9 22-39 10 1. deild karla Þróttur - ÍA 2-2 0-1 Gary Martin (9.), 1-1 Hörður Bjarnason (47.), 1-2 Arnar Guðjónss. (84.), 2-2 Ingvi Sveinss. (91.). Evrópudeild UEFA, umspil Aktobe - AZ Alkmaar 2-1 AZ Alkmaar vann samanlagt, 3-2. Maritimo - BATE Borisov 1-2 BATE vann samanlagt, 5-1. Dnepr - Villarreal 1-2 Villarreal vann samanlagt, 7-1. Trabzonspor - Liverpool 1-2 Liverpool vann samanlagt, 3-1. AEK - Dundee United 1-1 AEK vann samanlagt, 2-1. Utrecht - Glasgow Celtic 4-0 Utrecht vann samanlagt, 4-2. Juventus - Sturm Graz 1-0 Juventus vann samanlagt, 3-1. Motherwell - OB 0-1 OB vann samalagt, 3-1. Manchester City - Timisoara 2-0 Manchester City vann samanlagt, 3-0. ÚRSLIT FÓTBOLTI KR er heitasta lið lands- ins. Liðið hefur unnið sjö deild- arleiki í röð undir stjórn Rúnars Kristinssonar, skorað 21 mark og fengið á sig þrjú. Það er aðeins tveimur stigum frá ÍBV og er til alls líklegt á endasprettinum. Það vann Fylki 1-4 í gær. Fyrri hálfleikur var fjörugur frá upphafi til enda. Fylkismenn byrjuðu af krafti en þeir fengu aðstoð KR þegar þeir komust yfir. Þeir fengu gefins hornspyrnu sem endaði með því að Valur Fannar skallaði inn í markteig þar sem Jóhann Þórhallsson stangaði bolt- ann í netið. Eftir þetta tóku KR-ingar öll völd á vellinum og það var eins og þeir hefðu þurft þessa köldu vatnsgusu frá Fylki til að vakna. Þeir hófu stórsókn þar sem Baldur skaut meðal annars í slána og Fjal- ar varði tvisvar frábærlega. Guðjón skoraði svo mark sum- arsins. Hann fékk sendingu inn í teig, tók boltann á kassann og skor- aði með stórkostlegri hjólhesta- spyrnu. Ævintýralega flott mark og svo sannarlega af dýrari gerð- inni. Kjartan Henry skoraði annað glæsimark skömmu seinna, hann fékk að dansa með boltann fyrir utan teiginn og þakkaði fyrir sig með þrumuskoti í bláhornið. Stað- an 1-2. KR var svo betra út hálf- leikinn, átti alls þrettán skot að marki og það síðasta var rétt fram- hjá frá Guðjóni. Rúm mínúta var búin af seinni hálfleik þegar Guðmundur Reyn- ir skoraði enn eitt glæsimark KR- inga. Þrumuskot af vítateigslín- unni í slána og inn. Fylkismenn virtust missa alla trú eftir þetta mark. Þeir sóttu lítið sem ekkert miðja þeirra var afspyrnu léleg. Flöt vörnin hleypti Guðjóni einum í gegn og hann fór framhjá Fjalari áður en hann skor- aði síðasta markið. Tómas Þorsteinsson fékk tvö gul spjöld með tíu sekúndna milli- bili í seinni hálfleik og ýtti svo við góðum dómara leiksins. Hann á skilið langt bann fyrir vikið. Fylkisliðið virðist vera í tómu tjóni og ekki einu sinni baráttu- hundurinn Ólafur Þórðarson virð- ist geta blásið lífi í Árbæinga. Liðið er í bullandi botnbaráttu. KR er að spila best allra á Íslandi, skemmtilegan og árang- ursríkan fótbolta. Titillinn er þeirra vinni liðið alla fjóra leik- ina sína. Það er ekki annað hægt að segja en að KR sé liðið til að vinna. „Þetta gekk vel til að byrja með en það kom svolítið bras á okkur í fyrri hálfleik. Svo ákváðum við að hætta þessum stuttu sendingum og að reyna að vera flottir og sett- um hörkuna bara í þetta. Þannig þarf að spila á móti Fylki og láta þá hlaupa,“ sagði Viktor Bjarki en hvað segir hann um draumamörk liðsins þessa dagana? „Maður hló bara inni á vellin- um þegar við fögnuðum mörkun- um. Þannig á það að vera, þetta er skemmtilegt. Það gengur vel núna en það þýðir ekkert að horfa lengra fram í tímann en á næsta leik. Maður er í þessu til að spila úrslitaleiki og nú eru fjórir úrslita- leikir eftir,“ sagði Viktor. „Fyrri hálfleikurinn var ágætur þrátt fyrir að við værum undir,“ sagði Ólafur Þórðarson. „Seinni hálfleikurinn er skelfing. Menn bara halda ekki haus. Það er lítið sjálfstraust og reynsluleysi. Þetta blandast illa saman og útkoman er þessi. Við ætluðum að liggja til baka og verja markið okkar. Það er algjört grísamark sem Guðjón skorar og annað markið var lélegt að okkar hálfu. Sjálfstraustið er bara brotið og ég veit ekki hvort að væntingarnar hafi verið of mikl- ar. Það er fullt af leikjum eftir og við verðum bara að vinna okkur úr þessu. Ég verð bara að halda áfram að berja á strákunum,“ sagði Ólaf- ur. hjalti@frettabladid.is Hlógum bara þegar við fögnuðum KR er heitasta liðið á Íslandi í dag. Liðið skoraði fjögur frábær mörk gegn Fylki í gær og er aðeins tveimur stigum frá toppnum. Á meðan er Fylkir í tómu tjóni í botnbaráttunni og virðist rúið öllu sjálfstrausti. Á SKOTSKÓNUM Guðmundur Reynir Gunnarsson þrumar hér knettinum í mark Fylkismanna. Þórir Hannesson kemur engum vörnum við. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Liverpool keppir í riðla- keppni Evrópudeildar UEFA eftir 3-1 samanlagðan sigur á Trabzons- por. Liðin áttust við í Tyrklandi í gær og þar vann Liverpool 2-1 sigur eftir að hafa lent snemma undir í leiknum. En Liverpool skoraði tvö mörk á síðustu mín- útum leiksins. Fyrra markið var sjálfsmark en Dirk Kuyt skoraði síðara markið eftir að hafa fylgt eftir skoti varamannsins Daniel Pacheco sem var varið. Markið var kærkomið fyrir Kuyt sem hefur verið sag ður á leið frá Liverpool. En hann sagði eftir leikinn að hann ætlaði að vera um kyrrt. „Eftir því sem ég best veit þá er framtíð mín hjá Liverpool,“ sagði hann. „Ég hef notið tíma míns hér og vona að framtíðin verði einn- ig góð. Það eina sem ég vil er að vinna titla með Liverpool.“ Sjálfur var Hogdson hæstánægð- ur með sigurinn. „Ég efaðist aldrei um að hann vildi vera áfram. Dirk er mikilvægur hluti af Liverpool og ég hef áður sagt að hann er ekki til sölu. Ég ætla mér að byggja upp liðið í kringum leikmenn eins og hann, Steven Gerrard, Fernando Torres og Jose Reina. Við ætlum ekki að selja þá og byrja upp á nýtt.“ Íslendingaliðin OB frá Dan- mörku og AZ Alkmaar frá Hol- landi komust einnig í riðlakeppn- ina. Rúrik Gíslason spilaði allan leikinn er OB vann 1-0 sigur á Motherwell í Skotlandi og saman- lagt, 3-1. Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði AZ sem tapaði fyrir Aktobe í Kasakstan, 2-1, en vann samalagt, 3-2. Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem varamaður fyrir Jóhann Berg í síðari hálfleik. Manchester City komst einn- ig áfram eftir 3-0 samanlagðan sigur á Timisoara frá Rúmeníu. Aston Villa er hins vegar úr leik eftir að hafa tapað fyrir Rapíd Vín frá Austurríki, annað árið í röð. 48 lið verða í hattinum þegar dregið verður í riðla í dag. Alls eru riðlarnir tólf talsins og kom- ast efstu tvö liðin úr hverjum riðli áfram í 32-liða úrslitin, ásamt þeim átta liðum sem ná bestum árangri í þriðja sæti. - esá Forkeppni Evrópudeildar UEFA lauk í gær með síðustu leikjum umspilsins um sæti í riðlakeppninni: Síðbúin mörk tryggðu Liverpool áfram Í BARÁTTUNNI Rúrik Gíslason í leiknum gegn Motherwell í Skotlandi í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.